Aðstaða listamanns og nokkur orð.

Þegar elskulegar vinkonur mínar og Júlla fóru heim daginn eftir jarðarför, þær Sigrún og Áróra, komu þær við á vinnustað hans og fundu fisk og fleira.  Áróra mín sagði, þið þurfið að fara niðureftir og huga að því sem þar kann að leynast.

Ég fór í dag.  Það tók á svo sannarlega á að fara þar sem hann var að vinna og sjá alla steinana sem hann var búin að týna til að vinna með, fara inn í aðstöðuna sem hann hafði og finna þar ýmislegt.  Ég var gjörsamlega búin á sálinni minni.  Og ég er ennþá með grátin í kverkunum.  Elsku barnið mitt.  Þarna vann hann sín listaverk, og svo var annar staður sem ég heimsótti líka.  Þann þriðja þurfti ég ekki að fara á, en það voru gróðurhúsin okkar þar var hann meiri partinn af vetrinum að gera fallegu listaverkin sín.  Ó guð hvað þetta getur verið sárt.

Það er formlega búið að fara fram á að haldinn verði minningar sýning um hann á Ísfirskum Vetrarnóttum, núna í byrjun nóvember.  Þar skal allt gert til að verði honum til sóma.

IMG_4542

Þetta er gámurinn sem hann var að vinna í. Ekki nein súper aðstaða.  En við gáfum honum svokallaða ljósavél í afmælisgjöf í vor.  Svo hann gæti notað það sem þurfti til að skapa.

IMG_4543

Hér er aðstaða númer tvö.  Grunnur af gömlum hjalli frá pabba mínum.  Hér vildi hann halda sýningu í sumar og hér vildi hann fá gáminn sinn.

IMG_4544

En engum datt í hug að hann hefði svona lítinn tíma eftir.  Ég hef reynt að vera rökrétt og ekki vera með samviskubit.  En málið er að ég veit að ég hefði getað hvatt hann meira áfram og gert betur en ég gerði.  En það er alltaf þetta EF ekki satt?

Honum verður sýndur sá sómi sem hann átti skilið, það skal ég sjá um.  En fyrst og fremst gerði hann það sjálfur með því að vera frábær listamaður og hlý manneskja. 

Á blaðsíðu 14 í minningum mínum skrifa ég þetta m.a.

Hvers vegna skrifa ég!

Ég hugsa að aðalmarkmiðið þess að festa þetta niður á blað sé að reyna að skrifa mig frá þessari reynslu og sársaukanum, reiðinni og öllu sem því fylgir.  Koma þessari lífsreynslu út úr systeminu á mér.  Ef þetta hins vegar kemur fyrir almenningssjónir er það vegna þess að mér hefur fundist að einhverjar hrjáðar sálir í svipuðum sporum gætu haft af þessu nokkra fró og huggun. Inn í þessum blöðum eru nokkur bréf sem sína hversu langt ég fór í örvæntingu minni og hjálparleysi í tilraunum til að reyna að bjarga leifunum af sundurtættu lífi heillar fjölskyldu.

En ég segi góða nótt og takk fyrir mig. Heart


Bloggfærslur 19. október 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2023315

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband