Maskar, mamman og fiskarnir.

Við hér á Ísafirði möskum á mánudeginum bolludag.

IMG_6169

Kátir maskar.

IMG_6167

Sumir voru með einkabílstjóra hehehe... En það er gaman að þessum sið.  Og þetta hefur lítið breyst síðan ég var krakki. Nema búningarnir eru oftast viðameiri og flottari í dag.  Við vorum gjarnan í búning búnu til úr sængurveri málað andlit á og klippt út fyrir munninn, svo var erfitt að troða bollum gegnum gatið, og var hin besta skemmtun fyrir gefendurna.  En það voru líka maskaböll og þar var oft mikið lagt í búninga.

IMG_6172

á leið á leikskólann.  Þær hafa skipt um leikskóla, Hanna Sól er á Sólborg, sem er miklu stærri skóli og Ásthildur í Bakkaskjóli sem er lítill skóli í Hnífsdal.  Þær eru mjög ánægðar í þessum skólum, alveg eins og á Suðureyri.

IMG_6176

En svo er komin kveðjustund.  Mamma er farin aftur til Vínar og hversdagsleikinn tekinn við.  Við vorum allar dálítið sorgmæddar í gær svo gengur lífið bara sinn vana gang.

IMG_6179

Beðið eftir flugvélinni.

IMG_6180

Skyldi hún vera að koma.

IMG_6182

Ja þarna kemur hún til að taka mömmu í burtu.

IMG_6184

Bless elsku mamma mín, sjáumst í sumar Heart

IMG_6187

Og Júlli vinnur hörðum höndum að því að gera listaverk sem samanstendur af mörgum fiskum.  Segi meira um það síðar. 

Eigið góða nótt elskurnar mínar. Heart


Ertu nokkuð á leið í Sjálfstæðisflokkinn Kristinn minn?

Ég var undrandi þegar mér barst það til augna gegnum Vísi.is að Kristinn H. hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslyndaflokksins.

 Það eru nefnilega ekki nema fjórir dagar síðan við vorum saman á kjördæmaráðsfundi að Reykjum, þar sem hann hélt skelegga ræðu um stöðu flokksins og bauð sig fram í fyrsta eða annað sætið í Norðvesturkjördæmi.  Það voru fimm manneskjur sem buðu sig fram til forystu þar, svo ákveðið var að efna til póstkosninga og er undirbúningur þegar hafinn að því. 

IMG_6143

Hér talar Guðjón Arnar.  Þetta var góður fundur og mikill hugur í mönnum um uppbyggingu og bætta stöðu flokksins.

IMG_6146

Hér tekur Kristinn svo til máls og ræddi um stöðuna og var ekki annað hægt að heyra en hann vildi leggja sitt af mörkum.  Bauð sig svo fram í fyrsta og eða annað sætið hér fyrir vestan.

Þar var reyndar fríður flokkur Sigurjón Þórðarson bauð sig fram í hvaða sæti sem var, Ragnheiður Ólafsdóttir bauð sig fram í annað sætið, Magnús Þór einnig.   Þetta er öflugur hópur og góður.

Það var svo ákveðið að efna til póstkosninga meðal þessa ágæta fólks. 

Þetta er dálítið snubbótt útganga að mínu mati Kristinn minn, svo mér er dálítið þung í sinni þú fyrirgefur.   Af því tilefni komu þessi brot upp í hugann.

 

Frjálslyndiflokkurinn.

 

Fúasprek og kalakvistir

 

Keppast við að skipt‘ um vistir.

 

Stendur eftir stofninn hreinn.

 

Stífður vel og tálgabeinn. 

 

 

Kætast munu karlafans

 

Kíma beint til andskotans.

 

En við munum aftur rísa.

 

Enn á ný og málin prísa. 

 

 

Okkar stefna öll er skýr.

 

Öðrum betri, við mér snýr.

 

Þó móti blási þetta fokk.

 

Við munum rétta okkar flokk.  

 

 

Mestu skipta málin góð.

 

með þeim alla tíð ég stóð.

 

Leitt mér þykir lýðsins tal.

 

Að leikslokunum spyrja skal. 

 Við erum þá sem sé kominn aftur til upprunans. Við því er ekkert að gera, en það er ekki inn í myndinni að gefast upp fyrr en í fulla hnefana.  Þó gefin hafi verið út dagskipun um að þegja okkur í hel, af stóra helbláa flokknum, sem aldrei hefur þolað tilvist okkar, þá skulum við berjast ótrauð áfram samt. 

Og þó okkur takist ef til vill ekki að saxa af ykkur atkvæðin, þá legg ég á og mæli um að það muni verða gert af einhverjum.  Það er komið nóg af ykkur, og þið hafið fengið nóg frá okkur. 

Ef þið haldið að þið eigið ennþá eitthvað inni hjá þjóðinni þá er það misskilningur.  Hvað sem þið æpið og ljúgið, þá veit fólkið hverjum það er að kenna að þjóðin er hnýpin í sárum, og hver það var sem ykkur stóð að baki lengstan tímann.  Ég ætla allavega að gera mitt til að það gleymist ekki.


Bloggfærslur 26. febrúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband