17.2.2009 | 21:06
Karlarnir í lífi mínu.
Það er búið að vera heilmikið að gera hjá mér fyrir utan vinnuna. Aðlögun hjá stelpunum á nýjum leikskólum, Guði sé lof fyrir að mamma þeirra er hérna núna, kennarafundur hjá stuppnum, og svo dittedatte annað.
En dóttir mín sagði við mig um daginn, hefurðu ekki sett inn myndir af karlmönnunum í lífið þínu mamma. Nei sagði ég, mér hefur ekki dottið það í hug.
Þú verður að setja inn myndir af þeim, sagði hún ákveðin. Svo hér koma þeir þessar elskur. Ég er eini kvenmaðurinn á mínum vinnustað, og er borin á höndum.
Þeir mæta tímanlega á morgnanna og bíða eftir verkefnum. Sumir fara út að moka snjó, aðrir upp á skíðasvæði að vinna við lyfturnar. Þeir setja niður haustlauka og bara gera það sem gera þarf.
Hér má sjá Steina, hann er hestamaður meðfram sinni vinnu á skíðasvæðinu og í öllu sem þarf að gera í verkamannavinnu.
Þarna er svo Doddi yfirverkstjóri, hann er líka í hestunum og skemmtilegur karl.
Hinum myndunum er smellt af í kaffitímanum.
Þetta er hann Guðni, hann er afskaplega hagur maður, hér er hann að laga stytturnar hans Simsons og gerir það vel eins og allt annað.
Kaffitímana notar hann svo til að smíða svona skip, þetta er björgunarskipið okkar, það á eftir að málast og gera klárt.
Þetta er hann Bjössi, hann leggur á flótta út úr kaffistofunni þegar við byrjum að ræða pólitík.
Óli heldur um alla þræði í áhaldahúsinu, gerir við allt sem bilar svona smálegt, og hefur bókhald um allt sem kemur inn og út. Ég veit að hann sparar bænum fleiri þúsundir á hverju ári með því að passa vel upp á allt sem honum tilheyrir.
Svo er Svenni hann er gröfukarl og eðalgrillari í ferðalögum sem við skellum okkur í á sumrin.
Jónas er verkstjóri og svo er hann í karlakórnum Erni.
Flosi er viðgerðarmaðurinn og hann gerir við allt sem bilar í bílunum og tækjunum. Á sumrin þeysist hann um fjöll og firnindi sem rútubílstjóri með erlenda ferðamenn.
Hjálmar er líka gröfukarl og svo er hann bóndi í Hrauni.
Hér er Ari fróði. Hann veit afskaplega mikið, þekkir mjög víða til og er hafsjór af fróðleik. Ari er hinn íslenski verkamaður sem er vel lesin og víðsýnn. Svoleiðis er margt alþýðufólk þessa lands, ég held að það sé ekki víða erlendis sem maður rekst á svoleiðis, og ber að virða slíka menn.
Það vantar örugglega einn það er hann Jói, Jói er alltmúligmaður í áhaldahúsinu, hvort sem það þarf að grafa eitthvað, höggva tré eða senda í hafnarvörslu á firðina í kring, þá er kallað í Jóa. Hann er líka í björgunarsveitinni.
Þetta eru karlarnir mínir í áhaldahúsinu. Okkur kemur alltaf vel saman, og við eigum oft ágætis stundir saman förum meira að segja í ferðalög. Ég er ánægð með mína vinnufélaga og móralinn hjá okkur. Og svo eiga þér líka afskaplega yndislega konur þar á ofan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Bloggfærslur 17. febrúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar