Kvöldið er fagurt.

Þetta er ef til vill seinasta færsla mín um tíma.  Veðrið hér er hrein unun og ég bauð börnunum mínum í mat í kvöld.  Grillað lambakjöt og pulsur og svo kom Júlli minn og pabbi með skötusel sem var grillaður líka og var hreint lostæti.

Málið er líka í dag á frumburður minn afmæli á þessum degi fyrir 42 árum átti ég mitt fyrsta barn, og mér fannst ég vera stórkostlegasta manneskja í heiminum, og hann var fullkominn.  Sonur hans er nákvæmlega tveggja mánaða í dag.  Innilega til hamingju Ingi Þór minn með afmælið. Heart 

IMG_9770

Veðrið var hrein unun í dag, sólríkt hlýtt og notalegt.

IMG_9771

Börnin nutu sín vel í veðurblíðunni.

IMG_9780

Tvær skottur við tjörnina.

IMG_9786

Bara notalegt fjölskyldulíf.

IMG_9790

Prinsinn vakti athygli krakkanna og var miðdepillinn.  Honum fannst gott að liggja í kerrunni og láta sólina leika um litla bibbann sinn. Heart

IMG_9795

Fyrir utan húsið var svo grillað á fullu.  Ég var með lambakjöt sem ég hafði marinerað í þrjá daga. 

IMG_9796

Æ það er bara svo notalegt að hafa ástvini sína í kring um sig, og finna að þau njóta þess líka.

IMG_9805

Prins og prinsessa yndisleg bæði tvö. Heart

IMG_9812

Töffararnir mínir.

IMG_9814

Og afi gamli er auðvitað ómissandi í svona familyfest. Heart

IMG_9816

Krakkar fullorðnir og hundar, kötturinn Brandur í órafjarlægð heheheh... en hvað er betra og yndislegra ?

IMG_9818

Himnagalleríið opið.

IMG_9820

Setið að snæðingi.

IMG_9822

Móðir og dóttir á góðum degi.

IMG_9827

Og amman umkringd að yndislegum prinsessum.

IMG_9829

Og sumir voru krímugir í framan. LoL

IMG_9833

Kátir krakkar.

IMG_9842

Yndislegar litlar  ömmuskotturHeart

IMG_9844

Flottir feðgar.

IMG_9851

Kvöldið er fagurt sól er sest og sefur fugl á grein.

Við skulum vaka vina mín og vera saman ein.

ég þekki fagran lítinn lund,

Hjá læknum upp við foss,

þar sem að gróa gullin blóm... þú gefur heitan koss.

Næstu myndir verða að öllum líkindum frá öðru sjónarhorni, og öðrum vettvangi en kúlunni.

En ég býð ykkur góðrara nætur og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur öllum.  Og ég segi bara góða nótt. Heart


Bloggfærslur 27. júní 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband