21.2.2009 | 17:28
Þorrablót og frumsamið ljóð.
Ég er að fara á þorrablót í kvöld. Þá verður frumflutt lag Baldurs Geirmundssonar við ljóðið mitt um Fljótavík. Baldur útsetti lagið fyrir kór, og það var dálítið sérstakt að heyra heilan kór fara með ljóðið mitt. Ég er mjög stolt af þessu.
Fljótavík.
Einn á ég unaðsreit.
Engan ég betri veit
Paradís, prýði slík
Perla engu lík.
Ég löngum þar legg mína leið.
Þar lífið er auðnan greið.
Í norðrinu fagra og falda.
Þú fryssandi hvíta alda.
Syngur við kvöldsins kyrrð.
Mín fagra Fljótavík
Af friði ertu rík.
Þögnin er eðal þitt
Þakklætið er mitt.
Tiplar þar tófa létt um sand.
Tilheyrir henni það land.
Í ánni svo silungur syndir
Sál mín þann unaðinn fyndir,
fylgja þar landvætta hirð.
Svo Dísir á ströndinni dansinn sinn stíga.
Stormurinn ógnandi brýtur þar land.
Öskrandi helkaldar öldurnar hníga
Og ærslandi leika við fjörunnar sand.
Svo hljóðnar Ægisönd
Og andar sær við strönd.
Létt fer um vog og vík
volgran engu lík.
Hvíslar angurvær og hlý
hafsins golan enn á ný.
Og lýðurinn gleðst yfir ljóði.
landsins, og biður í hljóði
Um hollvætta nálægð og firrð.
Þú ert reyndar alls engu lík
Mín ástkæra Fljótavík.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir 9. október 2008.
En í dag hefur staðið yfir afmælisveisla fyrir Hönnu Sól, hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á mánudag. En mamma hennar og pabbi ákváðu að halda upp á það í dag. Hér er búið að vera fjör. Ég set inn myndir af tertunum seinna. Tinna tengdadóttir á mestan heiðurinn af kökunum, en notaðar voru uppskriftirnar hennar Sigrúnar bloggvinkonu. Takk fyrir það Sigrún mín. Í kvöld eru svo unglingarnir með hrekkjavökupartý, hér verða um 10 unglingar, Bjarki ætlar að baka pizzur og það verður allskonar gúmmilaði. En við verðum sum sé á Þorrablóti, eða réttara sagt Góublóti. Konudagurinn á morgunn og alles. Þá ætla ég að skælast alla leið norður í Húnavatnssýslu í Reykjaskóla á fund. Elli minn ætlar að aka mig, en það er kjördæmaráðsfundur hjá Frjálslyndum.
Hönnuðurinn Hann Sól með sýningarstúlkuna sína.
Amma á Hellu sendi henni skólabækur, sem hún er mjög ánægð með, reiknisbók og lestrarbók, nú þarf að læra að lesa. Hér er verið að vinna verkefnin.
Þetta er alveg kjörið hrekkavökuveður. En ég óska ykkur góðrar helgi mín kæru. Og góða skemmtun. Ég er ákveðin í að skemmta mér vel.
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Bloggfærslur 21. febrúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar