Svona hugleiðing um pólitík...

Ég er alltaf að pæla eitthvað.  Nú hef ég velt fyrir mér flokkunum og hvernig ég sé þá fyrir mér.

 

Tek það fram að þetta er eingöngu mínar pælingar miðað við það sem mér finnst hafa komið fram.

  

Samfylkingin.

 

Samfylkingin er svona 101 flokkur, ekki í góðu sambandi við landsbyggðina.  Og hann er svokallaður elítuflokkur.  Ég er ekki að dæma fólkið sem slíkt, en samt sem áður þá hefur þessi flokkur þróast í átt til Reykjavíkur og þess sem gerist þar og reyndar út í Evrópu. Flokkinn vantar jarðtengingu. Ég held að ef Margrét Frímanns og Rannveig Guðmundsdóttir hefðu verið í forsvar fyrir flokkinn, þá hefði hann verið meira jarðtengdur.  Þær komu úr grasótinni.. En með því að hleypa Ingibjörgu Sólrúnu í hæstu hæðir þar innanborðs var flokkurinn tekinn úr sambandi við alþýðu manna.  Össur er góður maður, en  hann er of fylgispakur við meirihlutan.  Hann er einfaldlega of góð persóna og manneskjulegur.  Með Árna Páli verður svo lokahnykkurinn lagður að 101 stöðunni, þá mun kvarnast úr flokknum verulega.  Því miður hefur Jóhanna valdið mér vonbrigðum, því hún hætti að hlusta á alþýðuna en fór að hlusta á fólkið sem stendur henni nær í pólitíkinni, eins og þetta Júróraus ber vitni um.

 

Vinstri græn.

Vinstri græn eru heiðarlegri í afstöðu sinni.  Þó ber flokkurinn vissulega afstöðu til öfgafeminista, sem fæla margan manninn frá því að styðja flokkinn.  Steingrímur er flottur og fínn maður, Ögmundur þó heilsteyptari.  En svo eru þarna konur eins og Sóley Tómasdóttir sem eru öfgarnar og fæla frá, þar var Kolbrún Halldórsdóttir líka.

Synd þegar fólk lendir í því feni að ofgera hlutina og þar með vinna á móti hugsjónum sínum.  Af þeim flokkum sem nú sitja á þingi treysti ég samt best Vinstri grænum til að halda utan um þau gildi sem ég vil leggja og voru stefna Frjálslynda flokksins.

 

Framsókn.

 

Framsóknarflokkurinn er spilltur og rotinn í gegn að mínu mati, enda stofnaður til að gera einmitt það, að vera lítill flokkur en hafa mikil völd miðað við stærð í skjóli oddaaðstöðu.  Spilling flokksins tók svo flugið þegar þeir náðu saman við Sjálfstæðisflokkinn, sem er jafnspilltur og þeir og úttekt á því sem þeir hafa gert síðastliðinn 20 ár mun koma fram í dagsljósið meira og meira, og jafnvel vekja undrun þeirra fylgismanna.  Hversu langt þeir voru tilbúnir til að ganga í að ljúga og svíkja landsmenn til að ná völdum og peningum. 

Og þó þeir hafi skiptu út forystunni, þá er það bara þannig að mínu mati var henni ekki skipt út, heldur laukarnir látnir taka við kyndlinum.  En bak við ráða sömu menn ennþá.

Þeir tveir bera ábyrgð á stöðu landsins i dag, og ótrúlegt að þeir skyldu ekki koma ver út úr kosningum, sýnir ræfilshátt þjóðarsálarinnar við að refsa þeim sem ekki standa sig.

 

 

Sjálfstæðisflokkur.

Sjálfstæðisflokkurinn er í raun og veru ekki stjórnmálaafl, heldur trúfélag.  Sértrúarflokkur sem hefur það eitt á stefnuskránni að halda völdum, og hygla sínu fólki.  Það er í raun og veru alveg stór furðulegt að alþýðufólk þessa lands þar með taldir öryrkjar skuli veita þessum aðiljum brautargengi í kosningum, því að það er morgunljóst að það hlutskipti lítilmagnans skiptir þá nákvæmlega engu máli.  Heldur er aðalatriðið að halda völdum til að geta haldið áfram að hygla auðjöfrunum sem borga í kosningasjóðina.  Því fyrr sem almenningur gerir sér grein fyrir þessu því betra.

Frjálslyndi flokkurinn.

Frjálslyndi flokkurinn kom fram til að breyta ákveðnum hlutum, fyrst og fremst óréttmætu kvótakerfi, en þeir tóku líka að lífeyrirréttindum og allskonar góðum málum sem brunnu á þjóðfélaginu.  Þeir voru hreinlega þaggaðir í hel af því að það eiga bara að vera ákveðnir fjórir flokkar innan kerfisins, og Frjálslyndi flokkurinn var ógn við það mat.  Þeim tókst samt sem áður að lifa í tíu ár, hinum meira og minna til ama og leiðinda.

 Lokst tókst þeim að hverfa af þingi, mest vegna innri deilna og ósættis, og óheiðarlegra manna sem komu inn í þeirra raðir mestmegnis til að breyta flokknum og gera hann að einhverju öðru.  Það er samt sem áður ekki útilokað að flokkurinn komist aftur upp úr lægðinni, sérstaklega af stjórnarflokkunum tekst ekki að koma skikki á fiskveiðistjórnunarkerfið, sem mikill meirihluti almennings er ósammála.

 

 

Borgarahreyfingin.

Borgarahreyfingin er nýtt afl, sem kemur ferskt inn og virðist ætla að ná því að breyta áherslum.  Vonandi allavega.  Þau koma inn með nýjar hugmyndir og nýja hugsun sem er gott mál.  Og viljan til að breyta þeim gamaldags fornaldar hugsunarhætti sem ríkt hefur á alþingi.  Málið er að ef Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hefðu verið enn við völd í dag, hefðu þau einfaldlega verið kveðin í kútinn og ekkert heyrst frá þem meir.  En sem betur fer, þá ber núverandi stjórn gæfa til þess að leyfa fólki að huga og vera til.  Ég held að einmitt þess vegna munu þeir ná því að breyta og vekja upp nýja hugsun á Alþingi.  Og það er svo sannarlega tímabært.

Það er alveg komin tími á að brjóta upp þetta fjórflokkakerfi og koma á nýrri hugsun og fyrirkomulagi við stjórnun.  Það væri best fyrir okkur alþýðu manna að sem flestir flokkar væru á þingi og sem flestar raddir heyrðust.  Og ekki síður að við, þú  og ég, þyrðum að refsa okkar mönnum, og hygla þeim sem standa sig betur. 

 

Lýðræðið er brothætt og það er alveg sama hversu gott fólk raðast þar í innstu koppa, vald spillir og ef menn endalaust komast upp með sjálfselsku og vinargreiða, þá bara gerist það sem við horfum upp á í dag.  Það er því ekki við hæfi að heimta refsingu fyrrverandi stjórnarmanna, heldur ber okkur að líta í eigin barm og skoða hvort við sjálf höfum ekki brugðist í þeirri skyldu okkar að veita aðhald og halda okkar fólki á tánum, við að gera rétt og vera okkar liðsmenn, en ekki veita þeim leyfi til að nota sér aðstöðu sína til að þyggja fé eða hvað sem það má annars kalla sjálfum sér til framdráttar við að halda völdum.  En einmitt þess vegna er Island rotið eins og gamall hákarl, og það verður meiri þrautin að vinda ofan af þeirri löngu vitleysu, áður en við getum sagt með stolti að við séum þjóð án spillingar.


Karlakórar á ferð og lífið í kúlunni.

Já það er yndislegt veður hér núna dag eftir dag.  Ég að hamast við að koma sölunni í lag, og laga til í skrúðgörðum bæjarins.  Þar er af nógu að taka og dagurinn endist mér ekki alveg.  Á einhver kvóta???LoL

IMG_8283

Svona leit nú samt morgunin út í gær, það var nánast eins og austfjarðarþokana hefði fært sig vestur.

IMG_8287

En svo þynntist hún út og hvarf fyrir sólinni.

IMG_8286

Og enn er sól.

IMG_8269

ég er svona stór!!!!!

IMG_8274

Og meðan litla skottið klöngrast upp á allt, situr sú stóra og föndrar.

IMG_8279

Þetta má ekki!! amma verður reið ef þú skemmir blómin....

IMG_8280

Og þetta er prakkarastríðnisbrosið sem maður fær úr þeirri deildinniLoL Og það þýðir ekkert að æsa sig eða gera neitt annað en að draga athyglina eitthvað annað. Heart

IMG_8281

Og föndrið gengur vel,  margar fallegar myndir sem hægt er að klippa út.

IMG_8284

Og Brandur er búin að finna góðan stað til að leggja sig í hreina þvottinn af því að húsmóðirin hefur ekki gefið sér tíma til að brjóta hann saman og setja á sinn stað. LoL

IMG_8288

SKottið er þarna að moka.

IMG_8291

Moka moka moka!!

IMG_8292

Svona getur hún dundað sér lengi.

IMG_8293

En í gær missti ég af Júrósvisjón því ég var að gera miklu skemmtilegra.  Ég fór sem sagt á tónleika með tveimu karlakórum, þ.s. Karlakórnum Erni og Karlakór Eyjafjarðar.  Þeir voru haldnir í kirkjunni og voru mjög góðir.  Síðan fórum við með rútum að Núpi í Dýrafirði þar sem við snæddum kvöldverð öll saman, og það var mikið sungið.

IMG_8294

Karlakórinn Ernir syngur lög eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.

IMG_8295

Stjórnandi, píanisti og nokkrir kórfélagar úr Karlakór Eyjafjarðar.

IMG_8301

Eyjafjarðarkórinn ásamt stjórnanda, hún var skemmtileg og sagði brandara milli laga.

IMG_8307

Síðan sungu þeir allir saman, það hljómaði vel, allar þessar fögru karlaraddir.

IMG_8308

Eftir tónleikana var svo farið í tvær stórar rútur, áleiðis til Núps.

IMG_8309

Það var gleði í mannskapnum.

IMG_8311

þegar er farið á Núp er ekið gegnum göngin til Flateyrar, inn í þeim var gerður stór hellir, þar stoppa menn gjarnan og fá sér bjór og alla vega í gær tóku þeir lagið þarna inni, þar er þvílíkur hljómburður.

IMG_8313

Lengst inn í fjallinu, erum við stödd.

IMG_8316

Það þáðum við veitingar og ekki af verri endanum.

IMG_8319

Lögreglan stóð á verði, vegna þess að því miður eru göngin bara einbreið á þessum kafla.  En mér sýndist lögreglumaðurinn bara njóta þess að hlusta.

IMG_8320

Og svo var tekið lagið.

IMG_8323

Stjórnendurnir hér og allir sungu saman.  Hljómurinn er rosalega flottur þarna inni.

IMG_8326

Ég hélt mig auðvitað þar sem vínið var hehehe...

IMG_8328

Þetta var rómó, kertaljós inn í berginu.  Ég er viss um að hulduverurnar hafa skemmt sér líka yfir öllum þessum söng og hlátri.

IMG_8334

Þessir tveir norðlendingar komu svo yfir til okkar í rútuna, og sungu af list.

IMG_8335

Og við skemmtum okkur vel, það er ekki hægt að segja annað.

IMG_8340

Komin á Núp, og í kaupfélagið LoL Þar bókuðum við okkur í matinn og ég held að norðlengindarnir hafi gist þar.

IMG_8343

Áhuginn leynir sér ekki, og auðvitað er það Júróvisjón sem dregur athyglina að sér.

IMG_8346

Óhætt að segja að þar sé engin aldursgreining á ferðinni.  En okkar fólk stóð sig vel og við urðum í öðru sæti eins og allir vita.  Og ég segi bara til Hamingju Ísland.  Og Heyja Norge, þeir sigruðu með yfirburðum. 

IMG_8348

Við héldum samt okkar striki og fengum okkur góðan kvöldverð og skemmtum okkur vel fram eftir kvöldi og nóttu. 

IMG_8352

Einn yndislegur svona að lokum.  Símon litli Dagur svaf þegar amma heimsótti hann í morgun.  En sonur minn og tengdadóttir pössuðu Ásthildi litlu og Úlfinn fyrir mig, en Hanna Sól var hjá Siggu mömmu Sigurjóns Dags. 

En nú er ég á leiðinni út í garð að grufla svolítið í moldinni. 

Eigið góðan dag, og munið að hamingjan felst í því sem maður á inn í sér, þ.e. ánægjuna og kærleikann sé það tvennt til staðar, þá bítur ekkert annað á mann.  Knús á ykkur öll.


Bloggfærslur 17. maí 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband