Gróður - gifting - singstar og bara hvað viljið þið fá að heyra?

Jamm ég sagði ykkur að þessi dagur yrði fullbókaður hjá mér.  Hér er brot af honum.

IMG_7359

Vinnan upp í gróðurhúsi er alltaf svo friðsæl og unaðsleg.

IMG_7362

Svo var komin tími til að opna skrifstofuna okkar í XF.

IMG_7363

Þar var fjölmennt þó ekki hafi verið neitt auglýst opnunin.  Það gefur gott start.

IMG_7370

Hér er fólk á öllum aldri Heart

IMG_7374

Þessar elskur eru framtíðin okkar.  Og þess vegna mikilvægt að vel takist til.

IMG_7379

Formaðurinn okkar undirbýr sig á að fara á hátíðina Aldrei fór ég suður.  Hann hefur gott pláss fyrir auglýsingar LoLHeart Enda kann hann sjálfur að taka á því.

IMG_7382

Margir góðir félagar komu í heimsókn.

IMG_7383

svo var það giftingin.  Auðvitað er flott að geta gefið svona einstaka tækifærisgjöf frá flottum listamanni.

IMG_7386

Athöfnin fór fram á íslensku og spænsku, því hér sameinuðust Ísland og El Salvador í annað sinn í minni fjölskyldu.

IMG_7392
þessi góði maður þýddi jafnóðum orð prestsins yfir á spænsku.

IMG_7398

Isobel og Ísaac Logi fylgdust með þegar pabbi og mamma giftu sig.  Nota bene, svona gengur þetta alls ekki fyrir sig í El Salvador.  Fólkið mitt þaðan hefur þurft að aðlaga sig íslenskri hefð eins og við bara gerum að gifta okkur eftir dúk og disk. 

IMG_7403

'Eg viðurkenni að ég klökkna alltaf við svona athafnir.  Séra Magnús er líka yndisleg manneskja, þó ég sé ekki kristin þá virði ég hann afskaplega mikils sem manneskju.  Brúðurin var í kjól frá ömmu sinni, þessi flotti kjóll var uppháhaldskjóll ömmu hennar í móðurætt. Er það ekki sætt?

IMG_7409

Elsku Rolando og Olga innilega til hamingju með giftinguna, og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda.

IMG_7414

Í dag sameinaðist þessi fjölskylda í eitt.  Ísland- El Salvador.  Megi þeim öllum vel farnast.

IMG_7415

Þetta hér nær er babusas uppáhaldsrétturinn minn frá El Salvador. Maiskökur flott kryddaðar með kjöti og grænmeti inní, og svo rosalega vel krydduðu hrásaladi með og rauðlauk  nammi namm.  Enda var þetta tekið fram yfir rosalega flottar hnallþórur íslenskar.

IMG_7417

En svona er veðrið, og þarna má sjá húsið þar sem Aldrei fór ég suður fer fram, þangað ætla ég á eftir. Þegar ég skrifa þetta er ég að fylgjast með í beinni útsengingu, og núna er Mammút að spila.

IMG_7419

En börnin koma í kúlu til ömmu og afa.  Hér er Evíta litla Cesil.

IMG_7420

Það er bara svo spennandi að koma í heimsókn.Heart

IMG_7422

Tjörnin sko!!! hehehehe...

IMG_7424

Stubburinn fékk singstar um daginn og það hefur verið svona dálítið hávaðasamt undanfarið, hér eru bræðurnir að syngja Abbalag.

IMG_7425

Þetta er náttúrulega hin besta skemmtun þannig sko....

IMG_7426

Svo fórum við á aldrei fór ég suður.... misstum rétt af stórsveitinni, en hlustuðum á frábæra Fjallabræður.  Ég er að hugsa að það skiptir ekki máli þó einhverjir fari.... það er einhvernveginn orkan hér í fjöllunum og umhverfinu sem ekki verður tekin frá okkur.  Það er bara þannig við verðum aldrei drepinn niður, því um leið og búið er að nappa einhvern burtu, koma þrír nýjir í ljós.  Þess vegna erum við.... og við erum flottust!!!

Ég ætla að koma með nokkrar myndir frá hátíðinni seinna, því nú ætla ég að fara að glápa á sjónvarpið, sleepless in Seattle  fyrst og svo Columbo uppáhaldið mitt.  Svo set ég sennilega inn myndir frá Aldrei fór ég Suður mín elskuleg.  Knús Heart

 


Vor í Vín, veður á Ísó og svoleiðis nokkuð.

Það er nóg að gera hjá mér í dag skal ég segja ykkur.  En fyrst að veðrinu.

IMG_7357

Þessi er tekin fyrir um það bil tíu mínútum.  Það er logn  og blíða.  Ég er ennþá bálreið yfir magtuggunni frá verðurfræðingnum á miðvikudaginn um éljaveðrir og rokið sem aldrei kom.  Þetta er nefnilega ekki í fyrsta og verður ekki í síðasta sinn sem menn reyna að koma því að að það sé vont veður á Ísafirði.  Fyrir nokkrum árum að sumarlagi þegar ég var að fara í vinnuna fyrir kl. sjö um morgun, heyrði ég í útvarpinu að það yrði ekki flogið á Ísafjörð og Vestmannaeyjar vegna þoku.  Ég stansaði og horfði upp í heiðskíran himininn og setti puttan út í loftið sem stóð svo kyrrt að það blakti ekki hár á höfði.  Af því að ég er komin með alveg upp í kok á svona vinnubrögðum, þá hringdi ég í fréttamanninn sem þar var.  Ég spurði hvað hann hefði fyrir sér í því að það væri ekki flogið á Ísafjörð vegna þoku.  Nú ég hringdi á flugvöllunn, var svarið.  Nú sagði ég, það er skrýtið hér er glampandi sól og logn.  Getur þú þá staðfest að það verði flogið? spurði maðurinn.  Nei sagði ég, ég er bara kerling út í bæ og get ekki staðfest neitt, en það get ég sagt þér að ef ekki verður flogið á Ísafjörð í dag, þá er það í sjálfu sér stórfrétt.  En ég er nú orðin ansi þreytt á ykkar rangfærslum um veðrið.  HVað heldurðu að ég sitji bara hér og drekki kaffi og segi eitthvað út í loftið, svaraði hann reiður....... já sagði ég einfaldlega, já ég held það bara.  Þegar ég hringdi svo sjálf inn á flugvöll, þá var þar símsvarinn frá kvöldinu áður sem aflýsti flugi þann daginn vegna þoku í REYKJAVÍK.

En ég ákvað með sjálfri mér þegar ég byrjaði að blogga að senda myndir á hverjum degi til að sýna það svart á hvítu að veðrið er ekki svona vont hér, eins og fjölmiðlar hafa komið fólki til að halda.  Og ég hef staðið við það oftast nær.  Hér hafa birst myndir næstum daglega af veðrinu og fólk hefur svo sannarlega séð að hér er oftast dýrindisveður. 

En nóg um það.

IMG_7345

Hér er ennþá allt á fullu á Skíðaviku.

IMG_7346

Stemning, gott veður og örugglega gott færi.  Hér eru líka frábærar gönguleiðir upp á Seljalandsdal og niður í Tunguskógi.  Hér er líka hægt að vera á skíðum langt fram eftir sumri upp á Botnsheiði og Breiðadalsheiði.

IMG_7347

Hér verður svo aðalfjörið í dag.  Aldrei fór ég suður, þeir byrjuðu reyndar í gær, og það var örtröð og bílar allstaðar.  En ég heyri ekki mikið hingað inn.  En aðalslagkrafturinn verður í dag og kvöld.  Þetta húsnæði er nýbyggt af verktakafyrirtækinu KNH, þeir eru mikið í vegagerð og allskonar slíkri verktöku.  Flott hjá þeim að bjóða Mugison og có að hafa hátíðina hér.

IMG_7352

Greinilega hafa mínir fuglar verið þarna og komið heim til að ylja sér.

IMG_7356

Frída hin sænska.

P4106091[1]

Vorið er komið í Vínarborg.  Bára mín sendi mér þessar myndir þaðan.

P4106110[1]

Hér er hún í skólahverfinu.

P4106111[1]

Eins og sjá má er allt komið á fullt þar að blómstra.

P4106121[1]

Ungviðið hleypur um.

P4106165[2]

Hér er svo fallega stelpan mín stóra. Heart

Ég ætla upp í gróðurhús að gera eitthvað gagn.  Við ætlum svo að opna kosningaskrifstofuna kl. eitt í dag. 

IMG_7290

Okkar góða forystufólk hér í Norðvestrinu tilbúin í slaginn. 

Svo fer ég í giftingu kl. þrjú, og svo ætlum við að kíkja á Aldrei fór ég suður hjónin.  Stórsveitin á nefnilega að spila, með Íris Kramer sem stjórnanda og við viljum ekki missa af því.  Svo er stutt að fara bara hér í næsta hús. 

En eigið góðan dag elskurnar mínar.


Bloggfærslur 11. apríl 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023311

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband