27.5.2009 | 12:24
Komnar heim.... og áfram skal halda.
Jæja þá vorum við útskrifaðar i morgunn ömmgurnar. Sú stutta vaknaði á sínum tíma kl. 7 í morgun og bað um brauð með osti. Svo horfði hún á sjónvarp og púslaði saman tveimur púslum, á stofugangi voru læknarnir svo ánægðir með hana að við fengum að fara heim.
En það er dálítið spennandi að gerast fyrir utan eldhúsgluggann hjá okkur, þessi kónguló hefur ofið sinn vef beint þar fyrir utan og við getum fylgst með henni á sínum ferli.
Líf Lóu Kóngulóar hehehehe....
Hér eru þessi tvö með blóm og rjóma.
En litla skottið var bara lasinn.
Hún var samt orðin bara ansi hress á sunnudagskvöldið.
Svo afi fór með hana á leikskólann á mánudagsmorguninn.
Brandi finnst mjög notalegt að láta Hönnu Sól dúlla við sig á morgnana.
En svo hringdu þær frá leikskólanum og sögðu að þeim litist ekkert á Ásthildi litlu svo ég fór með hana á sjúkrahúsið, og læknirinn sagði að það væri best að leggja hana inn og fylgjast með henni.
Á Sjúkrahúsinu á Ísafirði eru allir algjörlega frábærir, þau voru svo góð við okkur, og það var notalegt að dvelja þarna. Og það var vel passað upp á að Ásthildur drykki og reyndi allavega að borða.
Matta og Ingi komu í heimsókn og Matta hafði hugsun á að kaupa orkudrykk, sem ég gaf henni í pela. Og hún hresstist ótrúlega fljótt.
Hér er mín farin að pússla.
Svo var hægt að horfa á sjónvarpið.
Og afi kom í heimsókn líka.
Hér er heimilislegt og notalegt, blóm á borðum og fallega útsaumuð listaverk á veggjum.
en mín vildi bara fara á leikskólann sinn. Og hún var heppinn, þau voru einmitt að undirbúa ferð í sveitina til að skoða lömbin.
Fóstrurnar á kafi að undirbúa gönguferðina, því bóndabærinn er jú í göngufæri við leikskólann, eða upp í Hraun til Hjálmars bónda.
Og hin börnin fögnuðu litlu skottunni minni.
Þetta ævintýri endaði vel. Og veðrið er gott. Nú þarf ég að drífa mig út að gera eitthvað af viti. En mikið er ég glöð yfir að allt fór vel. Og innilega takk fyrir okkur starfsfólk sjúkrahússins á Ísafirði. Þið eruð frábær öll sem eitt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 27. maí 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar