Kajak og kvöldverður með góðum vinum.

Þrettándin var í gær, það er síðasti dagur jóla hér hjá okkur allavega. 

IMG_4957

Svona var veðrið í þá, en það rigndi heilan helling í dag svo nú er allur snjór á burt.

IMG_4958

Hnífdsdælingarnir vinir okkar frá Svartaskógi fóru með Ella á kajak í gær, enda var veður til þess.

IMG_4959

Fyrst var að velja sér kajak.

IMG_4960

Það verður svo skemmtiferð í Reykjanes um mánaðarmótin, þar sem við munum eyða helginni saman.

IMG_4962

En því miður gat ég ekki beðið eftir að þau færu á flot, því ég þurfti að fara og sækja stelpurnar.

IMG_4973

Okkur var svo boðið í mat í notalega heimilið þeirra í Hnífsdal, sem þau hafa nú dvalið yfir jól og áramót.

Þessi líka fína steikta rauðspretta.

IMG_4986

Og svo var spilað og leikið.

IMG_4989

Það var virkilega notalegt.

IMG_4999

Og Úlfur brá smá á leik.

IMG_5002

Birgit og Ásthildur skoða myndir.

Þau ætla sko að fara heim með bæði fisk og kjöt, sennilega harðfisk líka, svo er konfektið gott.  En fiskur og kjöt frá Vestfjörðum er það besta sem til er.

Svo var farið að leita að álfabrennunni, hún var svo í Bolungarvík svo við misstum af henni.

En þetta var samt frábært kvöld..


Dagný Dimmblá. Þú ert bestust.

Ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir núna, en ákvað að fresta því þar til seinna í dag.  Ég vil nota þetta tækifæri til að ræða um málefni Dagnýjar Dimmblár litlu hetjunnar sem fullorðið fólk er að rífa í sig eins og hungraðir úlfar.  Ég held að sambærilegt dæmi gæti verið Smáralindarbæklingurinn frægi.

En hverslagt réttlætiskennd eða skilningur er það hjá fólki að börn megi ekki tjá sig, það hljóti að vera eitthvað bogið við foreldrana, eða barnið hljóti verr af.

Það er ekki skeytt um að kynna sér málið, eða lesa það sem fólk skrifar sem nærri henni stendur.  Heldur ræðst hver um annan þveran í vandlætingu að fólkinu eins og um alvarlegan glæp sé að ræða. 

Þetta sama fólk segir ekki STAKT ORÐ UM FORELDRA SEM GEYMA BYSSU Á GLÁMBEKK í húsi þar sem eru unglingar.  Úr hvaða efnivið er fólk hér gert ?

Andskotans forræðishyggja.  Það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir á þessu, og sumir eru auðvitað hógværir.  En ég verð reið þegar ég sé að aðförin hefur ill áhrif á blessað barnið.  Hvað er þá skilningurinn og verndin?  Hvar er hún í ykkar huga, sem hér ráðist af vandlætingu fram á ritvöllinn, eða haldiði ef til vill að 8 ára barn kunni ekki að lesa.  Eða haldið þið virkilega að hún hafi ekki viljað sjá hvaða áhrif ræðan hennar hafði.  Auðvitað hélt hún að hún fengi plús fyrir frammistöðuna, við þráum öll viðurkenningu.  Og hvað blasir svo við?

Jú fordæming á foreldrum hennar.   Og að það hefði ekki átt að leyfa henni að tala.

Ég segi nú bara, fjandans afskiptasemi alltaf í fólki, og forræðishyggjan.  Já ég er orðin reið fyrir hönd litlu stúlkunnar og ég segi nú bara.

Dagný Dimmblá mín takk fyrir að þora að koma fram og segja ÞÍNA meiningu.  Ég veit að jafnvel átta ára gömul börn hafa meiningar, og oft heilbrigðari en fullorðna fólkið, sem lætur mata sig endalaust og ætlar því öðrum það sama. 

En hér ætla ég svo að endingu að setja inn færslu frá móðursystur hennar:

Innlegg frænku hennar.

Sjaldan hef ég heyrt jafn marga, opinbera fordóma sína og skinhelgi. Börnin eru líka þjóðin, ekki satt! Heldur fólk, að það sé hægt að vernda börn fyrir upplýsingum í upplýsingaþjóðfélagi? Heldur fólk, að börn hafi enga greind og geti ekki myndað sér skoðanir? Heldur fólk, að börn þessa lands verði ekki vör við kreppuna og allt krepputalið? Á sumum heimilum á fólk ekki fyrir mat, á öðrum heimilum eru foreldrarnir búnir að missa vinnuna. Heldur fólk, að það sé hægt að pakka börnunum inn í bómull og vernda þau fyrir raunveruleikanum?Stúlkan sem um ræðir, Dagný Dimmblá, er bróðurdóttir mín. Bráðskír, ófeimin og fylgin sér. Hún ákvað sjálf á sínum tíma, að búa til sitt mótmælaspjald, því hún vildi mótmæla á Austurvelli. Hún fór með pabba sínum á nokkra mótmælafundi, þessir fundir eru afar fjölskylduvænir svo ekki sé meira sagt: Fólk á öllum aldri, frá ungum börnum í barnavögnum upp í háaldrað fólk, og allt fer friðsamlega fram. Á einum fundinum fór hún til Harðar Torfasonar og bað um leyfi til þess að ávarpa næsta fund, því henni fannst vanta upp á að raddir barna heyrðust þarna líka. Pabba hennar leist ekkert á þessa hugmynd til að byrja með, og vildi í fyrstu ekki samþykkja þetta (hann sá fyrir ofstækisfull viðbrögð fordómafulls fólks, það gekk líka eftir). Hann lét þó undan henni að lokum, mest vegna þess að það eru mannréttindi barna að fá að tjá sig. Hún skrifaði ræðuna sjálf, pabbi hennar hjálpaði henni að hreinskrifa og þetta var alls ekki æft heima. Að hún hafi verið heilaþvegin eða fjölskyldan hafi att henni út í þetta er algjör fjarstæða. Allir sem þekkja Dagný Dimmblá vita það mæta vel. Henni varð heldur ekkert meint af atburðinum. Hún hefði getað átt mjög góða minningu um þetta: Hún hélt ræðu, sem hún skrifaði sjálf og hún stóð sig vel og fólk klappaði. Nei, það má hún ekki. Það þarf að eyðileggja upplifunina og snúa þessu upp í ofstæki og einelti. Henni hefur orðið meint af viðbrögðum ykkar bloggara við þessu. Eitrið sem vellur út úr sumum pennum hérna á moggablogginu, meðal annars, er til háborinnar skammar. Fjölskylda mín er kölluð kommúnistar! (ég hélt að þeir væru allir dauðir með kalda stríðinu!) Það á að senda barnaverndarnefnd á okkur! Við erum ásökuð um barnaníðslu og heilaþvott! Svo ég nefni lítið brot af þeim svívirðingum sem velta út úr bloggurum þessa síðustu daga. Dagný litla þorir varla út úr húsi og hefur átt erfitt með svefn síðustu daga. Hún verður sennilega líka að skipta um skóla vegna þessa. Þetta er á ykkar ábyrgð.

Þið bloggarar standið ykkur vel í því að brjóta niður unga sál, undir því yfirskini, að þið séuð að vernda barnið og berið hag þess fyrir brjósti. Mig langar að kasta upp. Þjóðin er greinilega ekki bara gjaldþrota í peningum, hún er líka að tapa vitinu að mínu mati, og svona skrif eru ekki greindu fólki sæmandi á neinn hátt. Þau sýna aftur á móti gjaldþrot andans og umburðarlyndisins.

http://siggahulda.blog.is/blog/siggahulda/  Hér er hægt að hlusta á ræðuna hennar líka.


Ætlar þetta engan endi að taka - er ekki komið nóg?

Ætli þetta eigi að vera brandari?

Ótrúlegt að horfa upp á þetta.  Heila þrjá klukkutíma ætla þeir að "gefa" Palestínu á degi hverjum, og drepa þá svo í 21 tíma þess í milli.  Opna hvað MANNÚÐARLEIÐ!!!  Er ekki allt í lagi með þetta lið.  Æ nei fyrirgefið, það er auðvitað aldrei í lagi með fjöldamorðinga, þeir þurfa blóð og mikið af því til að finna að þeir eru teknir gildir í samfélagi þjóða.  Eða hvað? 

Ég held að ráðamenn í Ísrael geri sér enga grein fyrir þvílíkan viðbjóð þeir hafa vakið hjá almenningi heimsins.  Þeir munu aldrei þvo þann blóðblett af sér, og eins og íslendingar hafa skuldsett börn og barnabörn, hafa þessir menn blóðgað alla sína niðja í þúsund ár.  Ó vei Ó vei mikil er reisn ykkar morðhundar og mikil er reisn ráðamanna heimsins meðan blóðið flæðir niður heimasvæði Palestínu og allt svínaríið liggur undir steinum. 

Megi þið hljóta þau örlög sem þið hafið skapað öðrum.  Megi allt það henda ykkur sjálfa sem þið ætlið palestínsku þjóðinni. 

Mér er farið að líða virkilega illa út af þessu öllu, og var þó ekki á bætandi  þegar haft er í huga ástandið sem ríkir hér á heimaslóðum.  Ætlar þetta engann endi að taka?  Hvar byrjaði talið um mannlega reisn?  Eða dýrslegar hvatir?  Og hvar er skilgreiningin þar á milli?  Er nema von að ég spyrji.   


mbl.is Hlé gert á árásum á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. janúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband