Myndir og ýmislegt fleira.

Málþóf eða ekki málþóf.  Mikið rosalega eiga sjálfstæðismenn bágt þessa dagana, þeir ráða nefnilega ekki ferðinni aldrei slíku vant.  Og svo er auðvitað hundleiðinlegt að fara ofan í sama hjólfarið og þeir hafa hvað eftir annað sakað hina um.  Þeir hafa greinilega verið að fylgjast með hvað hinir í sandkassanum voru að stríða og aðhafast, og nota nú það sama, nema þeir gera aðeins meira, eins og öll hrekkjusvín gera náttúrulega.  En málið er bara að í þetta sinn, þá er meiri alvara á ferð, og fólki ekki hlátur í hug, hvað þá ánægja með pissukeppni.  Þeir standa því á berangri hallærislegri en nokkurn tíman áður og fólk er búið að fá gjörsamlega upp í kok.  Ég allavega.  Ég fæ klígju þegar ég sé brosandi smettinn á sneplunum sem berast inn um lúguna hjá mér, eða ég sé birtast af þeim myndir og greinar þar sem við erum beðin um að standa með þeim.  Í hverju? svo þau geti haldið áfram að brenna sinuna?

Ég bið þess einlæglega að við fáum frið fyrir þessu fólki næstu árin eða áratugina.  Svo samfélagið geti jafnað sig á þeirri stefnu sem þau mörkuðu og virðast ætla að fylgja, því ekkert er að stefnunni segja þau, það var fólkið sem brást.  Eða eiginlega brást enginn, þetta var bara svona, og ekki þeim að kenna á neinn hátt, það má benda á alla aðra en þau.

Úff ég get svo svarið það og segi eins og svo oft hefur heyrst áður BURTU MEÐ ÞETTA LIÐ. 

Nú en ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir fyrir mömmur og svoleiðis fólk.

sur

Eins smá sybbinn að fara á leikskólann, en hún er fljót að ná góða skapinu sínu, því hún elskar að fara á leikskólann.

sur2

Sigurjón Hrannar Dagur hehehehe.... þetta er sagt fyrir Hrönn, fékk að sofa hjá afa og ömmu í gær, af því að mamma þurfti að skreppa.  Og Hanna Sól las fyrir hann kvöldsöguna og það fór vel á með þeim.

sur3

Þau sofnuðu svo fljótt og vel, svo þæg og góð.

sur4

Og í morgun var sest aðeins við sjónvarpið og svo morgunverður eins og alltaf.

IMG_6477

Og svo er að fara á leikskólann, þau eru að visu í sitt hvorum, hún á Sólborg hann á Eyrarskóli, þar er hjallastefnan hennar Pálu á fullu.

sur5

Afi sá svo um litlu skottuna í morgun, þau fóru saman á Bakkaskjól.

sur6

Það er komin dágóður snjór við kúluna, svo það þarf að feta sig áfram eftir troðningi. 

sur7

Þá er nú eins gott að vera í góðri þjálfun. 

IMG_6385

Hér er Ólöf Dagmar, í bekknum hennar þá fá krakkarnir að koma með sögur sem kennarinn les fyrir þau.  Ólöf Dagmar ákvað að koma með bókina sem amma samdi um krakkana í kúlunni; Ævintýri Loðfílanna.  Og nú er verið að lesa hana sum sé í bekknum hennar Ólafar Dagmar.  Vonandi líkar krökkunum sagan, hún gerist allavega á svæði sem þau þekkja vel.

En ég ætla að fara blogghringinn á morgun, og segi bara við ykkur góða nótt Heart


Bloggfærslur 10. mars 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband