22.12.2009 | 22:38
Smákrúttfærsla.
Við hittumst ferðafélagar í lúðrasveitarferðalagi til Estoníu í sumar, í gær borðuðum saman og horfðum á myndir og bara röbbuðum saman. Það var gaman. En það kemur seinna. Núna eru smákrúttmyndir af kisum og börnum. Svo vorum við að "gæsa" Möttu tengdadóttur í dag, það var skemmtilegt, en það kemur líka seinna. Svo það verður nóg um gleði á næstunni. En núna smá krúttmyndir.
Brandur lummast til að vera góður við litla dýrið þegar hann heldur að enginn sjái til.
Og sá litli kann vel að meta Brand, enda er Brandur eðalköttur.
Jóli gaf Ásthildi leir í skóinn í gær, og hún lék sér allan daginn með leirinn.
Og kisi fylgdist með.
Fékk reyndar alveg að vera með.
Litla knúsírófan mín.
Hún dansar við jólasveininn.
Svo náði hún í egg til hænsnanna, amma lá fyrir og var dálítið þunn heheh, þá er svipt upp dyrunum, kveikt ljósið og inn kemur litla valkyrjan með plastpoka með þremur eggjum; Amma ég kom með egg. Við skulum borða egginn, sagði hún ákveðin, og það var bara ekkert annað að gera en að fara niður og steikja egginn.
Þau brögðuðust mjög vel, enda alveg nýorpin, hvað er betra en nýorpin egg, og lítil skessa sem vekur ömmu sína upp frá fleti til að fara að steikja egg.
Það er eiginlega ekkert sem toppar þetta. ekkert fjandans Icesave, fjárlagafrumvarp sem er út úr kú, löngu kokgleyptir ráðherrar, eða vöntun á peningum í ríkissjóð. Ég er sannfærð um að ég mun lifa þetta allt af, til fjandans með ríkisstjórnina, og allan fjórflokkinn eins og hann leggur sig. Við munum hrista þetta allt af okkur og komast á lappirnar aftur, án ESB án AGS og án breta og hollendinga. Við skulum svo sannarlega komast burtu frá þessu öllu saman, moka skítin út og vera sjálfstæð þjóð í lýðræðisríki, það er bara vinnan að hreinsa skítin út og koma heilbrigðri hugsun og kærleika inn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
22.12.2009 | 11:14
Smáhugleiðing.
Ég rölti niður í bæ í gær, í von um að jólaljósin og stússið myndu færa mér smá tilhlökkun og tilfinningu fyrir jólunum. En það er víst dýpra á þeim tilfinningum mínum þetta árið en svo að það tækist. Mér líður ekki illa, en er hálf frosin, sen samt svo rosalega viðkvæm.
Hér er smá hugleiðing svona rétt fyrir jólin. Var að gramsa í greinasafninu mínu og er rakst á þetta og ætla að setja hér inn.
Skilningstréð.
Það er margt sameiginlegt með manni og tré. Til dæmis hafa tré tvennskonar æðar, þær sem flytja steinefni og önnur tilvistarefni úr jörðinni og svo æðar sem bera ljóstillífunina niður til rótanna.
Við höfum svipað æðakerfi innra með okkur, þar sem eru ósæðar og bláæðar, sem gegna sitt hvoru hlutverki. Tré hafa græn blóðkorn en við rauð. En ég er ekki beint að tala um lífræðilegan mun, heldur frekar okkar andlega svið.
Meðan tréð tekur næringu úr jörðinni, og síðan koltvísíring úr andrúmsloftinu og framleiðir súrefni, þá komumst við heldur ekki langt án þess að sækja okkar orku úr móður jörð, og að rækta anda okkar með hugsunum og andlegu ríkidæmi.Trén nýta sér líka framlengingu í jörðinni, þau eiga í samvinnu við sveppi sem lifa neðanjarðar, þeir eru framlenging á rótum trésins, og fá í staðin súrefni frá krónu trésins.
Okkar framlenging er ef til vill fólgin í samvinnu og samstöðu með öðru fólki, eða jafnvel dýrum sem við tökum að okkur og gefa okkur ást og kröfulausan kærleika.
Í fyrstu eru tré örlítil, njóta ekki virðingar, né er eftir þeim tekið. Sama á við um mannfólkið, okkur hættir til að líta yfir smáfólkið og hlusta ekki á það. Þó finnst sannleikurinn í sinni tærustu mynd einmitt í hugum barnanna, réttlætið sterkast og sýnin á það sem er skærastur.
Þegar tré aftur á móti eru fullvaxta og standa glæsileg og bein á sinni rót, þá fyllast margir lotningu yfir fegurð þeirra, og jafnvel margir sem trúa á mátt þeirra og megin.
Við eldumst og þroskumst, og berum ávöxt. En aldurinn eykur okkur þroska. Það er ekki út af engu sem öldungarnir voru aðalráðgjafarnir í eldri samfélögum. Menn vissu að því eldri sem menn urðu, því vísari urðu þeir, og þroskaðri til að takast á við hið daglega líf, og miðla öðrum af visku sinni.
Því er dálítið sorglegt að upplifa æskudýrkun mannsins í dag, það er þó að breytast smátt og smátt, þegar menn eru aftur að uppgötva fjársjóðin í fólki sem er reynslunni ríkari. Menn mættu stundum fara aftur til eldri tíma og skoða upphaf sitt.
Það er líka svo með menntun. Nú er allt kapp lagt á að fólk mennti sig, nái sér í gráður og titla. Það er svo sem af hinu góða, svo lengi sem menn missa ekki sjónar á því sem skiptir raunverulega máli, en það er hæfni einstaklingsins sjálfs til að takast á við lifið og umhverfi sitt.
Menn geta haft allskonar próf og nafnbætur, en verið alveg jafn ófærir um að miðla því af sér. Ég þekki líka fjöldann allan af fólki sem rétt hefur gengið gegnum gagnfræðaskóla, en er sjálfmenntað í þessu eða hinu, ég hef hitt mann sem er með bestu rafeindavirkjum, af því að áhuginn vaknaði. Menn sem gengu aldrei í skóla, en eru sjálfmenntaðir, líka hef ég séð bifvélavirkja, tölvufræðinga og bara allkonar fólk sem hefur komist vel áfram á sínum eigin dugnaði og áhuga. Ekki að ég sé að vanmeta skólagöngu, hún ein og sér skilar bara ekki einstaklingi út í lífið, ef hann hefur ekki ræktað sjálfan sig til að takast á við það sem hann er að vinna við.
Það er stundum talað um menntasnobb og vissulega leggja margir upp úr því að vera titlaðir hitt og þetta. En skiptir það svo miklu máli þegar allt kemur til alls, ef þeir sömu standa ekki undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðir og hafa ekkert nema prófgráðuna til að sýna fram á getu sína ?
Og skiptir það þá máli hvort þessi eða hinn hafi ekki skírteini upp á vasann um að hann hafi lært þetta eða hitt, ef hann getur sýnt fram á getu sína til að sinna því sem hann vill vinna við ?
Við erum oft föst í einhverju neti, þar sem hið raunverulega gildismat kemst aldrei að, af því að við erum uppfull af einhverju öðru en því sem er kjarninn í okkur. Hið andlega ríkidæmi, og ræturnar ofan í jörðinni. Sú festa sem ekki verður af okkur tekinn, en er samt svo einföld og sjálfsögð, bara ef við komum auga á hana. Viðurkennum hana og lifum samkvæmt því.
Mér finnst stundum eins og við lifum í gerfiveröld, þar sem við höfum búið til önnur gildi og gerfi þarfir sem þjóna í raun og veru ekki okkar andlegu verund. Er það þess vegna sem við erum svona ráðvillt og veruleika firrt ? Ég hef oft leitt hugan að þessu, og mér finnst einhvern veginn að við leiðumst æ lengra í burtu frá því sem skiptir okkur mestu máli. Sálinni og hennar þörfum. Hún þarf ekki auð og völd, hún þarf ekki að eignast allt sem hugurinn girnist.
Sálin okkar er einföld og sjálfri sér nóg. Þegar við skynjum að veraldleg gæði þessa heims hafa lítið með sálina í okkur að gera, þá fyrst er hægt að fara að lifa góðu og fullnægjandi lífi. Þegar áhugi okkar er bundin þeim sem við elskum, og því sem næst okkur er, og umhyggja okkar beinist að þeim sem minna mega sín, þegar grundvallarþörf okkar verður að allir aðrir séu líka hamingjusamir, þá fyrst getum við sagt að við séum hamingjusöm. Þá blómstrar vort andlega líf.
Gangið glöð inn í daginn, slakið á og munið að brosa, eitt bros frá þér getur bjargað heilum degi fyrir annari manneskju. Sérstaklega núna þegar allir eru viðkvæmir og mörgum líður ekki mjög vel.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 22. desember 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar