Smá mömmó.

ég má ekki gleyma mömmunni út í Svíþjóð og ættingjunum á Hellu.  Hér koma nokkrar myndir af gleðigjöfunum mínum.

IMG_4562

Fyrst ein mynd af Brandi fyrir Jóhann. 

IMG_4564

Það er mikið föndrað og litað á þessu heimili.

IMG_4565

Skottan frekar lystarlaus aldrei slíku vant.

IMG_4568

Fiktarass.

IMG_4569

Amma taktu mynd!

IMG_4571

Þetta heitir að teygja sig.

IMG_4573

Hanna Sól vill fá krullur, hún ætlar að vera með flétturnar í þrjá daga, segir hún. 

IMG_4574

Voða fín.

IMG_4579

Prakkarinn okkar.

IMG_45731

Og ljúflingurinn.

IMG_4580

Uppáhaldsstaðurinn hennar.

En nú ætla ég að fara að leggja mig.  Vonandi sef ég lengur þessa nótt.  Ég ætla allavega að leggjast með öll hlýju orðin og faðmlögin ykkar og láta þau vagga mér í svefninn.

Mikið á ég gott að eiga svona marga yndislega vini og fólk sem hugsar til mín.  Og ég er óendanlega þakklát fyrir það.  Það hjálpar mér svo sannarlega.  Þúsund þakkir fyrir mig og eigið góða nótt og fagra drauma. Heart

Knús elsku Bára mín til þín.  Heart


Andvaka.

Enn ein andvökunótt.  Fólk spyr mig hvernig ég hafi það.  Það spyr af umhyggju fyrir mér, og fyrir það er ég þakklát. En mér vefst tunga um tönn.  Hvernig hef ég það?  Á daginn þolanlega, þá þarf að huga að ýmsu daglegu amstri, og svo eru það sólargeislarnir mínir.  Allstaðar er líka fólk sem kemur og knúsar mig og umvefur mig kærleika og umhyggju.  Það er notalegt. 

En á nóttunni, þegar ég vakna upp, þá læðast að mér allskonar hugsanir.  Söknuðurinn yfirtekur, og ég finn að ég er sundurkramin.  Og það er vont.  Ég sakna sonar míns, og veit að það er ekkert hægt að gera í því.

Nokkru áður en hann dó, sat hann hér á pallinum fyrir utan dyrnar í garðskálanum, þar sem hann sat svo oft.  Ég vissi að hann var að missa húsnæðið sem hann var í. 

Ég hef svo miklar áhyggjur af þér Júlli minn, sagði ég.  Þú verður að gera eitthvað í þessu.  Tala við Féló eða eitthvað. Ég veit að þau vilja gera eitthvað fyrir þig.

Ekki hafa áhyggjur af mér mamma mín, svaraði hann, þetta verður allt í lagi.

Ef ég bara hefði vitað að eftir nokkra daga......

Þá hefði ég tekið utan um hann, strokið vangann og smellt kossi á kollinn hans, eins og ég gerði stundum, sagt honum hve vænt mér þætti um hann.  Og að ég gæti ekki hætt að hafa áhyggjur af honum.  Hann var barnið sem þurfti mest á mér að halda.   Vegna þess að hann var viðkvæmur.  Samt var hann alltaf mesti töffarinn af þeim öllum.  Reyndar mesti töffarinn í skólanum á sínum tíma.  En samt alltaf þessi viðkvæma sál, sem ekki mátti neitt aumt sjá.  Setti alltaf alla aðra fyrir framan sig.  

Hugsanir leita á mig þegar ég vaki á nóttunni.  Þær snúast allar um drenginn minn, og oftast hvað ég hefði getað gert.  Þó ég viti að slíkar hugrenningar eru ekki til neins annars en að kvelja mig.  Ég veit líka að hann vill ekki að ég hugsi svoleiðis.  Allra síst hefði hann viljað upplifa mömmu sína sorgmædda, það veit ég.  Það er bara sumt sem maður ræður ekki við.

Það hafa margir þakkað mér fyrir skrifin mín hér.  Ég er þakklát fyrir að geta miðlað þessari reynslu minni, og sérstaklega ef það getur hjálpað öðrum.  Og það finn ég að það gerir.  Þannig vill hann einmitt hafa það.  Það er í hans anda.  Skrýtið hvað við tökum alltaf allt sem sjálfsögðum hlut, þangað til allt í einu því er kippt burt á einu andartaki.  Þess vegna er svo mikilvægt að við tökum hvern dag í einu, lærum að lifa eins og hver dagur sé sérstök gjöf.  Ég hugsa stundum um það hvernig mér hefði liðið ef við hefðum skilið ósátt.  Ef eitthvað slíkt hefði komið upp á og ég setið eftir með minningu um ósætti eða slíkt.  Það hefði verið óbærilegt.  Ég man ekki eftir að við værum nokkurntímann ósátt.  Ég hafði oft áhyggjur af honum, og var stundum örg út í hann út af einhverju, en það var aldrei neitt alvarlegt.  Við vorum alltaf vinir.  Hann var líka svoddan ljúflingur að það hefði aldrei verið hægt að vera reið við hann lengi. 

Nú sit ég hér, nóttin læðist yfir

næðingur um sálu mína fer.

Hugsanir um allt sem hérna lifir.

Hjálpa mér að muna eftir þér.

 

Sofðu rótt, ó sonurinn minn góði.

Sofðu vinur, mamma vakir nú.

Um þig vef ég ást mína með ljóði.

af öllu mínu hjarta og góðri trú.

Mín kæru, megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda.  Ég ætla að reyna að læðast upp í rúm og leggja mig.  Vonast til að geta sofnað.  Heart

 

 

 

 


Bloggfærslur 22. október 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023317

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband