Sunnudagur og nýjasta hártískan ala Hanna Sól.

Sunnudagur og löng helgi að baki.  Ég er orðin bráðlöt og búin að snúa sólarhringnum við.  En á morgun hefst hið daglega líf á ný.

IMG_4837

Veitir ef til vill ekki af smá sykursjokki hehehehe...

IMG_4840

Prinsessan komin í nýjan kjól.

IMG_4845

Svo er skálað við Tinnu frænku í ávaxtatei með hunangi nammi namm.

IMG_4848

Fallegu óléttu tengdadæturnar mínar komu í heimsókn. 

IMG_4851

Og Hanna Sól búin að hasla sér völl í hárgreiðslugeiranum.  Þetta er hárgreiðslan árið 2009 ekki spurning.

IMG_4852

Stíllin hreinn og mikið í lagt, veitir ekki af í drunganum sem þyrmir yfir landsmenn, þessi hargreiðsla vekur gleði.

IMG_4853

Mamma kveður á morgun, það verður sorg í ýmsum hjörtum og sinni.  En í dag er í dag, þær eru í sundi og ætla að eyða deginum í gleði og fyrst og fremst saman. Heart

IMG_4855

Veðrið í dag er gott eins og sjá má.  Og birtan eykst dag frá degi, eitt hænuskréf í einu.

IMG_4856

Og þegar geislar sólar ná niður að Sólgötu á Ísafirði, drekkum við sólarkaffi sem er í flestum tilvikum pönnukökur og rjómi. 

Ég óska ykkur góðs dags og vona að ykkur líði öllum vel.  Eftir daginn í dag tökum við svo til við daglegt líf, og nóg er að vinna og gera.  Fyrst og fremst þarf að sinna sínum nánustu, síðan er að reyna að stilla saman strengina í mótmælum, til að vinna að rettlátu og skynsamlegu Nýja Íslandi.  Mér finnst sífellt feiri taka í sama strenginn, þó reynt sé á allan hátt að tala mótmælendur niður, týna til allt sem neikvætt er, gera jafnvel neikvætt úr góðum hlutum, eins og til dæmis með þessa litlu átta ára stúlku sem bað sjálf um að fá að tala á Austurvelli.  Ástæðan var, jú hún er bara átta ára.  Segir ekki að við eigum öll sama rétt án tillits til aldurs, kyns eða litarháttar?  Ég held nú það.  Á þá að útiloka líka fólk eldra en 70 ára af því að það á ekki að plata gamalt fólk?  Hvar liggja mörkin? Eða á ekki að leyfa þroskaheftum einstakling að tala, því hann hefur ekki vit á hlutunum ?  Eg þekki þroskahefta einstalinga sem hafa sko aldeilis góða sýn á menn og málefni.  Það hafa börn líka, þau hafa sína sýn og sinn skilning.  Af hverju mega þau ekki tjá sig? Nei fólk ætti aðeins að hugsa sig um. 

 

P.S: sá þessa færslu eftir að ég skrifaði þetta:

http://gretare.blog.is/blog/gretare/entry/761313/

Bloggfærslur 4. janúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband