Krúttfærsla.

Smákrúttfærsla.

IMG_5549

Tók þessa fallegu mynd í gær.

IMG_5550

eins og sjá má baðar sólin kúluna mína.

IMG_5551

Súgandafjöðurinn í gærmorgun alltaf jafn flottur.

IMG_5553

Amma sjáðu fjallið er bleikt, hrópaði Hanna Sól!.

IMG_5554

Og svo sannarlega virtist það vera bleikt.

IMG_5556

Sól og máni kallast á.

IMG_5559

Og svo kom mamma heim.

IMG_5566

Og amma fékk nýja linsu að gjöf fyrir allar myndirnar InLove

IMG_5568

Já það voru fullt af pökkum og ekki afmæli.

IMG_5571

Og meira að segja kanínueyru.

IMG_5578

Alveg tilbúin í sundtímann.

IMG_5588

Og svo var pússlað.

IMG_5594

Ein lítil kanína.

IMG_5596

Rosaflottar kanínur.

IMG_5602

Ásthildur fékk líka flott sundföt.

IMG_5622

Og Evíta litla kom í heimsókn.

IMG_5624

Flottust Heart

IMG_5625

Þær eru góðar saman frænkurnar.

IMG_5632

Hún er líka pabba stelpa og svolítið abastelpa líka hehehe, kallar afa sinn aba.

IMG_5635

Þær skemmta sér vel saman þessar litlu dúllur.

En svo smá prufa náttúrulistaverk.  ég varð auðvitað að prófa nýju linsuna mína hehehehe..

IMG_5612

Það er margt sem er fallegt, en við tökum ekki eftir af því að það er bara svo sjálfsagt.

IMG_5614

Þetta er eins og með himnagalleríið, kostar ekkert en er svo dæmalaust fallegt.

IMG_5615

Hárfínt hýjalín, en svellkalt.

IMG_5618

Margar myndir sem ísdrottningin myndar.

IMG_5619

Og himnagalleríið er líka opið.

En ég segi bara góða nótt sofið rótt, og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda. Heart Takk fyrir mig.


Smávegis frá mínu eigin brjósti.

 

Ný ríkisstjórn og fólk bíður.  Þetta er samt sérstakt ástand, því þessi ríkisstjórn er bara til bráðabirgða, og hún er líka minnihlutastjórn, líf hennar ræðst af því hvernig Framsóknarflokkurinn spilar.  Það þarf ekki að vera slæmt.  En þegar maður veit að það er los á forsvarsmönnum Framsóknar og formaðurinn er utan þings, þá einhvernveginn virkar það ekki alveg nógu traustvekjandi, þegar takast þarf á við verulega erfið mál, sem vissulega hugnast ekki öllum.   Hefur hinn nýji Framsóknarflokkur það bakbein að standast áskorunina, eða mun hann flýja í fangið á Sjálfstæðisflokknum, sem mun taka honum fagnandi.  Hingað til hefur þessi flokkur ekki sýnt á sér þá hlið að hann standi fast á þjóðþrifamálum, þvert á móti hefur hann endalaust verið opin í báða enda, svona já já nei nei flokkur.  Og ekki síður hefur hann verið flokkur hina löngu hnífa, þar sem menn stinga hvern annan í bakið, til að komast sjálfir að. 

Ég vona samt innilega þrátt fyrir allt, að Jóhönnu Sigurðardóttur takist að halda utan um allt þetta erfiða verkefni.  Það hafa flestir trú á henni, og það mun mikið mæða á henni næstu vikurnar.   Og öfugt við framsókn, þá hef ég fulla trú á því að Jóhanna standist það álag.  Hún er vel sjóuð í pólitíkinni og ákveðin, ósérhlífinn einstaklingur sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna.  Hún mun reyna bjarga því sem bjargað verður, engan tel ég hæfari í það en einmitt hana. 

Næstu vikur verða erfiðar, og ég óttast að ef fylgið fer að fara niður hjá þessum þremur flokkum í skoðanakönnunum, þá fari líka einbeitinginn og farið verði í sömu skotgrafir og áður.  Sum sé kosningaham og loforð út og suður. 

En það er okkar ágætu landsmenn að hlú að því að svo verði ekki.  Bæði með því að gefa stjórninni vinnufrið, og líka með því að sofna ekki á verðinum.  Við þurfum að fylgjast með og láta vita af því um leið og okkur finnst vera farið út af brautinni.   Núna þegar við sjáum hvað áorkast hefur með pottum og pönnum, þá má ekki sofna aftur og hugsa að þetta reddist.  Það gerir það nefnilega ekki ef við slökum á. 

Við þurfum að fylgjast með hvað verður úr endurskoðun stjórnarskrárinnar.  Það er bruðl til dæmis að hafa 63 þingmenn í landi sem telur um 300.000 manns.  Helmingur þess fjölda ætti að nægja, og enga aðstoðarmenn.  En ef til vill virkara ráðuneytisfólk.  Mér skilst á fólki sem vit hefur á, að í ráðuneytum sitji margir gamlir fauskar sem ráða því sem þeir vilja ráða, draga lappirnar ef þeim finnst ekki um málatilbúnaðinn og stinga undir öðru undir stól.  Þess vegna þarf sennilega ekki síður að yngja upp í ráðneytunum en stjórnmálaflokkunum.  Embættismannakerfið er ekkert síður spillt en pólitíkusarnir, því annars hefði spillinginn aldrei náð þeim hæðum sem hún gerir í dag.   Það segir bara að allt heila apparatið er gegnumsýrt af spillingu.  Þá þýðir lítið að segja nýtt fólk í ráðuneytin sem ráðherra, en hafa gömlu settinn áfram vinnandi út frá sínum eigin forsendum. 

Ef hægt er að komast af með að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu og hann síðan virki sem forseti, þá er það heilmikill sparnaður sem vinnst með því.  Þetta embætti sýnir sig að vera mest svona glamour sem við höfum ekki efni á við þessar aðstæður.  Með fullri virðingu fyrir  Ólafi Ragnari og Dorrit sem ég hef persónulega mikið dálæti á sem manneskju. 

Einnig vil ég sjá að það verði skorið meira niður í utanríkisþjónustunni, til dæmis væri hægt að vinna meira með öðrum norðurlöndum um sameiginleg sendiráð, eins og til dæmis í Japan og Þýskalandi.  Þar mætti bæði spara stórt og fá inn pening fyrir þær hallir sem þar eru fyrir okkar fulltrúa.  

Einnig ættum við að fylgjast með hvort ráðherrar taki sér ráðherrabíla og einkabílstjóra.  Það er líka bruðl.  Það má í þessu sambandi segja; yfir litlu varstu trúr yfir mikið mun ég setja þig.  Þó segja megi að það muni ef til vill ekki mikið um einn bíl og bílstjóra til eða frá, þá er þetta táknræn gjörð, og segir meira um einstaklinginn í raun, hvað svo sem hann talar og galar. 

Ég satt að segja veit ekki alveg hvernig mér líður þessa dagana. Það er léttir að hafa losnað við hrokafullt sjálfstæðisfólk út úr stjórnarráðinu, og það verður vissulega forvitnilegt að fylgjast með þeim í stjórnarandstöðu, ef þeim tekst ekki að kaupa framsókn til fylgilags við sig.   Ég veit heldur ekki hversvegna eða á hvaða tímapunkti Frjálslyndi flokkurinn datt út úr því að styðja ríkisstjórnina,  hvort forystumenn þar hættu við, eða hvort þeim var skúffað út.  Ég bar mikla von í brjósti um að Guðjón Arnar myndi koma þar við sögu og aðstoða við að endurreisa sjávarútvegsmálin og beyta kvótakerfinu, til þess treysti ég honum best.  Enda er Frjálslyndi flokkurinn eini flokkurinn sem aldrei hefur kvikað frá því að berjast fyrir afnámi óréttláts kvótaframsals. 

Ég er líka hugsi yfir hvernig mótmælendum reiðir af, hvernig það fer með fyrirætlan um að breyta stjórnarskránni í anda Njarðar P. Njarðvík, nú þegar ríkisstjórnin ætlar að gera eitthvað í þeim málum, verður það ásættanlegt, eða rísa upp margar fylkingar sem berjast um brauðið. 

Besta væri að við gætum öll snúið bökum saman við endurreisnina.  Ef okkur auðnaðist að standa nú einu sinni saman sem þjóð, og láta hagsmuni fólksins ganga fyrir bákninu.  Ég óttast samt að fyrr frjósi í helvíti áður en það gerist.  Það eru alltaf hluti manna sem hugsa fyrst og fremst um eigin hag, og eigið rassgat.  Þó fagurlega sér talað, þá fylgir hugurinn ekki máli.   Þess vegna er svo mikilvægt að við lýðurinn fylgjumst grannt með og geymum búsáhöldin okkar á góðum stað, þar sem auðvelt er að grípa til þeirra, svona rétt si sona til að minna þetta ágæta fólk á að við erum þjóðin, við erum fólkið sem ætlum að lifa í þessu landi, og að við viljum fá að vera með í endurskipulagningunni. 

Ó kom þú Nýja Ísland, von okkar og fróm ósk um nýtt siðgæði, nýja vitund, frelsi og þjóðarhag.


Bloggfærslur 3. febrúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband