Bara nokkur orð.

Ég sem aldrei verð veik, eða sjaldan féll í kvef og broncitis búin að hósta úr mér lifur og lungu, og verið í rúminu.  Þetta er sem betur fer að skána hjá mér.  Fékk meðul við þessum fjanda.  Það hefur verið dálítill skuggi á komu dóttur minnar, en um leið feginleiki að hún sér þá alfarið um stelpurnar.  Enda er bara mamma mamma... eins og vera ber. Hún er annars að vinna hjá dýralækninum á staðnum, þær sendast út um allar trissur.  Það eru kindur, kýr og hundar og allskyns dýr sem þurfa aðhlynningu.

En ég set inn nokkrar myndir.  Það hefur svo sem ekki verið barnalaust húsið þó húsfrúin hafi legið í bælinu.

IMG_5585

Veðrið er fallegt í dag, eins og svo oft áður.

IMG_5569

Minnsta prinsessan kom í smáheimsókn.  Og henni finnst gaman hjá afa.

IMG_5570

Hanna Sól er líka hrifin af litlu frænku sinni.

IMG_5567

Þessir piltar voru duglegir í gær, hjálpuðu mér við að passa Símon Dag meðan mamma hans þurfti að brega sér frá.

IMG_5571

Ásthildur og Evíta á kafi í að lita. 

IMG_5574

Litla skottan mín sem er orðin svo stór. 

En ég ætla að ná mér á strik.  Það gengur náttúrulegal ekki að ganga um eins og kjöltrandi fýsibelgur. 

Knús á ykkur öll. Heart


Bloggfærslur 10. desember 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband