12.2.2009 | 10:50
Þroskasaga karlanna!!!
Svona til gamans í hugleiðingu vegna jómfrúarræðu Ragnheiðar Ólafsdóttur á Alþingi í gær.
1.
Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni
því miklar verða breytingarnar á líkamsstarfseminni.
Mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið
þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið
.
2.
Svona kringum fermingu þá fá menn bassaróminn
og finnast vera tilbúnir að kenna leyndardóminn.
En þetta er oftast klúður og klaufalegir fundir
því kynlífið á líka sínar raunalegu stundir
.
3.
Fram að tvítugsaldri er talsvert um að vera
taumleysið er algert og mikið oft að gera.
Núna er það fjöldinn sem mestu skiftir
og margur maður óttalaus Grettistaki lyftir
.
4.
Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur
löngunin er stöðug og andi holdsins veikur.
Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti
þig langar til að gera það á klukkutímafresti .
5.
Frá þrítugu til fertugs nú gjarnan góðar stundir
geysilegur vilji og margir ástarfundir.
Af talsvert meiri nákvæmni þú tilfinningar metur
þú treinir þetta lengur, og gerir þetta betur .
6.
Síðan næsta tímabil fram að fimmtugsaldri
finnst þér alveg sjálfsagt að beita nýjum galdri
kroppurinn er fullur af fiðringi og vonum
þú ferð að vilja sofa hjá miklu yngri konum .
7.
Þessi löngun fylgir þér fram á sextugsaldur
þér finnst þú vera töffari og svakalega kaldur.
Um sextugt fer að hrella þig viðsjáll vöðvaslaki
8.
Um sjötugsaldur finnst þér aftur fjörið vera að lægja
þú ferð nú yfirleitt að láta gömlu brýnin nægja.
Það miðar hægt ef vindurinn stendur beint í stefnið
þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið
.
9.
Um árætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum
í hjartanu er ylur og löngunin að vonum.
þér finnst það skifta máli hjá meyjunum að vera
en mannst samt stundum ekki hvað þú ætlaðir að gera
.
10.
Eftir þennan tíma er löngun best að leyna
og láta ekki glepjast þó konan vilji reyna.
Í átökunum getur sálin gengið öll úr lagi
þú gætir orðið bráðkvaddur úr elli"reiðar"slagi.
Þá vitum við það hvernig eru á öllum áratugum
okkar kæru karlmenn, þeir leita í öllum smugum.
munum þetta grínið vel á góðum skemmtistundum
og gjarnan ræðum þetta vel á hinum ýmsu fundum.
(Smábreytt)

Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.2.2009 | 01:16
Frú Ragnheiður Ólafsdóttir þinn er heiðurinn.
Ég vil byrja á að lýsa hreykni minni yfir frammistöðu minnar ágætu vinkonu Ragnheiðar Ólafsdóttur á alþingi í dag. Ég hlustaði á ræðuna hennar og svo sannarlega eins og hennar er von og vísa brilleraði hún algjörlega;
Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar
- bíða til kosningabaráttunnar, sagði Ragnheiður Ólafsdóttir, nýr varaþingmaður Frjálslynda flokksins, sem las þingmönnum pistilinn á Alþingi í dag.
Ragnheiður tók til máls undir liðnum störf þingsins. Hún sagðist lengi hafa fylgst með Alþingi en þó sérstaklega eftir að hún vissi það í síðustu viku að hún myndi taka sæti á þinginu.
Miðvikudaginn 4. febrúar, þá var mikið karp um kosningu forseta Alþingis. Ótrúlegt. Fimmtudagur 5. febrúar. Fyrsti heili starfsdagur Alþingis með nýrri ríkisstjórn. Þá var umræða um greiðsluaðlögun. Rifrildi, frammíköll og að mínu mati hálfgerð upplausn um hver samdi frumvarpið eins og það skipti fólk úti í þjóðfélaginu einhverju máli, eða hvað?
Föstudagurinn 6. febrúar. Umræða um Seðlabankann. Karp, frammíköll, málþóf.
Í gær, minn fyrsta dag hér á Alþingi þá upplifði ég ekki mjög málefnalegar umræður; frammíköll og ýmis upphrópunarefni og mér fannst ég vera komin á framboðsfund vestur á fjörðum hér í gamla daga með Matta Bjarna, Sighvati Björgvins, Vilmundi Gylfa og Karvel Pálma. Þá var ekkert sjónvarp svo allir íbúarnir voru að fara á skemmtifund og höfðu gaman af.
Mér finnst sorglegt að horfa upp á sjálfstæðismenn eiga mjög erfitt með að vera í stjórnarandstöðu hér og ekki getað fótað sig. En almenningur, sem heima situr og horfir agndofa á slíkar umræður, bíður í ofvæni eftir að Alþingi segi eitthvað og geri eitthvað í til að hjálpa heimilum og fyrirtækja þessa lands.... Ég bið ykkur þingmenn að hafa aðgát í nærveru sálar. Sýnið þingi og þjóð þá virðingu að láta karpið bíða til kosningabaráttunnar," sagði Ragnheiður.
Þetta er algjörlega brilliant. Og ég verð að segja að ég á minn þátt í því að þessi flotta kona er þarna í dag og ekki lítinn. Því hreyknari er ég af hennar frammistöðu vitandi að það var mikið til fyrir mín orð og baráttu sem hún er í þessum sporum í dag. Innilega til hamingju elsku Ragnheiður mín fyrir frammistöðuna í dag, ég er svo hreykin af þér.
Flottust mín.
En svo ætla ég að setja inn nokkrar myndir undir svefninn.
Litla skottið mitt á það sammerkt með ömmu sinni að hún er algjört dansfífl.
Sjáið hvernig hún notar allan líkaman í dansinn, meira að segja puttana.
Og allur likamin er með í dansinum við glansmyndina.
Lílfsgleðin er svo sönn.
Og svo er allt sett upp í grín og gleði.
Stóra prinsessan aftur á móti er kúlasta stelpan í heiminum.
Og svo er bara litað og haft það gott.
Og hér er bein útsending frá landsfundi Framsóknarflokksins, þar sem fram fer námskeið í hnífastungum
Flottar litlar gellur í garðskála.
Yndislegust mín
Nokkrar fjallamyndir fyrir fjallafólkið mitt.
Þvílík birta.
Himnagalleríið opið.
Ísinn... er kaldur.
Ísilagður pollur, en enginn smápollur, heldur Pollurinn hehehe þetta skilja ísfirðingar og sumir jafnvel muna eftir því þegar pollinn lagði og allir fóru á skauta.
Þetta er náttúrulega ekkert síðra en himnagalleríið, bara sjórinn pikkfastur í ís, en svona líka flottur.
Nema himininn er hvolfþak, sjórinn flatur.
Elska þennan stað og alla sem þar eru.
Naustahvilftin hér dansa dísir.
Það dregur að skiladögum, þar sem við ágætu landar mínir þurfum að velja milli þess sem er heiðarlegt og fullt af vilja til að breyta og laga, og svo þess sem vill bara halda í það sem var, og notar öll meðul til þess. Þeir sem vilja bara halda í forréttindin munu nota allar leiðir til að afvegaleiða okkur, ljúga, vera með áróður og reyna að telja okkur trú um að það eina sem muni bjarga sé einmitt þau sem völdin hafa borið s.l. sautján ár. Og þó allt sé í rúst einmitt vegna þeirra framlags í þessi sautján ár, þá munu þau reyna allt til að telja okkur trú um að allt annað sé það versta sem fyrir okkur geti komið. Þau munu koma í flokkum, segja sömu lygarnar mörg sitt úr hvorri áttinni, eins og hýenur í veiði, til að réttlæta tilveru sína. Því þau hafa aldrei upplifað neitt annað en að deila og drottna, og þau skilja einfaldlega ekki að það geti neinn annar komið og gert betur. Þau eru sum ef til vill ekki vond eða óheiðarleg, en samt sem áður gjörspillt og trúa virkilega því sem þau segja. En eins og hjá öðrum trúfélögum, þá eru flest þeirra nytsamir sakleysingjar, sem virkilega trúa að þau séu að fara með rétt mál, meðan markaðs- og forræðishyggjan liggur i leyni og lætur þau tala eins og búktalara. Verum á verði fyrir falsi og fláræði, látum ekki plata okkur lengur eins og gert hefur verið síðastliðinn átján ár. Hlustum, meðtökum og verum á verði, því í fyrsta skipti á okkar dögum skiptum við litli jón og litla gunna máli, því landið hefur ekki fyrr lent í öðru eins fyrr á okkar tímum, svo það skiptir miklu máli að við allavega skoðum á hvern hátt við getum sjálf hjálpað til að reisa landið úr þeirri krýsu sem það er í í dag. Og ég get alveg lofað þvi að það verður EKKI með þátttöku svokallaðs sjálfstæðisflokks, heldur með sameinuðu átaki allra hinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 12. febrúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar