Kistulagning, sorg, fegurð og kærleikur.

Í dag var kistulagningin.  Hún fór fallega fram, það var erfitt en við vorum öll saman fjölskyldan og það er gott að vera í kærleika og umhyggju.  Það er það besta sem til er í raun og veru úr því að svona er komið.

Haukur kom í eftirmiddaginn og söng fyrir okkur lagið við ljóðið mitt.  Og það var svo yndislega fallegt.  Það var eins og Júlli.  Enda eru allar bænir og kærleikur sem umvefja okkur öll á þessum erfiða tíma.

IMG_4260

VestfjarðarHaukurinn setur inn bakspil.  Yndisleg músik sem verður frumflutt á Laugardaginn.

IMG_4263

Lítil skotta gleðigjafi.

IMG_4265

Það var ákveðið að öll börnin settu eitthvað frá sér í kistuna.  Þessi þrjú eru að teikna myndir.

IMG_4266

Með ástarkveðju til pabba. Heart

IMG_4269

Næstu myndir eru ef til vill ekki fyrir viðkvæma, en mér finnst ég verði að setja þær inn.  Pabbi hans hringdi frá Danmörku.  Hann var niðurbrotinn maður og var staddur hjá móður sinni ömmu Júlla míns.  Hann á líka vini á mörgum stöðum í Noregi og fyrir sunnan og allstaðar. Sem syrgja og sakna.  Þannig að ég vil gefa þeim hlutdeild í þessari fallegu athöfn sem fór fram í dag.  Reyndar fengu svo vinir hans að kveðja hann þegar við vorum farin.  Mér fannst það skipta máli fyrir þá að fá líka að kveðja kæran vin.  Því það er ákveðin léttir að fá að kveðja og knúsa.

IMG_4270

Við erum mörg í fjölskyldunni eða yfir 50 manns, og þar mættu allir sem gátu.

IMG_4274

Hann er svo fallegur þessi elska.

IMG_4276

Það er hræðilegt að kveðja barnið sitt og bróður sinn en verra er að kveðja barnabarn eins og elskulegi pabbi minn þurfti að gera í kvöld.  Elsku karlinn minn stóð sig eins og hetja.  Þeir voru svo nánir og góðir vinir.

IMG_4281

Móðir og sonur.

IMG_4282

Úlfur stóð sit líka eins og hetja.

IMG_4283

Elsku pabbi minn.  

IMG_4286

Elsku pabbi minn, ég ætla að reyna að muna þig.  Úlfur mun hjálpa mér til að muna allar skemmtilegu stundirnar sem við þrír áttum saman. Veiða, týna grjót og fara í fjallaferðir, týna krabba.

IMG_4290

Það eru ekki allir sem fá lestur yfir sér bæði á spænsku og íslensku.  En Það þarf ekkert minna fyrir Júlla minn.  Enda var kærleika hans engar skorður settar.

IMG_4292

Fallegur og friðsæll mínir kæru vinir og vandamenn.  Hér getið þið séð að hann fór með friði og kærleika.  Það er gott að geta grátið og það er gott að geta fundið til.

IMG_4294

Umvafin ást og söknuði var drengurinn minn í dag.

IMG_4295

Samhugur ást og kærleikur.  í dag var allt það sameinað sem sundraði áður.  Í dag ríkti kærleikurinn. 

IMG_4303

Lítill drengur ljós og fagur og yndisleg manneskja sem valdi sér það hlutverk að vera prestur.

IMG_4304

Versu kærleiksríkt getur andrúmsloftið orðið.  Drengurinn minn sefur, þó vakir hann. 

IMG_4305

Og himnagalleríið er opið í dag.

IMG_4308

Yndislegar manneskjur buðu okkur í súpu eftir kistulagninguna.  Og annað yndislegt fólk lánaði tjöruhúsið, vettvanginn sem Júlli minn elskaði svo mikið til að við gætum hist og sameinað sorgina.  Hvar var meira tilhlýðilegt að hittast nema einmitt þar.

IMG_4311

Tveir litlir karlar sem misstu pabba sinn alltof fljótt.  En minningin mun lifa hjá þeim báðum um ástríkan föður.

IMG_4317

Hér eru þær þessar óbeisluðu konur sem buðu okkur upp á súpu í dag. Innilega þökk fyrir okkur elskurnar mínar.

IMG_4319

Bára frænka og stubbur.

IMG_4326

Fjölskyldan okkar var sameinuð og sterk í dag.

IMG_4327

Afi gamli kom líka.  Hann er líka hetja.

IMG_4329

Krakkarnir voru glaðir og þeim fannst gaman í súpuveislu.

IMG_4334

Rauðhausar og kjarnakonur.

Ef ykkur finnst ég væmin í kvöld, þá er það af því að ég er barnafull af kærleika og stolti.  Stolti yfir því hve vel liðin drengurinn minn var og hve allir eru boðnir og búnir til að gera allt fyrir okkur.  Glöð yfir því hve allir bera mann á höndum sér.  Og þakklát fyrir allt það sem fólk um allan bæ og allt landið er að gera fyrir okkur. 

En nú er ég búinn á því elskurnar.  Þetta hefur verið bæði erfiður dagur en þó svo yndæll.  Þetta er sennilega allt spurning um hvernig við sjálf tökumst á við sorgina og þá sem nærri okkur eru.  Þó sorgin sé sár, þá þurfum við að meðtaka það góða sem að okkur er rétt.  Og vera þakklát bljúg og viðkvæm.  En fyrst og fremst muna að lífið heldur áfram.  Ég ætla að setja ljóðið mitt aftur hér inn.  Ég er reyndar dálítið stolt af því ef satt skal segja. 

Sorgin er sár

svíður hjarta.

Tómleiki og tár

tilfinning svarta.

Samt lifir sú von

að góð sé þín köllun

minn elskaði son

á Ódáinsvöllum. 

  

Ljúflingur og ljósið mitt

leggðu á veginn bjarta.

Löngunin og lífshlaup þitt

liggur mér á hjarta.

 

Í dýpstu sorg um dáinsgrund

döprum hug mig teymdir.

en fórnfýsi og fagra lund

í fylgsnum hugans geymdir.

 

Ekki barst þú mikið á.

Elsku sonur mildi.

Varst samt alltaf þar og þá.

Þegar mamma vildi.

 

Í mér sorgin situr nú

sárt er upp að vakna.

Hér ég vildi að værir þú

vinur þín ég sakna.

 

Englarnir nú eiga þig.

engan frið það lætur.

Við það sætta má ég mig

móðirin sem grætur.

 

Elsku Júlli ástin mín.

yfir þér nú vaka.

Allir vættir. Ævin þín

er óvænt stefnutaka.

 

Ég veit að elsku mamma mín

miðlar með þér gæsku.

Hún var æðsta ástin þín.

öll þín árin æsku .

 

Nú gráta blessuð börnin þín.

bestur alltaf varstu.

alltaf setja upp í grín.

alla tilurð gastu.

  

Sendi ég þér sátt og frið.

með söknuði í hjarta.

held þú eigir handan við,

hamingjuna bjarta.

 . 

 

 


Tvö bréf og kúlulíf.

Tvö bréf.  Ég hef sagt frá því áður að ég sendi bæði syni mínum og þáverandi tengdadóttur oft bréf meðan þau dvöldu í fangelsi.  Ég held að fólk sem hefur lent á rangri braut í lífinu þurfi á því að halda að vita að það er einhver þarna úti sem þykir vænt um þau.  Þetta er auðvitað ekki algilt frekar en annað í þessum heimi.  Mér leið alla vega betur sjálfri og líðu ennþá betur í dag vegna þessa. 

Ég ætla að birta hér núna tvö bréf sem ég skrifaði, annað til Júlla míns hitt til vinar hans.

Ísafirði 19. desember 1997.

 

Sæll Máni minn.

ég vona að þú hafir það bara gott. Þrátt fyrir allt.  Ég veit að það er alltaf erfitt þegar þessi tími nálgast að vera einn.  En þú skal muna samt að það eru margir sem þykir vænt um þig og hugsa til þín þannig að maður er raunverulega aldrei einn.   Það er alltaf einhver þar til staðar fyrir mann, ef maður bara réttir út hendina.   Mérr finnst það gott mál að þú ætlir að gera eitthvað í þínum málum.  Eins og ég sagði áður, þú átt svo sannarlega margt gott að hverfa til ef þú bara kemst upp úr vitleysunni.  Og það er sannarlega þess virði. ég er líka alveg sannfærð um að þrátt fyrir allt þá er þetta kjörið tækifæri til að vinna bug á sjálfum sér.  En mundu að þú verður að sættast við sjálfan þig og læra að elska sjálfan þig.  ef þú getur það ekki, þá getur þú ekki ætlast til að aðrir geri það heldur.  þess vegna skaltu þegar þú horfir í spegilinn segja við sjálfan þig "Máni mér þykir vænt um þig". Þú skal segja það alveg þangað til þú trúir því sjálfur.

Talaðu líka við líkamann þinn og segðu honum að þið ætlið sameiginlega að sigrast á fíkninni.  Ég veit Máni minn að þetta er hægt. Og hugur manna er svo sterkur að hann sigrar allt.  Þú þarft bara að temja huga þinn.  Þess vegna er kanske góður tími þarna til að nota einmitt til þess.  Þú getur sest niður alltaf á sama tíma og hugsað upp í ljósið og kærleikann.  Biddu um styrk og þrek til að standa þig.  Ég get lofað þér því að þú munt finna þína leið út úr þeesssu þannig.  Gerðu þetta bara fyrir sjálfan þig.

Það er alveg með eindæmum hve veðrið er gott þessa dagana, maður trúir því varla að það skuli vera 19. desember það er alveg auð jörð og hlýindi.  Þetta styttir óneitanlega skammdegið fyrir manni.  Enn og aftur hafðu það gott Máni minn og líði þér ve.  Kær kveðja Ásthildur.

 

Ísafirði 24. mars 1997.

Halló elsku Júlli minn.  Hvað segirðu í dag? Allt gott vonandi.  Héðan er allt gott að frétta.  Veðrið er gott.  Setning Skíðavikunnar fór vel fram í gær.  Svo voru tónleikar um kvöldið með Emilíönu Torrini, Stefáni Hilmars og K.K.  Jóhanna fór með Arnar son sinn þangað og amma og afi voru að passa litla prinsinn.  Hann var dálítið óþekkur í nótt og Jóhanna greyið sagði " vildi óska að Júlli væri heima, þá myndi ég láta hann vaka með hann".  Ég sagði að það myndi hann örgglega vilja gera.  Hjúkrunarkonan sem kom og skoðaði hann um daginn sagði að það væri eðlilegt að þau tækju svona dillur þegar þau væru 2ja vikna. Þá tækju þau vaxta kipp og þyrftu alltaf að vera að borða. Hvolparnir eru líka farnir að borða.  Þeir eru komnir fram í garðskála og Tinna er ekkert ánægð með aað þurfa að sofa frammi hjá þeim.  Hún vill bara komast inn í hlýjuna.  Hvolparnir eru ágætir þeim finnst gott að fá volga mjólk á morgnana.  Jæja elskan nú sendum við þér myndirnar af litla manninum.  Ég er viss um að þér finnst dálítið skrýtið að eiga svona lítið krýli.  En þú átt nú eftir að kynnst honum betur.  Hann er óttalegt flón ennþá, gerir sér takmarkaða grein fyrir umhverfinu.  Ég held að hann skynji bara mömmu sína og þá af því að hann þekkir af henni lyktina og hún gefur honum að borða.  En þetta kemur furðufljótt. Ég ætla ekki að hafa þetta engra núna elskan. Ég vona bara að þér lði vel. Líttu á þetta sem prófstein á þolinmæði.  Ef þér tekst að takast á við sjálfan þig og vinna sigur ertu nokkuð öruggur um að standa þig þegar þú kemur út aftur. 

Mundu að okkur þykir vænt um þig.  Og það verður gaman þegar þú kemur heim.

Bless elskan.  Mamma.

IMG_0585

Á góðri stund í Kúlu.

IMG_4131

Synir með pabba sínum.

IMG_4743

Litla fjölskyldan.  Þau og Úlfur er það besta sem henti Júlla minn.  Heart

IMG_4256

ég týni saman fiskana sem voru í íbúðinni hans og setti þá í þennan glerskáp, þar verða þeir þangað til drengirnir okkar komast til vits og ára.

IMG_4259

Fiskarnir hans. 

IMG_4258

Þessi er nýlegur.

En það er ekki bara sorg í kúlunni.  Mamma er komin heim og tvær litlar telpur eru svo glaðar.

IMG_4232

Það var gaman að taka upp úr töskum og skoða hvað mamma hefði meðferðis.

IMG_4234

Margt fallegt kom í ljós.  Flott föt og fleira skemmtilegt.

IMG_4237

Og svo er það knúsírúsínan mín.

IMG_4241

Mamma er alltaf það besta sem maður á.

IMG_4243

Þrjú á einum hesti.

IMG_4245

Töffaraskvísa.

IMG_4246

Og nú er það mamma sem matar, pabbi kemst ekki lengur.  En hann fylgir syni sínum alveg örugglega.

IMG_4247

Alltaf jafn flott.

IMG_4249

Í nýjum fötum á leið í leikskólann í morgun.

IMG_4253

Hún kann þetta ennþá. 

IMG_4254

Og litla skottið og Músin.  Sem reyndar er rotta.  En það má ekki segja það.  Þetta er nefnilega músin.

En í dag förum við öll saman í kistulagninguna.  Drengurinn okkar tilbúin til að fara sína hinstu ferð í kirkjuna.  Og við að reyna að vera sterk og kveðja með reisn.  Í dag kom Haukur.  þ.e. Þorsteinn Haukur vinur okkar og flutti okkur lag sem hann hefur samið við ljóðið mitt.  Ég bað hann um að flytja lög í kirkjunni.  Þetta er yndislega fallegt lag.  Maður heyrir allt sem var Júllí í því.  Hafið, öldurnar og fjöllin.  Ég er svo ánægð með það.  Ég fæ disk og mun setja þetta hér inn eftir jarðarförina.  Það verða fleiri að fá að njóta þess sem Haukur hefur fram að færa.

Eigið góðan dag elskurnar og megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  Bréfin hér að ofan set ég inn til að hvetja aðstandendur til að muna að skrifa nokkur hughreystandi orð til sinna sem sitja inni.  Þó allt virðist vonlaust, þá er það bara ekki þannig.  Saga Júlla míns sýnir þrátt fyrir allt að hann gat risið upp og dó með reisn, með hreint sakarvottorð.  Það er alltaf von.  Þeirri von verðum við að hlú að, og með öllum ráðum blása í glæðurnar bæði með því að elska okkar brotnu börn, og gæta þess að þau njóti þeirrar verndar sem stjórnarskrá landsins gefur okkur. Heart


Bloggfærslur 8. október 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2023315

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband