2.11.2009 | 23:25
Þegar ég gerðist boðflenna. Blómamyndir og myndir af fjörkálfum.
Ætla að setja inn nokkrar fallegar blómamyndir úr garðskálanum mínum, svona til að gleðja. Og svo ætla ég að segja frá því er ég gerðist boðflenna, svona alveg óvart.
En þannig var að við höfðum farið í sund á Flateyri á laugardaginn, skemmtileg laug á Flateyri, og þar ríkir hún Lára vinkona mín. Takk fyrir mig Lára mín.
Þegar við komu heim sagði Elli við mig. Ætlarðu ekki að koma með og hlusta á lúðrasveitina spila nokkur lög.
Æ ég veit ekki, sagði ég. Nenni varla.
Jú þú kemur og stelpurnar líka, þið hafið bara gaman af því.
Ég hugsaði með mér að þetta væri svona æfing þar sem þeir myndu spila örfá lög og við gætum bara haft það notalegt og hlustað á nýju lögin, sem þeir eru að æfa.
Þegar við nálguðums Tónlistarskólann sá ég að það var fullt af bílum fyrir utan. Aha hugsaði ég með mér, það er sennilega fleira fólk en ég reiknaði með, eða það er ef til vill fundur í Grunnskólanum.
Þið farið inn Hamrameginn sagði Elli ég fer um bakdyrnar.
Það er laust pláss uppi, hvíslaði dyravörðurinn, það fór að fara um mig. Það var fullt hús af prúðbúnu fólki. Allir fyrirmenn bæjarins uppábúnir. Ég og stelpurnar sem vorum bara í hversdagsfötunum, læddum okkur inn í salinn, mættum þar reyndar bara elskulegheitum og brosum. Fórum upp á svalirnar.
Allt í einu gerði ég mér grein fyrir að þetta var ekki bara einhver æfing hjá lúðrasveitinni, þetta var afmæliskonsert í tilefni afmælis Sigríðar Ragnarsdóttur. Þarna var Hjálmar R. kynnir, Anna Áslaug systir þeirra og allt þeirra fólk. Og allt þetta prúðbúna fólk. Ég fékk hálfgert sjokk. Og þegar Elli birtist í dyrunum og benti mér á að fylgja sér út. Læddist ég fram. Það er langt í að við eigum að spila sagði hann afsakandi.
Ég hefði ekki haft neitt á móti að vera þarna lengur, því það var greinilega mikið lagt í tónleikana. Enda til heiðurs Sigríði. En þar sem ég var nú einu sinni boðflenna, þá var bara best að læða sér út og fara heim.
En innilega til hamingju með afmælið elsku Sígríður mín
Hjálmar og Anna Áslaug. Ég smellti af örfáum myndum.
Systkinin ræðast við og þarna sést tónskáldið og eiginmaður Sígríðar Jónas Tómasson og þarna sést líka í séra Magnús.
Tengdadóttir þeirra leikur hér nýlegt verk. Myndirnar eru ekki góðar því þær eru teknar uppi á svölum.
En svona er lífið stundum. Ég vildi að ég hefði getað verið lengur.
En blómin í garðskálanum eru enn mörg við hestaheilsu og falleg.
Hvað er fallegra en nýútsprungin rós.
Nema er til vill afskorin rós, þessi er orðin meira en mánaðargömul og stendur enn svona falleg.
Og ég er að safna saman fiskunum hans Júlla míns til að velja á sýninguna.
Þar skal vanda vel til verks.
Gleðigjafarnir mínir.
Þær halda mér við efnið.
Hér er verið að spá í mynd.
Og það er verið að hlusta á Lísu í Undralandi á diski, og skoða myndirnar í bók í leiðinni. Það finnst þeim skemmtilegt.
Veðrið getur verið fallegt, reyndar er þetta ekki rétti liturinn.
Þessi ekki heldur.
En aftur á móti er þessi alveg ekta.
En ég segi bara góða nótt. Systir mín lét mig hafa nokkrar svefntöflur, og ég sef þess vegna betur á nóttinni, en er líka á móti þung á morgnana. En það getur líka verið af því að ég hef svo lengi sofið svo lítið.
Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Bloggfærslur 2. nóvember 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2023318
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar