25.5.2009 | 20:16
Nú eru jólin.... eða þannig.
Barninu batnað, net og sjónvarp komið í lag. Mikið er netið og sjónvarpið annars miklir tímaþjófar!!!
Meðan þetta allt lá niðri, átti ég góðan tíma fyrir sjálfa mig og manninn minn og alla hehehehe...... En það er með netið eins og annað, þegar maður hefur einusinni komist á bragðið er erfitt að fara til baka í gamla farið. Lesa bækur, leggja kapal, ráða krossgátur, eða ennþá aftar, stoppa í sokka, baka kökur, sauma föt á börnin, jafnvel upp úr öðrum fötum, sauma sængur- og koddaver, svo ég tali ekki um jólafötin... eða lengar aftur, þegar ég keypti mér sníðablöðin og saumaði kjólana mína sjálf, eða tískufötin sem maður fór í á böllinn. Þetta á að vera ball, en ekki böllur
Ég held að svona eftir á hafi ég aldrei fallið alveg inn í hópinn, enda dreymdi mig oft sem ungling að ég stóð í biðröð, nema á komst aldrei inn í biðröðina heldur stóð alltaf fyrir utan hana, langaði inn en komst ekki. Svoleiðis var nú það. Samt var ég ánægður unglingur, lék mér með Hildu, Klöru og Dísu vinkonum upp í hlíð eða öðrum börnum í nágrenninu í allskona leikjum. Skorti aldrei neitt.
En svo má ég til með að koma með nokkrar myndir.
Þessi var tekinn eina nóttina um miðnæturbil, sjá má litadýrðina, þegar sólin litar skýin.
Og sumir voða duglegir að bjarga sér, með að smyrja brauðið sitt sjálfir
Skógarprinsessan, sem vill helst hvergi vera annarstaðar en innan um gróðurinn.
Eða dugnaðarforkurinn sem aldrei fellur verk úr hendi
En Júlli minn kom með þetta líka fína hvaðhöfuð sem minn elskulegi ákvað að setja á áberandi stað í lóðinni.
Engin smásmíð þar á ferð og börnin fylgjast grannt með.
En hann hafði líka komið með skíði af hval fyrir nokkrum árum og nú skyldi hann líka gerður sýnilegri.
Þetta er nú eiginlega orðið hvalasafn
Börnin njóta sín í kúlunni.
Og þau fengu að kaupa sér sykurpúða, ætluðu að nota tækifærið þegar var grillað síðast, en það þarf nefnilega meira bál heheheh... svo kvöldið eftir fengu þau leyfi til að fara með Júlla mínum upp í Bárulund sem er svæði sem við systkinin höfum til gróðursetningar til minningar um móður okkar, og kveikja smábál og grilla. Þess vegna er litla dýrið svona golsótt.
Þau eru orðin hálfgerð útileguhross, ekkert bannað nema að fara niður á götu
Þið kannist orðið við þetta veðurfar á Ísafirði.
En svo veiktist litla skottið, og varð mikið veik, ég hringdi í doktor og hann kannaðist strax við þetta og sagði mér að það væri að ganga, og tæki minnsta kosti tvo sólarhringa. Og jamm.... nú þegar tvær andvökunætur með tilheyrandi syfju og þreytu, en mér er ekki vorkunn heldur þessu litla blómi sem stóð sig þvílíkt frábærlega.
Þessi skotta samt í góðum málum.
Álfar og börn heyra vel saman.
Líka börn og blóm og börn blóm og vatn.
Stundum þarf plástur, sérstaklega ef litla systir er veik og fær of mikla athygli, þá þarf að grípa til ýmissa ráðstafana
Þá er gott að til sé nóg af prinessuplástrum.
Og litadýrðin er söm við sig.
Og svo var það skírnin. Ekki þessi litli gaur. Hann kom bara til að fylgjast með.
Það var nefnilega prinsessan sem var skírð síðasta laugardag.
En maður fylgist nú með... til að vita hvort þetta sé örugglega óhætt!!
Jú ætli þetta sé nú ekki alveg allt í lagi. Sérlega þegar presturinn er afi manns.
Og Júlíana mín svo stolt systir að halda á þeirri litlu undir skírn.
Falleg einföld athöfn, þar sem ættingjar og vinir sungu sálmin eina um blessað barn.
Jamm þetta verður í lagi, allt í lagi að snúa sér að öðru.
Stolta fjölskyldan mín
Ekki margar nýju ára stelpur sem fá þann trúnað að fá að halda litlu systur undir skírn. En svona eru Tinna og Skafti, perlur
Og stolt langamma sem fékk loksins nafnið sitt endurnýjað. Ef þið skoðið augun í henni, þá getið þið séð stolt en fyrst og fremst hve hrærð hún er þessi yndislega manneskja og litla skottið á eftir að bera nafnið hennar áfram, ég veit hve hamingjusamt það er.
Hér eru svo yndislegu tengdadæturnar mínar og nýjustu barnabörnin, ég er svo stolt og ánægð með þau öll sömul, hvert og eitt, blóðtengt eða ekki. Það bara skiptir ekki máli. En að heyra þau kalla amma með trúnaði barnsins og trausti þess að þau vita að ég elska þau öll. Það er málið.
en við litla fjölskyldan í kúlunni, ákváðum að hafa pizzukvöld.
Og þar sem við höfum jafn ólíkan smekk og Sævar Karl, þá fékk hver sína pizzu, eða þannig, Úlfur og afi hafa sama smekk á pizzum.
Og hver og einn fékk að gera sína pizzu sjálfur, nema Úlfur gerði eina fyrir sig og afa.
Og það var skreytt og unnið.
Hanna Sól gerði sína alveg sjálf.
Og svo auðvitað Úlfur.
Lögð lokahönd á verkið.
Þið fáið ekki svona pizzur hjá Dominós.
Og ekki einusinni í Hamraborg þau þeir séu náttúrulega flottastir fyrir utan kúluna
En knús á ykkur öll og þið eruð orðin partur af mínu lífi, þannig er það bara. Knús á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
25.5.2009 | 11:02
Netleysi og veikindi.
Ég hef ekki verið mikið við undanfarna daga. Netið datt út hjá mér á miðvikudaginn, routerinn fékk á sig rafmagnshnykk og bilaði við það. Þar með datt líka út sjónvarpið, þetta er bagalegt því það er svo, að sjónvarpið er besta barnapían á morgnana áður en stelpurnar fara á leikskólann og á helgarmorgnum.
En verra er þó fyrir mig persónulega að missa tölvuna, því ég get ekki verið í sambandi við ykkur mín ágætu.
Vonandi kemst þetta samt í lag fljótlega, það eru líka margar góðar myndir óbirtar. Ég var í skírn á laugardaginn, þar sem var verið að skíra minnstu prinsessuna hún hefur nú formlega fengið nafnið Sólveig Hulda, svo falleg og fíngerð.
En minnsta skottið á mínu heimili Ásthildur Cesil hefur verið veik, hún byrjaði að gubba á föstudagsmorgun áður en hún fór á leikskólann, og síðan hefur hún verið viðþolslaus, með uppköst og niðurgang, og engu komið niður, það kemur allt upp eða niður jafnharðan. Samt hefur hún verið þolinmóð þetta litla skinn, mókað að mestu, en það hefur auðvitað ekki mátt víkja frá henni, svo það hefur verið álag á heimilið og sérstaklega ömmu sín.
En hún var hress í morgun og fór í leikskólann. Hanna Sól er aftur á mótin hin hressasta og Úlfurinn líka.
Núna er vorrigning hér á vesturkjálkanum, og þá fer allt af stað að laufgast, liggur við að maður sjái trén laufgast. En það er erfitt að vinna úti í svona bleytu.
Ég hef stundum verið að hlusta á K.K á rás 1 á morgnana, það er rosalega notalegur þáttur og rólyndislegur. K.K. er líka einstaklega ljúfur útvarpsmaður og góður kynnir á þeim lögum sem hann spilar. Og ég hef uppgötvað svo ekki verður um villst þvílíkt afrek RUV hefur sýnt hér áður og fyrr, þegar lítið var um stúdíó. Á árunum 1940 - 50 og bæði fyrir og eftir reyndar voru hljóðritaðar íslenskar perlur sem annars hefðu orðið gleymskunni að bráð. Perlur sem við njótum enn daginn í dag. Það ber að þakka og minnast. En það er oft svo að það góða sem maður gerir liggur í þögninni en það slæma er æpt á torgum.
Við eigum að snúa því við og gera einmitt eins og K.K. Ræða um það jákvæða og góða, en minnka talið um það neikvæða. Það á auðvitað ekki að þagga niður illvirki eða gleyma þjófnuðum og græðgi sem hafa komið okkur í þrot, né heldur ekki gleyma þeim sem ábyrgðina bera.
En ég held að heimurinn væri betri ef við gæfum okkur tíma til að minnast þess fallega og góða sem margir eru að gera. Tala upp jákvæðnina og kærleikann sem vissulega býr allstaðar, bara mismikið uppi á yfirborðinu. Með því getum við einmitt dregið bjartsýnina og fegurðina upp á yfirborðið. Og þegar ég tala um fegurð, er ég ekki að tala um falleg fés eða kroppa, heldur fegurðina sem býr í öllu sem lifir og andar. Þann neista kærleika sem býr allstaðar, en þarf ef til vill hvatningu til að koma betur í ljós og blómstra. Þetta getum við gert hvert og eitt okkar, og þannig lagt okkar af mörkum til að gera lífið betra og bjartara.
Við eigum að vera djarfleg í fasi og horfa á fólkið í kring um okkur, brosa og hrósa, þannig verðum við hvert og eitt að litlum ljósperlum sem smátt og smátt litum umhverfi okkar með ljósari og fegurri litum.
Ég sé stundum fólk sem horfir niður í gólfið og forðast að líta í kring um sig. Þá hugsa ég um hve bágt þessi manneskja hljóti að eiga að loka sitt lífsins ljós af. Mig langar til að taka utan um slíkt fólk og segja því að það eigi sinn tilverurétt alveg eins og allir hinir. Þunglyndi og erfiðleikar er eitthvað sem enginn ræður við, en ég held samt að það sé hægt að gera þeim sem eiga við slíkt, léttara um vik, með brosi og hrósi, með því að láta þeim finnast að þau skipti máli. Því þannig er það bara við skiptum öll óendanlega miklu máli.
En sem sagt elskurnar ég vona að ég komist í netsamband í dag, svo ég geti sett inn myndir fyrir ykkur. Ég vil líka þakka þeim sem hafa haft samband þeim mörgu reyndar sem hafa komið og sagt mér að þeir lesi og skoði bloggið mitt daglega. Ég fyllist þakklæti og jákvæðni við að heyra svoleiðis, ég er nefnilega eins og við öll, þurfum á að halda að vera metinn af því sem við gerum vel. Það kemur tífallt til baka til þeirra sem þannig gera, þannig hljómar lögmálið.
Knús á ykkur öll þangað til ég kemst inn næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 25. maí 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar