9.4.2009 | 17:34
Gleðilega páska kæru bloggvinir.
Það er steinhljóð í kúlunni núna. Úlfur veit ekki hvernig hann á að vera, amma ég var stundum að kvarta yfir stelpunum en nú veit ég ekki hvað ég á að gera án þeirra sagði hann. Það er svo hljótt í húsinu.
Já þær fóru nefnilega óvænt til pabba síns þessar elskur, flugu suður í morgun. Við afi fórum með þær inn á flugvöll og ég fékk að leiða þær alla leið út í flugvélina og óla þær niður. Þær voru rosaglaðar að fá að fara til pabba síns.
En veðrið var rosalega gott. Ef þið hafið hlustað á veðurfregnirnar í gærkveldi í sjónvarpinu, þá endur tók veðurfréttamaðurinn bara þrisvar að það yrði vont veður á Vestfjörðum, vesta veðrið, það yrði éljaveður og rok á Vestfjörðum, um leið og hann sýndi sól og blíðu yfir allt landið. Annarsstaðar. Stundum dettur manni ýmislegt afskaplega neikvætt í hug, þetta kemur alltof oft fyrir, til að það geti verið bara tilviljun.
Þessi mynd var tekin hálf níu í morgun og þið sjáið auðvitað alla stórhríðina og rokið ekki satt? Nei hér hefur verið mikil flugumferð í allan dag, vegna þess að við erum að fá gesti í heimsókn á Skíðaviku og Aldrei fór ég suður.
Hanna Sól að fíflast við ömmu sína Hún fékk að gista hjá Sigurjóni í gær, og reyndar Úlfur líka, svo við vorum bara einar í kotinu við Ásthildarnar, því afi fór aðeins út á lífið.
Nú er enginn lítil sullukolla sem "sullar niður" eins og hún orðar það. Það er kúkalykt segir hún þegar það þarf að skipta á bleyjunni. Og svo syngur hún hástöfum allur matur á að fara.... eða Úlli Búlli bí, sem er barnagæla sem ég hef sett saman fyrir krakkana, nú eða bara Allir krakkar eru í skessuleik. Vá hvað amma saknar þeirra. Reyndar höfum við nýtt tímann vel í dag upp í gróðurhúsi við að skipta plöntum og gróðursetja.
Það var tilhlökkun í morgun að fara í ferðalag.
Þau fengu smásleikjó til að láta tímann líða fljótar.
Svo vorum við komin út á flugvöll.
Það vildi svo heppilega til að ein fóstran af Tjarnarborg gamla leikskólanum þeirra var einmitt að fara suður og ætlaði að sinna þeim á leiðinni. Besta mál að það var einmitt einhver sem þær þekktu.
Og amma fékk að fara með alla leið út í flugvélina og setja þær í sætin sín. Nú eru þær komnar í skjól hjá ömmu og afa á Hellu. Nú er um að gera að njóta fríisins
En ég óska ykkur öllum gleðilegra páska, og vona að þið hafið það öll sem best!!
Ég er á kafi í að safna saman pappírum vegna framboðsmála Frjálslyndaflokksins. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir hve mikil vinna liggur í því að fá alla pappíra bæði undirskriftir frambjóðenda og meðmælendalistana. Sérstaklega er þetta erfitt úti á landi þar sem langar vegalengdir eru og erfitt að komast milli staða. Hjá okkur eru sjö bændur í fraboði, og sumir búa afskekkt einn bóndinn alla leið á Ingjaldsandi, þangað er ekki fært nema á snjósleða eða á skíðum. Konan sú er ekki með fax eða netpóst svo það eru góð ráð dýr. Þetta mun samt allt saman heppnast, því hér er samstilltur hópur sem vinnur vel og örugglega. Fólk er líka jákvætt og bjartsýnt. Við ætlum svo að opna kosningaskrifstofuna okkar á laugardaginn. Við erum milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, svo við erum í góðum málum. Erum reyndar með gott samstarf við Vinstri græna, þar sem þessir þrír flokkar eru saman í framboði til bæjarstjórnar undir merkjum I-lista. Þannig að við höfum starfað mjög vel saman þetta tímabil. Samvinna er af hinu góða og gott fólk getur alltaf starfað saman og lagt hvort öðru lið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.4.2009 | 00:01
svona hitt og þetta með fallega litla fólkinu mínu.
Það er margt skemmtilegt að gerast í pólitíkinni, og skrýtið nokk þá er þátttaka almennings í þeirri tík algjörlega í lágmarki. Annað hvort er fólk dofið af þem raunveruleika sem blasir við þeim, eða það er algjörlega búið að fá nóg af skrumi, óheiðarleika og innantómum loforðum frá frambjóðendum, sama gamla tuggann aftur og aftur.
Við í Frjálslyndaflokknum hefðum svo sem ekki þurft að skrifa nýja bæklinga, þvi það sem við sögðum og vöruðum við fyrir tveimur árum er það sama í fullu gildi enn i dag. Svona er þetta bara.
Það er líka fyndið hvernig Sjálfstæðismenn lenda endalaust í að þurfa að synda í skítnum sem þeir hafa sjálfir drullað upp, reyna að kenna einhverjum öðrum um og skilja svo ekkert í af hverju þeir hafa ekki hljómgrunn þjóðarinnar!!!. Þeir eru nefnilega vanir því að þurfa ekkert að hafa fyrir velgengninni, sauðirnir hafa alltaf skilað sér vel af fjalli. En þeim hefur heldur betur fækkað, og nú eru bara einstaka sauðir eftir sem trúa blint á almættið. Allir hinir hafa snúið sér eitthvað annað í sinni leit að betra þjóðfélagi, loksins búnir að átta sig á því að það er líf eftir Sjálfstæðisflokkinn. Og farið hefur fé betra, segir og skrifa.
En ég ætlaði að senda nokkrar myndir.
Amma taktu mynd af mér og Brandi, sagði skottan mín í morgun. þau eru bestu vinir og hann kemur alltaf upp til hennar að fá smástrjúk og aðdáun á morgnanna. Nautnadýr þessi köttur.
Skrýmslið litla hræðir hann svo burt.... skil ekki hversvegna
síðasti leikskóladagur fyrir Páska.
Þannig er það bara, gleðin ein.
Það var bara þrítekið í veðurfregnum sjónvarpsins hve versta veðrið yrði á Vestfjörðum yfir páskana, við skulum nú sjá til með það.... Haraldur Ólafsson eða hvað sá ágæti maður annars heitir, gat þess í upphafi veðurfrétta, um miðbik þeirra og svona í restina, svo það færi nú ekki fram hjá neinum að það yrði gott veður um allt land nema á vestfjörðum. Ætli hann sé á prósendum einhversstaðar? segi nú bara svona. En við skulum sjá til, hér skal ég senda út veðurfréttirnar daglega til að sjá hvort það verður svona hræðilegt veður eins og hann þurfti að þrítaka.
en það var sundsýning hjá Hönnu Sól og félögum í gær. Þar voru margri foreldrar ömmu og afar, þessi mynd er tekinn frekar snemma og ekki margir komnir.
Vissuð þið að bringusundið sem við öll þessi eldri þruftum að læra número unó, er erfiðasta sundið. Í dag læra þau það síðast. Hver man ekki að þurfa að vera á hrollköldum laugarbakkanum heillengi til að læra hreyfingarnar? Núna er þeim kennt allt hitt á undan, því bringusundið þarf rosalega samhæfingu líkamans.
Hér eru framtíðar sunddrottningar og kóngar Ísafjarðar.
Og þau stóðust prófið öll.
Fengu ekki bara aðdáun mömmu pabba afa og ömmu heldur líka viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Þau eru okkar framtíð.
Kúlan hefur verið full af yndislegum barnabörnum síðan páskafríið
Reyndar eru þessar elskur botnlausar enda von, þau eru að vaxa og þroskast. Þeirra er framtíðin, og við eigum að hafa það í huga þegar við göngum að kjörborðinu þann 25 apríl. Við eigum ekki að hugsa aðeins um okkar eigin hag eða að það sé svo gaman að vera með í flotta liðinu, þeim sem hafa alltaf ráðið og komið okkur á kaldan klaka. Við eigum að hugsa um hvað verður um börnin og barnabörnin, hvar er þeirra hag best borgið. Þó það sé rosagaman að vera með í Valhallartöffaraslag með flotta fólkinu, þá nær það ekkert lengra en að veita þeim brautargengi til áframhaldandi rústunar, einkavæðingar og klíkuskapar. Hvað eruð þið að hugsa sem veitið þeim þetta vald, en eruð ekki í klíkunni? Mér er það hulin ráðgáta og endilega ekki vera svekkt yfir því að við hin skulum hugsa svona. Þið eruð hvort sem ykku líkar betur eða verr að viðhalda valdastrúktor sem að mínu mati er algjörlega ólíðandi, og mér þætti vænt um að þið útskýrður af hverju þið veljið einmitt það. Ég bara skil það ekki.
En svo býð ég ykkur öllum góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 9. apríl 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar