Kúlulíf.

Veðrið er búið að vera gott undanfarna daga, þetta fallega logn sem við erum svo fræg fyrir. Og sólin skín á húsið mitt....

IMG_4974

Dag eftir dag.

IMG_4978

En hún nær ekki alveg niður núna, heldur kristallast í skýjum og getur sent einn og einn geisla ennþá.  Svo verðum við bara að bíða fram í endaðan Janúar.

 

IMG_4976

Því miður er mikil mengun núna frá sorpbrennslunni.  Þetta er ekki falleg sjón.

 

IMG_4982

Þetta aftur á móti er yndislegt. Litla fjölskyldan hans Skafta míns.  Hann er í Noregi. 

IMG_4984

Ásthildur er voða hrifin af frænku sinni og afi líka.

IMG_4986

Og auðvitað er mamma best.

IMG_5003

Amma plástur!!!.  Það fóru fjórir plástrar á sárið allt á sama klukkutímanum.  Það var ekki við annað komandi. 

IMG_5005

Þetta er auðvitað fjallkonan ekki satt!

 

Smámyndir til að sýna að hér er ennþá mannlíf þrátt fyrir allt.  Heart


Kóngur og Drottning.

Ég kaupi oft DV þessa dagana.  Finnst þeir taka vel á spillingarmálum og láta sig varða það sem er að gerast í samfélaginu.  Núna síðast um níu ára drenginn sem var tekinn með ofbeldi frá ömmu sinni að því er virðist ekki á löglegan hátt. 

En ég ætla ekki að tjá mig um það hér. 

Það sem ég hef verið að hugsa um er, að undanfarin blöð hafa verið undirlögð af tveimur persónum.  Þau eru Kóngur og Drottning. 

Ég kannast við opinberu persónu Kóngsins, hann hefur komið víða við í íslensku samfélagi og hefur markað þar djúp spor svo ekki sé meira sagt.  Endalaust getur hann komist áfram á sínum pólitísku "hugsjónum".  

Kóngurinn og Drottningin virðast bæði vera hulin leyndarhjúpi.  Bæði hafa þau um sig hirð aðdáenda, sem gefa þeim auðvitað þann styrk og vernd sem þarf til að komast í þessa stöðu.  Að vísu er hirð Kóngsins kölluð Náhirð.  Hennar sértrúarhirð. 

Bæði baða sig í aðdáun áhangenda sinna, hann í pólitíkinni og hún í business. 

Ég veit svei mér ekki hvernig ég á að taka uppátæki DV að setja þessa ágætu drottningu á stall og hylla hana svona í hverju blaðinu á fætur öðru.  Að vísu ofbauð mér svo að ég ákvað að kaupa ekki þriðja blaðið í röð þar uppljómað af hennar persónu, þar  sem var viðtal við hana upp á minnsta kosti heila opnu.  Ég held sem betur fer, því eftir viðbrögðum Þórarins Tyrfingssonar í blaðinu á eftir, við ummælum hennar um fíkla og alkóhólista, er ég fegin að hafa ekki lagt það á mig með því að lesa það sem hún lætur frá sér.  Þau ummæli hinnar goðumlíku fegurðargyðju er langt því frá að vera sá guðlegi innblástur sem blaðið hefur látið í ljós að hún sé haldinn.  Heldur miklu fremur frá hinum svarta sjálfum. 

Ég skil vel að kóngurinn klári fái að heyra það dag eftir dag í DV, hann er jú keppinautur blaðsins í dag, að vísu eitthvað hnignandi eftir því sem mér skilst. 

En með Drottninguna gildir öðru máli, ég er farin að halda að minn ágæti vinur Reynir Trausta sé fallinn í netið hjá henni og orðin einn af áhangendum safnaðarins.  Slík er mærðin um þessa konu sem ég veit ekki haus eða sporð á, nema að ég ét stundum Gunnars majonnes.  En hún mun víst sjá um að breiða það út meðal landsmanna eins og aðrir gera með útgáfu blaða.  Enda er einn af hennar miklu mannkostum að skrifa bækur. 

Þetta er nú bara svona til gamans.  En það er ekki þar með sagt að ýmislegt flögri að manni svona á þessum síðustu og verstu. 

Eigið góðan dag elskurnar.  Heart

 


Bloggfærslur 13. nóvember 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband