Nokkrar myndir fyrir svefninn.

Nokkrar smámyndir fyrir svefninn.

IMG_5692

Hér er litli Arnar Milos serbinn okkar.  Það stendur til að fara til Belgrad næsta sumar í giftingu.  Það verður gaman.

IMG_5694

Afi og stubbur skemmta sér vel.

IMG_5699

Hann er nýorðin eins árs og alveg við að fara að labba. Heart

IMG_5721

Knúsírófurnar mínar að undirbúa sig að fara á bretti með pabba og mömmu.

IMG_5722

Hanna Sól alveg tilbúin.

IMG_5851

Með pabba á dalnum.

IMG_5865

Vei!!! gaman að renna sér.

IMG_5875

Og litla skottið hefur gaman af líka.

IMG_5793

Gaman að knúsast með mömmu.

IMG_5823

Gaman að leika, í heimsókn hjá Sunnu frænku og Stefáni.

IMG_5824

Yndislegar frænkur og bestu vinkonur Bára mín og systkinadætur Sunna, Hafdís og Thelma. Heart

IMG_5829

Með pabba, nú er hann farin suður aftur, en kemur í afmælið hennar Hönnu Sólar.

IMG_5883

Það er rosalega gaman að leika sér með þessa leikfangalest úr Ikea.

IMG_5886

Þessi mynd er ekki tekinn í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, heldur stjórnmálaskóla Framsóknar, þetta trix heitir að fá hnífasett í bakið LoL

Segi svo bara góða nótt elskurnar. Heart


Með pottaglamur í eyrum.

Mig dreymdi í nótt að ég stóð vaktina fyrir framan Seðlabankann og barði potta og pönnur.  Ætli þetta þýði ekki að innst inni sé það einmitt það sem ég hef þörf fyrir núna til að fá reiðina og leiðindin út úr systeminu hjá mér.  Það hreinsar ótrúlega vel út að hitta annað fólk og standa saman við að láta hugsanir okkar í ljós með þessum hætti.

Ég er líka hugsandi yfir gærdeginum og svo miklu fleira auðvitað.  En ég get ekki hrakið myndina úr huga mér þar sem blaðamenn eltu bankastjórann númer eitt um allar trissur, þar sem karlinn reyndi að hrista þá af sér.  En er greinilega ekki vanur svona hlutum, og fórst það klaufalega úr hendi.  Þetta er svona tragikómiskt, ef ekki bara sorglegt.

Og ég get ekki varist því að hugsa; hvernig líður fólki sem hefur komið sér í þessa aðstöðu?  Maður sem hélt að hann ætti heiminn, gæti ráðið öllu og var búin að koma sér upp hirð fólks sem hann hafði kring um sig, sennilega flestir vegna ótta, aðrir af einlægri aðdáun á meistara sínum.  Svo hrinur heimurinn gjörsamlega fyrir fætur honum.  En ekki á sama hátt og veröldin hrundi fyrir þjóðinni.  Nei hann þarf ekki að hafa áhyggjur af efnahag, hann hefur gætt þess að mylja vel undir sig fjárhagslega, með fjórföld eftirlaun og þau ekki af verri endanum.  Nei hann þarf ekki að kvíða atvinnuleysi eða að eiga ekki salt í grautinn, því síður þarf hann að hanga fyrir utan mæðrastyrksnefnd og sníkja mat.  Hann taldi sig hafa búið vel um hnútana, svo vel að ekkert gæti haggað honum. 

En þá kemur þessi skríll til sögunnar, rumpulíður og vesalmenni sem fara út á göturnar og velta ríkisstjórninni hans.  Ég hugsa að aldrei hafi honum dottið í hug eitt augnablik að þetta gæti gerst.  Þess vegna er han algjörlega óviðbúin árás úr þeirri áttinni.  Þarna er sagan um Davíð og Golíat enn og aftur, nema nú er það Golíat sem fellir Davíð. 

Ég hef verið að reyna að setja mig inn í þær hugsanir sem bærast í hausnum á þessum tveimur sem neita að víkja, og ætla sér að sitja þangað til..................... ætli þeir hafi hugsað það til enda?

Hver pantaði líka bréf frá Alþjóðagjaldeyrisstjóðnum, og hvers vegna vissu sjáflstæðismenn það fyrstir manna?  Getur verið að þeir hafi að kvistlinga sið haft samband af fyrra bragði til að bjarga sínu eigin skinni?  Alveg gæti ég trúað því.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú sýnt sitt rétta andlit, grímulaust er það ekki falleg sjón.  Þeim er í fyrsta lagi ekkert heilagt nema foringinn.  Þjóðin, þeirra eigin samviska, öllu skal fórnað á altari egósins og flokksins. 

Það var aumkunarvert að sjá Svein Andra í Kastljósinu í gær, hann var flóttalegur, og ætlaði að byrja á því að æsa Helga upp, til að verja Samfylkinguna.  En Helgi sá við honum, þarna sat hann pollrólegur og brosti, kom svo með það að auðvitað bæru þau öll ábyrgð á þessu hruni.  Og enginn ætti að skorast þar undan.  Þeirra mál yrðu svo lögð í dóm kjósenda í kosningum í vor. 

Í svona málum hafa Sjálfstæðismenn alltaf getað snúið sig út úr vandanum, með allskonar smjörklípum, enda er þeirra kosningamaskína vel smurð.  Nú er búið að leggja línurnar, það virðist alltaf vera gert þannig, að fyrst eru upphugsaðar smjörklípurnar, síðan er vel völdum snötum beitt til að byrja með áróðurinn, og svo er tekið undir af fleirum, þar sem fólk veit að ef þú segir lygina nógu oft fer fólk að trúa henni. 

Svona lítur þetta út;

Í fyrsta lagi Davíð Oddsson er lagður í einelti.

Jóhanna Sigurðar er bara flugfreyja og hefur ekkert vit á pólitík.

Jóhanna var í ríkisstjórninni og ber því fulla ábyrgð á ástandinu, ríkari ábyrgð en forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann í síðustu ríkisstjórn.

Það á ekki að klína hruninu á sjálfstæðismenn, því þetta var öllum að kenna, sérstaklega heimskreppunni miklu.

Á þessu er hamrað eins og það sé sannleikurinn hinn eini.  Og ég held að forysta sjálfstæðisflokksins trúi því sjálf að þetta dugi til að fólk trúi þeim og kjósi þá aftur í næstu kosningum.   'Eg segi nú bara ef fólk hefur ekki meiri yfirsýn á líðandi stund en það, þá eru okkur allar bjargir bannaðar. 

Samt eru þeir að mælast með yfir 30% í skoðanakönnunum.  Er þetta í lagi?  Ég segi nei.  Flokkurinn hefur verið við völd í 17 ár, og mest allan þann tíma haft völdin í forsætis- og fjármálaráðuneytinu.  Þeir hafa komið sínu fólki allstaðar inn í kerfið, og bera þyngstu ábyrgðina á ástandinu, ásamt auðvitað Framsóknarflokknum, sem nú hefur breytt yfir sig lambsgæru til að sýnast saklaus. 

En ég get ekki ímyndað mér að okkar manni líði vel þessa stundina, með pottaglamur í eyrunum og eltingaleik við blaðamenn til og frá.  Þetta sýnir að mínu mati að það er sama hversu menn halda að þeir hafi búið sér öruggt skjól, ef innrætið er ekki í takt við talið, þá falla þeir á eigin bragði fyrr en síðar.  Og því hærra sem menn klifra upp á stallinn, því hærra verður fallið þegar að því kemur. 

En við skulum halda áfram að láta til okkar taka.  Halda ráðamönnum við efnið.  Það góða sem þessi ríkisstjórn vill gera, verður hún að fá frið til að framkvæma.  Hér er þjóðarheill í húfi en ekki sært stolt nokkurra pólitíkusa, sem halda að lífið á Íslandi snúist um þá og þeirra ráð eða ráðaleysi. 

Við skulum auðvitað ekki persónugera vandann, heldur reyna að standa saman um að hreinsa til og rísa upp til varnar almenningi í landinu.  Látum ekki hatursfull skrif trúarhóps Sjálfstæðisflokksins villa okkur sýn.  Hér er Ísland og þjóðin í spilinu. 


Bloggfærslur 10. febrúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband