30.12.2009 | 22:42
Amma taktu mynd.
Ef þið hafið haldið að ég sé alveg dottin ofan í pólitíkina þá er það misskilningur. þarf bara að koma hugsunum mínum frá mér sorrý en stundum finnst mér að það sem skiptir máli fari ofan garðs og neðan hjá alltof mörgum og þá dett ég ofan í slíkar hugsanir, en það gerir mér líka gott, því þá kemur adrenalinið mér til góða.
En hér hefur verið straumur af barnabörnum eftir að þær litlu fóru, fyrst komu fjórir táningar og gistu, baranbörn af eldra taginu, og síðan yngri barnabörn, og það var bara notalegt.
Stundum dettur í krílið að pósa. Amma taktu mynd segir hún og pósar.
Og sona!
Aftur amma!
Svona amma!
Svona!
Meira amma.
Ef þi haldið að þetta sé Hanna Sól sem er að fara að spæla egg, þá er það misskilningur
Þetta er nefnilega síni mí.
Reyndar með pabba að spæla egg, sem hún sótti sjálf út í hænsnakofa, og vildi steikja sjálf.
Hér er svo önnur prinsessa sem er rosadugleg, bara 6 mánaða en sýnir miklu þroskaðri takta. Og amma fékk að passa hana lengi í gær.
Og hér er hún með Hönnu Sól.
Sem hefur engu gleymt.
Ætli þetta sé í genunum
Táningarnir mínir.
Þau létu fara vel um sig.
Og þeir ekki síður.
Fullt tungl óðara.
Og hér sjást fyrstu spor sólarinnar nður hlíðina, uns hún nær alla leið í Sólgötu, þegar við drekkum sólarkaffið.
Smá kúlublues. Þið verðið að fyrirgefa elskurnar, en ég er rosalega pólitísk, eða full af því að reyna að leiðrétta kúrsin á minn hátt. Ég geri mér grein fyrir því að hann er ekki endilega réttur, en samt sem áður tek ég mér bessaleyfi á því að segja hvað mér finnst. Get ekki annað.
Megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. Megi landsvættir vaka yfir Íslandi og vernda okkur sem þjóð. Við viljum fyrst og fremst vera sjálfstæð, það getur verið að við höfum mismunandi sýn á hvað það inniber. Mitt álit er alveg skýrt, ég vil ekki deila náttúruperlum okkar með öðrum þjóðum, nema sem því nemur að leyfa þeim sem hingað vilja koma að deila því með okkur. Annað er ekki í boði. Ljós, knús og kærleikur til ykkar allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.12.2009 | 19:06
Það er eitthvað inn í strompnum sem ekki lyktar vel.
Ó ég hef verið upptekin í dag að fylgjast með. Og satt að segja er ég mjög hugsandi yfir öllu því sem ég les. Ég verð að segja að við erum ennþá við sama heygarðshornið og áður; tökum bara Lúkasin á þetta. eins og svo oft áður hafa alltof margir leppana fyrir augunum og sjá bara svart og hvítt, þeir sem ekki eru sammála ríkisstjórninni eru bara vondir stjórnarandstæðingar, þeir sem eru á með stjórninni tala um að hinir séu að þyrla upp moldryki. Málið er bara ekki svona einfalt. Þeir sem virkilega hugsa og geta losað sig frá og yfir pólitíska flokkadrætti sjá að hér er meinsemdin hvorki kratar, kommar, framsókn eða sjallar ekki einu sinni samfylking. Hér er vandamálið vörn ráðamanna hverju nafni sem þeir nefnast gegn alþýðu landsins. Þeir berjast á banaspjótum við að halda þráðunum í hendi sér, en þegar allt kemur til alls vilja þeir fyrst og fremst halda völdum og verja bæði sig og andstæðingana.
Þegar hlustað er á það fólk utan fjórflokksins sem komist hefur á alþingi núna undanfarin 10 ár, svo sem eins og Frjálslynda flokkinn og Hreyfinguna, þá átta menn sig á að þeir tala ekki sama tungumál, og eru eiginlega afar óæskilegir að mati fjórflokksins, því þeir eru eins og flugan á veggnum, kjafta frá því sem hingað til hefur legið í láginni og ekki verið sagt frá. Þ.e. skrípaleikurinn á Alþingi, þar sem settar eru upp leiksýningar reglulega fyrir okkur hin. Menn leika einleiki, tvíleiki og þríleiki og jafnvel fjöldasöng til að heilla okkur upp úr skónum vitandi að sum okkar allavega horfa á skjáinn og fylgjast með stórleik upp á Shakespearsklassaleik, eins og Birgitta Jóndsóttir lýsti svo vel hér áður. Og eru svo bestu vinir á eftir, endurleika ef til vill upptökur eftir á og skoða hvað má betur gera næst.
Þetta fólk er ekki þjónar almennings frekar en ég veit ekki hvað. Þetta eru leikarar nútímans, og þeir slá jafnvel þjóðleikshúsi við og jafnvel Borgarleikhúsi, svo ég tali nú ekki um áhugaleikhúsin. Þvílíkt gerfi og þvílíkt fals.
Er ekki komin tími til að við pöpullinn í þessu landi segjum hingað og ekki lengra. Hættum að verja OKKAR lið, og förum að hugsa um OKKUR SJÁLF og fjölskylduna. Er ekki hver sjálfum sér næstur. Eða hver hefur lyst á endalaust að verja sinn pólitíska samherja ef það brýtur á rétti fjölskyldunnar og annarra venjulegra íslendinga. Ég bið ykkur ágætu jónar og gunnur að hugleiða það, hvort þið séuð í raun og veru að verja skúrkana, og láta ykkar eigið fólk blæða fyrir það. Og þá er ég að meina alla heildina ekki neinn flokk sérstaklega. Er ekki komin tími á að við bara hugsum um það sem okkur er næst, krefjast þess að ráðamenn hverju nafni sem þeir nefnast hætti að ljúga og plata og komi fram af heiðarleika og réttlæti hver sem í hlut á. Ef þeir geta það ekki, fái þeir bara reisupassan?
Ég hef orðið fyrir því þegar ég var í framboði að eldri kona kom til mín og sagði, mikið er ég ánægð með ykkur og stefnuskrána. En ég hef nú alltaf kosið sama flokkinn og get ekki farið að breyta því? Er það skynsemin, er það til þess fallið að gera ísland að lýðræðisríki? Eða þarf að fara að hugsa upp á nýtt, við sem þjóð, við sem almenningur í þessu landi, við sem EIGUM AÐ FÁ AÐ GREIÐA VITLEYSUNA OG EYÐSLUNA?
Spyr sú sem ekki veit. En ég bið ykkur að hugleiða á hvaða róli við erum. Vegna þess að ég er farin að óttast að við losnum aldrei við spillinguna sem grasserar og leikaraskapinn sem er í raun ólíðandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2009 | 12:35
Áfram Ísland, innleiðum heiðarleika, virðingu og gegnsæi, fyrr fáum við ekki nýtt Ísland.
![]() |
Rauð blys loga á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.12.2009 | 12:07
Áskorun - sýnum stjórnvöldum rauða spjaldið á Austurvelli í dag. Burt með Icesave og burt með ESB.
Það liggur eitthvað í loftinu þennan dag. Eitthvað sem er að gerast sem gæti skipt sköpum í okkar þjóðfélagi. Ef til vill er það bara stormur í vatnsglasi, en ef til vill er það eitthvað sem er að gerjast og gæti orðið okkur til góðs, vonandi. Þegar alþingi frestar æ ofan í æ atkvæðagreiðsu og þingfundi á alþingi, þá þýðir það að eitthvað er að gefa sig. Stíflan ef til vill að bresta. Ef svo er, þá er það eingöngu fyrir tilstilli sívaxandi þunga frá íslenskum almenningi. Réttmæt krafa um heiðarleika og sanngirni.
Ef loksins ráðamenn sjá að þeir eru ekki bara að eiga við refi og pólitíska andstæðinga á þingi, heldur 70% íslensku þjóðarinnar. Vonandi hafa þeir áttað sig á því að það gengur ekki upp.
Það er líka með ólíkindum ef Samfylkingin (sem oftar en ekki hefur hlaupið eftir skoðanakönnunum) þorir að ganga gegn vilja svo stórs hluta landsmanna, og til hvers? jú bara til að eiga fyrir miðanum inn í ESB.
Leiðin þangað er alls ekki greið. Þó sumir séu tilbúnir til að fórna öllum okkar auðlindum og mannauði, þá dugar það ekki til, eins og staðan er í dag. Því mikill meirihluti þjóðarinnar vill ekki þangað inn, þó margir vilji sjá hvað er í boði. Reyndar hefur tala þeirra sem þannig hugsa snarlækkað, þegar þeir sjá hvernig bretar og hollendingar koma fram við okkur. Skynsamt fólk vill ekki spila við þá sem svindla við spilaborðið.
Það sem er að koma í ljós núna á hverjum degi, segir okkur líka að stjórnvöld hafa ekki verið heiðarleg í upplýsingum eða framgangi sínum við samningaborðin. Þar hafa ríkt önnur sjónarmið en þau að vinna Íslandi sem best. Ef til vill góðir hægindastólar í Brussel.
Venjulegir kjósendur stjórnarflokkana hafa dregið sig í hlé og hugsa sitt, bíða, meðan gapuxarnir reyna að gapa um að við verðum að samþykkja Icesave og inngöngu í ESB, þetta hljómar í mínum eyrum eins og kall í eyðimörkinni. Verður sífellt meira hjáróma, eftir því sem hugsandi fólk dregur sig meira í hlé og vill sannleika og heiðarleika og allt upp á borðið.
Versta við þetta er að þetta sama fólk treystir heldur ekki Sjálfstæðismönnum og Framsóknarmönnum, til þess hafa þeir nógu mikinn skít á sinni könnu, sem þeir hafa ekki nýtt tíma sinn í að hreinsa og moka út. Það treysta þeim því afar fáir til að fara með stjórn landsins, og flestir eru á því að þó núna sé ekki mikið gert af því að hreinsa til í stjórnsýslunni, þá muni það allt stöðvast ef þeir komast að völdum aftur. Því er nú verr.
Þess vegna verður stjórnarkreppa í landinu ef þessi ríkisstjórn fer frá. Þó hún sé slæm þá virðist hinn kosturinn ennþá verri.
Hvað er þá til ráða? Jú það þarf að ráða fólk til að stjórna landinu, sem er ekki í pólitík. Fólk sem hefur vit og þekkingu til að takast á við það sem gera skal. Til dæmis eins og Gunnar Tómasson, Láru Hönnu Einarsdóttur Marnínó Njálsson, Vilhjálm Bjarnason og marga fleiri sem hafa verið að tala hér af skynsemi, fá svo Evu Joly til að stjórna hópnum. Meðan á þessu stendur þarf að senda flesta alþingismenn heim, það eru örfáir einstaklingar inn á þingi sem hafa staðið af heilindum með þjóðinni, þeir eru taldir á fingrum annarar handar, eða næstum því. Hina á alla að senda til síns heima og gera þeim að lesa og kynna sér hvað heilindi, traust og virðing er. Því þeir hafa greinilega löngu gleymt því meðan þeir hafa yljað sér við kjötkatlana, gripið það sem þeir hafa getað náð, og hyglað sér og sínum á kostnað annara.
Það er mín ósk að okkur auðnist að vinna að þessu einhvernveginn svona. Skipta út spillingunni fyrir hugsjónir og þekkingu. Byrja á að hætta að greiða pólitískum flokkum fé til stafseminnar, og líka má hugsa sér að skera niður allar þær pólitísku nefndir og ráð sem sumar eru löngu úreltar og hafa engan tilgang, en menn sitja og maka sinn krók í skúmaskotum. Taka í gegn bankana sem mér skilst að séu að fara ránshendi um eigur almennings, og afskrifa skuldir peningamanna og stjórnmálamanna í milljörðum, meðan hert er að venjulega jóni með hótunum um eignaupptöku og skuldafangelsi.
Hvar erum við eiginlega stödd Íslenska þjóð?
Ég skrifa þetta sem mitt rauða ljós á Austurvelli, þar sem ég kemst ekki, og það er til lítils fyrir mig að standa á Silfurtorgi þar myndi ekki rödd mín hljóma.
Hér dreg ég því upp rautt ljós og rauða spjaldið á íslensk stjórnvöld, sem ég tel að hafi algjörlega brugðist öllu því sem þau lofuðu okkur fyrir kosningar. Og lít því á sem svo að þau hafi sjálf fyrirgert sínum rétti til að kalla sig ráðamenn landsins. Þetta á líka við um flest alla í stjórnarandstöðu. Þó þeir eigi gott skilið fyrir að standa fast á bremsum í Icesave af hvaða ástæðum sem svo það er.
En Íslandi allt. Megi okkar fallega land og fólkið okkar endurheimta virðingu sína og velferð.
Því miður er ég ekki með mynd af fánanum í þessari tölvu. En þetta flagg stendur fyrir sínu.
http://raksig.blog.is/blog/raksig/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 30. desember 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar