29.3.2009 | 19:26
Undir svefninn.
Jæja nokkrar myndir svona út fyrir pólitíkina.
Eins og sést af þessari mynd i dag er komin töluverður snjór hér á Ísó.
Veðrið ekki til að hrópa húrra fyrir. Og viðvarandi í gangi. En þetta er bara Ísland.
Það er nú líka eins gott að hafa góðan snjómokara til að moka okkur út
Prinsessur eru líka til sko!!
Þau kunna að skemmta sér börnin.
Svona líta ekta prinsessur út.
Nei þetta er ekki kolkrabbi, alls ekki þessi sem hrjáir Sjálfstæðisflokkinn, þessir er algjörlega meinlaus.
Og sú stóra mín.
Þetta er maurastúlkan, vonandi sjáið þið fálmarana....
Hér er verið að spjalla við ömmu á Hellu. Kom Gunna Sigga í heimsókn í dag? og svoleiðis hún kann þetta mjög vel þessi elska. Og svo eiga þær von á pakka frá ömmu á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.3.2009 | 11:17
Viðbrögðin við ræðu Davíðs.
Viðbrögðin við ræðunni hans Davíðs eru ýmist upp í himninum eða niður í svarta Hel. Það er með ólíkindum að einn maður geti komið slíku róti á fólk. Svo sennilega hefur hann eitthvað við sig sem tekið er eftir. Fyrir mér er hann bara venjulegur maður, sem hefur náð að sópa að sér völdum og safna kring um sig hirð fólks sem sér ekkert eða heyrir annað en það sem hann lætur út úr sér, trúir öllu sem hann segir og engu sem aðrir reyna að benda á. Sennilega er ekki hægt að tala um venjulegan mann í því samhengi, nema að þessi virðist vera annað hvort algjörlega veruleikafirrtur eða samviskulaus, nema hvort tveggja sé.
Því miður hef ég ekki komist í að lesa ræðuna hans, en ég hef séð glefsur hér og þar, en það eru viðbrögðin sem ég vil ræða.
Það sem stendur upp úr fyrir mér eru þessi orð Davíðs;
"Arftaka sinn í embætti kallaði hann lausamann úr norska Verkamannaflokknum og sagði að enginn hefði áður heyrt þennan mann áður nefndan, ekki einu sinni Google, sem marga þekkti. Þannig hefði enginn þroskuð þjóð áður hagað sér."
Ég veit ekki af hverju Davíð heldur að íslenska þjóðin sé þroskuð þjóð. Ef hún væri það almennt, þá hefði Davíð og Sjálfstæðisflokkurinn ekki setið að völdum óslitið í 18 ár. Þroskuð þjóð hefði fyrir löngu síðan hent þeim út á hafsauga.
Þroskuð þjóð hefði ekki sett gamla pólitíkusa í æðstu stöður landsins eftir áratuga þaulsetu við stjórn landsins.
Þroskuð þjóð mun ekki veita Sjálfstæðisflokknum brautargengi í næstu kosningum. Ef þjóðin væri þroskaðir sjálfstæðir einstaklingar myndi Flokkurinn ekki koma manni að í næstu kosningum.
Viðbrögðin við þessu skítkasti eru brandari út af fyrir sig. Það hefur verið rækilega sannað fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki pólitískt afl, heldur trúfélag. Eins og Hannes Hólmsteinn orðaði það svo ágætlega. Sjálfstæðismenn er fólk sem vill hafa sterkan leiðtoga sem hugsar fyrir þá. (mann ekki orðrétt) Þeir vilja græða á daginn og grilla á kvöldin.
Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í hnotskurn. Þeir vilja sterkan leiðtoga, þess vegna gráta þeir Davíð nú. Þeir vilja græða á daginn, og gerðu svikalaust svo að öll þjóðin er lömuð, grillið verður svo að bíða aðeins, meðan þeir einbeita sér að því að fá fólk til að veita þeim áframhaldandi brautargengi við kjötkatlana svo þeir geti byrjað að gefa vinum og vandamönnum aftur banka og önnur verðmæti.
Ég hef aldrei verið hrifin af Vilhjálmi Egilssyni, hann er dæmigerður spenapólitíkus sem notið hefur þess að vera sogfastur á spenanum. En ég held samt að hann hafi ekki átt skilið þær trakteringar sem foringinn veitti honum i lok ræðu sinnar.
Ósmekklegheitin voru víðar; Seðlabankastjórinn nýji fékk sína sendingu, Jóhanna Sigurðardóttir og margi fleiri. Og fólkið gapir yfir snilldinnin hjá foringja sínum. Það var dramatísk þögn eftir að hann lauk máli sínu og svo var klappað kannski ekki í klukkutíma eins og vera bar í Rússlandi, en örugglega alveg heillengi.
Það má sjá á bloggsíðum andsvörum og spjallrásum að sjálfstæðismenn halds ekki vatni yfir snilldinni. Setningar eins og þarna jarðarði Davíð Samfylkinguna, eða niðurlæging Baugsliðsins algjör og svo framvegis. Tek samt eftir að það er ekki orðað neitt um Vinstri Græna. Það er sennilega verið að halda einhverjum dyrum opnum um að komast í sæng með þeim eftir kosningar.
Ég veit fyrir víst að á fundinum voru öryrkjar, gamalt fólk og verkamenn og aðrir sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sparkað í gegnum tíðina. Samt fer þetta fólk hnarreist á fundi og dásamar forystuna. Ef það er ekki að kyssa á vöndinn þá veit ég ekki hvað. Mér líður eiginlega hálf illa við að hugsa til þessa fólks, vil ekki kalla það kjána, en ég á eiginlega ekkert annað orð yfir það. Hugsunin er enginn, það er ekki lagt saman tveir og tveir og fengið út fjórir. Heldur hanga menn í þessari gloríu og flottu fólki og finnst mikið til koma að fá að vera með í þessum glæsilega hópi. En gerir sér enga grein fyrir að þau eru þarna eingöngu sem atkvæði til að halda fína fólkiniu við völdin. Sorrý þið, en þetta er bara mín meining.
En það gerðist samt dálítið gleðilegt; það gengu nokkrir út undir ræðunni. Nokkrir fengu nóg, það nægir þeim ef til vill ekki til að fara úr flokknum, því flestir skila sauðirnir sér heim til slátrunar, en það sýnir samt að einhverjir þarna eru hugsandi fólk, sem ofbýður og þorir að sýna það.
Sumum finnst ef til vill að ég sé hörð í dómum mínum hér. En ég er alveg gáttuð á því að það sé til fólk sem ennþá treystir ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir fjöreggi sínu fjölskyldunni og lífinu. Stendur á brunarústunum með eldspýturnar og olíuna tilbúna til að rétta þeim, svo þeir geti haldið bálinu áfram. Og að það skuli enn þora að segja það upphátt, heldur er þar á ofan stolt yfir því. Hvað gerist í hausnum á slíku fólki? Ég bara spyr. Ég skil þá sem eru með silfurskeiðar í munninum, og réttbornir í stöðurnar sem bjóðast. En þeir sem náðarsamlegast fá að koma til að greiða atkvæði sitt, hafa lítið til að vera stoltir yfir.
Mig langar til að höfð til skynsemi fólks sem er farið að hugsa lengra en það að Davíð sé Jesú Kristur og hinir postularnir. Kjósið eitthvað annað en þessa spillingu. Hvað sem er. Vinstri græn og Samfylkingin hafa sýnt góða takta nú við stjörnvölin. Þó mér finnist að þar megi koma inn rödd Frjálslynda flokksins, til dæmis í Sjávarútvegsmálum, og ég tel að stjórnin yrði sterkari með okkur innanborðs. Borgaraflokkurinn er líka góð lausn fyrir fólk sem vill breytingar, margt gott og heiðarlegt fólk þar. En fyrst og fremst lesið ykkur til um stefnumál flokkanna, en ekki bara það heldur skoðið hvað þeir hafa haft fram að færa, það er til dæmis fróðlegt að skoða frumvörp frá stjórnarandstöðunni sem ekki hafa fengið brautargengi á þinginu, eins og frumvarp Frjálslynda flokksins um afnám verðtryggingar, sem Sjálfstæðismenn þykjast nú ætla að framkvæma, en gerðu ekki meðan þeir gátu það.
Við höfum ekki efni á að láta reka á reiðanum. Við verðum að velja að natni og heiðarleika það fólk sem við teljum að geti bjargað þjóðinni frá glötun. Og ég vil að við gerum það sjálf. Það fólk sem heimtar að við förum inn í ESB er að mínu mati landráðafólk, hvorki meira né minna. 'Eg get skilið að það sé ríkulegur áhugi á að fá okkur inn, því þeir geta ekki beðið með að koma höndum yfir auðlindir okkar, fiskinn, heitavatnið og ekki síst okkar hreina ómengaða vatn. Það er hreinn og klár barnaskapur að halda að útlendingar vilji okkur inn af einhverri góðsemi. Hún er því miður sjaldgæfari en hvítur hrafn. Látum ekki landið okkar í hendur annara baráttulaust. Og látum ekki Sjálfstæðisflokknum takast að plata okkur eina ferðina enn með að koma þeim til valda.
Svo óska ég ykkur öllum góðs þennan dag, sem er frekar hryssingslegur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 29. mars 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar