15.2.2009 | 22:38
Ég fór í leikhús.......
Ég fór í leikshús í gær og ég skemmti mér þvílíkt vel.
Þetta var úr leiksmiðju Jóns Múla og Jónasar Árnasona unnið upp af Elvari Loga bloggvini mínum og leikhúsmanni. Við heimtum aukavinnu heitir afurðin, en er mest söngvar og skemmtilegheit upp úr verkum bræðranna góðkunnu.
Ég verð að segja að þetta var frábær skemmtun, Elvari Loga tókst vel upp eins og hans er von og vísa, hvergi dauður punktur, leikgleðin réði ríkjum og sum atriðin óborganlega fyndin, því miður mátti ég ekki taka myndir á sýningunni, en reyndi að nappa myndum eftir hana.
Hér sést uppröðunin, það var líka opinn bar og fólk gat setið með bjór og rauðvín og virkilega slakað á.
Þetta er eitt af lokaaatriðunum, þegar leikararnir fara út í sal og sækja eitt stykki Jörund Hundadagakonung setja á hann kórónu og hylla hann.
Þau voru óborganlega fyndinn. Ég horfi með mikilli bjartsýni á Litla leikklúbbinn með allt þetta unga skemmtilega fólk innanborðs. Og það var ekki hægt að sjá að þau væru ekki professional, það skrifast að einhverju leyti á Elvar Loga, en líka á þau sjálf og þá útgeislun sem þau hafa.
Ég get bara sagt fyrir mig að ég grenjaði af hlátri á stundum.
Hljómsveitin var líka flott, enda Gummi Hjalta þar í forsvari.
Þetta stelpuskott syngur hreinlega eins og engill. Og það var ekki síst hún sem gaf sýningunni þetta frábæra yfirbragð.
Þau voru ótrúlega flott öll sem eitt.
Baksviðs, ég vildi fá þau til að pósa fyrir mig eftir sýningu, en á laugardagskvöldi eru allir að fara að gera eitthvað. Ég sé eftir að hafa hlýtt reglunum og ekki tekið myndir af þeim meðan á sýningunni stóð, þá hefðuð þið séð hve flott þau voru.
Palli minn ansi þungur á brún hehehehe... gamall í hettunni, en þetta eru reyndar Skuggasveinn og Ketil skrækur.
Að öllum öðrum ólöstuðum fór þessi unga dama svo gjörsamlega með mig þegar hún söng fylleríislagið sitt, og brilleraði þvílíkt, þessi með Smirnovið Elín Sveinsdóttir, Guð minn góður hvernig er hægt að vera svona fyndinn...
eins og í heyrt og séð, slummað og sleikt og soleiðis eigum við okkar stjörnur líka, hér eru Harpa og Gauji litil okkar, flott í leikhúsinu, þau þekkjast út körfuboltanum og Ísfólkinu.
Ásthildur ekki taka mynd af mér!!! hehehe Guðrún á Rúv að skemmta sér
Elvar Logi enn eitt skiptið hefurðu sýnt hve mikill snilli þú ert að vinna með fólki. Þetta var áreynslulaus sýning, gekk snurðulaust og aldrei nokkur glufa, allt smalll vel saman og allt var bara ótrúlega gott og skemmtilegt. Ég átti yndislega stund í leikhúsinu okkar, og vil bara þakka innilega fyrir mig. Á svona erfiðum tímum er nauðsynlegt að geta hlegið og skemmt sér, ég ætla bara rétt að vona að þessar sýningar verði fram yfir páska, og vil virkilega hvetja fólk til að fara og upplifa skemmtun sem stendur fyllilega undir væntingum. Batnar örugglega ef eitthvað er. Ég vildi samt óska að ég mætti vera á einni sýningu og taka myndir af öllum þessum skemmtilegum mómentum sem verkið býður upp á.
Elsku LL, Elvar Logi og leikara, söngvarar tónlistarmenn, og allir baksviðs innilega takk fyrir mig, luv jea. Og er rosastollt af ykkur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Bloggfærslur 15. febrúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar