3.11.2009 | 15:38
Hugleiðing
Mannskepnan er mikil efnishyggjumanneskja. Hún vill helst ekki trúa nema því sem hún getur þreyfað á. Nema á Guð og Jesú. Ég hef stundum velt því fyrir mér af hverju við erum svona föst í efnishyggjunni, en samt svo tilbúin til að trúa á Guð, Jesú og Biblíuna.
Ég skil þetta með Guð. Ég trúi sjálf á eitthvað sem allt eins vel er hægt að kalla Guð, ljós og kærleika sem er upphaf og endir alls.
En svo er bara ekkert upphaf eða endir. Lífið er hringrás. Allt leitar í hring. Merki Ásatrúarinnar er t.d. hringur.
Þess vegna þurfum við ekki að kvíða endalokunum.
Vatnið er hringrás, það gufar upp í himinhvolfið, þéttist þar og kemur svo aftur niður í vötn og höf, áður en það hefur næstu hringrás.
Blómin fölna og blöð falla, en að vori gægjast þau uppúr moldinni aftur, og ný lauf spretta fram. Þó segi í kvæðinu sama rósin sprettur aldrei aftur þó önnur fegri skreyti veginn þinn þá er það samt sem áður hringrás lífsins.
Jafnvel dýrin sem við deyðum okkur til matar, fara sína hringrás, sumt endar í líkama okkar, annað fer í áburð. Pranan lifir, og færist úr einum í annan.
Við erum líka voðalega skeptisk á að við lifum eftir líkamsdauðann. Það hlýtur að vera erfitt að burðst með þá kenningu gegnum lífið, að allt sé búið þegar þessari jarðvist lýkur. Þó eru mörg dæmi um hið gagnstæða, því þó ekki sé nema brotabrot af því sem kemur fólki sem sönnun um að látinn lifir, þá er samt sem áður alltaf þetta prósent sem ekki verður hrakið.
Ég hef þá trú að við ætlum okkur inn í þennan heim til að læra. Og að við höldum áfram að koma aftur og aftur uns við erum fullnuma. Að við berum með okkur fyrri vitneskju inn í næsta líf. Ef til vill ekki sem lifandi minningar, en örugglega sem óljósir forboðar.
Ég til dæmis segi ýmislegt, sem ég veit ekki alveg hvaðan kemur, það hendir að ég hugsa kom þetta virkilega frá mér? Þá er það mín innri vitneskja og upplifun sem tekur yfir og opinberar það sem koma skal fram. Þetta gerist oftast þegar mér finnst ég vera það sem kallað er innblásin, með opin hugann beint upp í alla heimsins vitneskju. Þetta er eitthvað sem ég get ekki kallað fram, en ég finn þegar það kemur yfir mig.
Afi minn var svona, nema í hans tilfelli þá sá hann ýmislegt bæði fólk og atburði, sem hann gat svo lýst, stundum jafnóðum og þeir gerðust, en voru langt í burtu.
Af hverju er mannskepnan svo hrædd við að viðurkenna að það er eitthvað meira í heiminum en við og það sem við getum þreyfað á?
Hrædd segi ég, því þeir sem mest hæðast og eru hatrammir út í fólk sem viðurkennir að finna á sér eða sjá og heyra það sem aðrir sjá ekki, eru hræddir. Viðbrögðin sýna það. Það þarf enginn að trúa svona hlutum, en það er sjálfsögð kurteisi að láta vera að niðurlægja og hæða þá sem þannig tala.
Það væri í raun og veru miklu einkennilegra ef það væri ekkert í heiminum annað en það sem við getum þreyfað á.
Svo má benda þeim á sem þannig hugsa að ekki geta þeir séð rafbylgjur eða örbylgjur. Það er ekki hægt að sjá vindinn, þó maður sjái ummerkin. Og einu sinni var maður tekinn af lífi af því hann vildi ekki viðurkenna að jörðin væri hnöttótt en ekki flöt.
Ég held að sálin sé eins og droparnir í hafinu. Ef hafið er Guð, þá gufum við upp, fæðumst og dveljum hér uns okkar tími kemur að falla aftur niður og sameinast hafinu. Dropar hvert og eitt, en þó hluti af því sama. Sumir dropar lenda í grýttum jarðvegi, og þurfa að gufa upp aftur til að falla í réttan farveg.
Ég held líka að á efsta degi þá verðum við að skoða hvernig við höfum varið þeim tíma sem við höfðum. Höfum við lifað góðu lífi og hugsað um aðra, eða höfum við einungis hugsað um að fylla á eigin kornhlöður og verið sama um þá sem hafa verið samferðamenn okkar. Sú sjálfskoðun getur verið annað hvort sársaukafull eða full af gleði og hamingju. En allt eftir því hvernig við höfum hagað vistinni.
Það hefur marg oft komið fram að þegar fólk lendir í lífsháska, þá er eins og lífshlaupið renni framhjá því. Það hefur líka komið fram að þegar menn hafa lent í að vera nálægt því að deyja að þeir hafa ekki viljað snúa til baka.
Það er svo margt sem bendir til að við höldum áfram að vera til eftir þetta jaraðlíf. En af einhverjum ástæðum gengur mönnum illa að höndla það. Veit ekki af hverju. En ég held samt að þeir séu miklu fleiri sem vita að það er framhald á ferð sálarinnar, hvernig það svo verður veit auðvitað enginn. En ætli við getum ekki sjálf haft heilmikið um það að segja með því hvernig við högum okkur hérnameginn gagnvart þeim sem með okkur dvelja í jarðvistinni.
Það er allavega mín trú. Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 3. nóvember 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar