Bara hreint úr úr mínu öskurreiða hjarta.

Ég vil byrja þennan pistil minn á fleygum orðum; kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki.  Þá er ég ekki að vísa til veikinda Geirs og Ingibjargar.  Heldur einungis að minna fólk á að maður á ekki að persónugera vandann. 

Ég er satt að segja alveg gáttuð, ég er fyrst og fremst gáttuð á því hve þykk hljóðhimnan virðist vera á stjórnmálamönnum ÖLLUM, og stjórnmálafræðingum, fréttamönnum og öllu heila valdaklabbinu í þessu þjóðfélagi. 

Þið hafið greinilega ekkert hlustað, ekkert heyrt eða viljið ekki vita ótíðindin; sum sé þau að mótmælendur vilja hvað!!! Jú ríkisstjórnia burt, seðlabankastjórana burt, fjármálaeftirlitið burt, útrásarliðið burt, spillinguna burt!!!

 

Er þetta svo erfitt að meðtaka? Ójá það er erfitt að fá það beint í æð að fólk vill ykkur ekki lengur.

Nú stendur yfir undirskriftasöfnun að mestu leyti byggðar á tillögum frá Nirði P. Njarðvík sjá hér   http://www.nyttlydveldi.is/ um að mynduð verði utanflokkastjórn, þar sem gerð verði alvarleg útttekt á lýðræðinu, farið yfir stjórnarskrána, fækkað þingmönnum og gerðar margskonar leiðréttingar og breytingar í átt að virkara og betra samfélagi. 

Ég get vel skilið að þið ágætu pólitíkusar hræðist slíka naflaskoðun, hvert og eitt ykkar, því svo sannarlega getur það haft mikil áhrif á stöðu ykkar sjálfra og aðild að Nýja Íslandi.  En ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐALATRIÐIÐ Í ÞESSU SAMBANDI, HELDUR ÞJÓÐIN SEM HEILD.  RÉTTARRÍKIÐ ÍSLAND ER Í HÆTTU SEM LÝÐVELDI EF EKKERT VERÐUR AÐ GERT.  Og núna er tíminn til að breyta.

 

Með hrókeringar milli flokka, eða hrókeringar milli manna í æðstu stöðum gerist ekkert af þessu.  Þið hafið þann samtryggingarmátt að ekkert kemst þar að annað en ykkar persónulegu þarfir, samanber eftirlaunafrumvarpið fræga og fleiri mál því tengd.

 

Við sem höfum mótmælt viljum breytingar, við viljum að þessi ríkisstjórn víki, og að sett verði á stofn utanþingsstjórn sem mun taka á þessum málum, síðan má kjósa eftir nýjum formerkjum.

 

            ÞIÐ HAFIÐ EKKI LENGUR TRAUST OKKAR, EKKERT YKKAR. Því miður fyrir ykkur. 

Þess vegna finnst mér afar ógeðfeld umræðan um hvort hér verður grænblá eða rauðgræn ríkisstjórn fram að kosningum.  Eða hvort einhver ráðherra tekur hattinn sinn og staf.  Það bara skiptir engu máli í þessu samhengi!

 

Hér hefur verið töluð hrein og tær íslenska af fólkinu í landinu, sem er að missa allt sitt, eða á í allskonar erfiðleikum og hefur misst traustið á valdastrúkturnum eins og hann leggur sig.

 

Því er það í hæsta máta sorglegt þegar æðstu stjórnendurnir, sem reyndar eru báðir fárveikir diskutera um hvernig ÞAU ÆTLA AÐ HAFA ÞETTA.  Umboðslaus eins og þau eru.

 

Ég hef fulla samúð með veikindum þeirra beggja, og finnst það dapurlegt að svo skuli vera komið fyrir þeim báðum.  En því í ósköpunum taka þau sér ekki frí og eftirláta öðru fólki að takast á við þau mál sem þarf að gera NÚNA.  Það er slíta þessu samstarfi og biðja um að skipuð verði utanþingsstjórn að vilja fólksins. 

Mér finnst það líka í hæsta máta ósmekklegt af þessu fólki að ætla okkur það að hafa sektarkennd út af veikindum þeirra, og vilja að við lítum á þau sem hetjur að standa í þessu svona veik.  Ég segi fyrir mig, ég vil það bara alls ekki.  Það er ekkert sem bindur ykkur við þær stöður sem þið nú hafið gegnt um árabil.  Við höfum fullan skilning á því að þið þurfið hvíld og næði til að hlú að ykkur sjálfum, og berjast til heilsu á ný.

 

Ég vil ekki persónugera þennan vanda.  Og ég fæ klíju af að hlusta á meðvirkniskórinn sem hér talar út í eitt, veitist að Herði Torfa og öðrum sem vilja halda okkar sjálfsögðu góðu óskum til streitu.

Ég hugsa stundum að það sé von að landið hafi sporðreists, þegar ég upplifi hverslags meðvirknishænur eru hér í stórum stíl, og eru nú að reyna að koma inn sektarkennd hjá þeim sem vilja standa á sjálfsögðum rétti sínum að mótmæla. 

Þeir segja að nú sé markmiðinu náð það verði kosningar í vor.

Það voru aldrei markmið mótmælenda að það yrði bara kosið í vor.

Markmiðin voru að þessi ríkisstjórn færi frá, Seðlabankastjórnin færi frá, fjármálaeftirlitið færi frá, spillingaröflin færu frá.  Að tekið yrði á spillingunni. 

Ekkert af þessu hefur verið gert.  Og nú eiga menn bara að sitja og þegja af því að formennirnir eru svo veikir að þeir eiga samúð okkar skylda. 

 

Það er fullt af fólki sem er veikt og þarf skilning, verður hætt að senda þeim reikninga eða veita þeim einhverja aðstoð svo þau geti lifað betra lífi?  Verður þar með tekið meira tillit til aldraðra og öryrkja af því að þau þurfa aðhlynningu?  Fá menn betri meðhöndlun af því að þeir eru jú veikir, af hendi hins opinbera?

 

Nei við persónugerum nefnilega ekki vandann.  Við höfum öll okkar djöful að draga, en við þurfum að lifa við það, og oftast án þess að almenningur þurfi að hliðra til fyrir okkur. 

Ég get svarið það að ég næ ekki upp í nefið á mér fyrir reiði.  Hér er hámark hinnar heimóttarlegu  lítilmótlegu þjóðarsálar. 

Landið er að fara til fjandans, og við eigum bara að setjast og bíða af því að tvær manneskjur hafa veikst og að þeirra eigin mati getur enginn annar sinnt þeirra störfum.  Þó hafa þau svo sannarlega andskotan ekki verið að gera neitt, ekki sýnilegt allavega. Og það sem verra er að það er fólk sem tekur undir þennan söng og vælir í kór.  Meðvirkniskór. 

 

 Þetta er mín sýn á málið, og ég bið ykkur kæru mótmælendur, látið ekki einhverjar skammsýnisraddir telja úr ykkur kjarkinn.  Við erum í fullum rétti til að halda áfram að mótmæla og mótmæla hátt og ennþá hærra en áður, ef þetta lið spillingar og samvirkni hefur ekki ennþá heyrt kröfurnar okkar.

Hún er tveggja ára í dag.

Skottan mín er tveggja ára í dag.  Þennan dag eða aðfararnótt hans sat ég út í Vínarborg þegar Bára mín fékk hríðarnar.  Bjarki maðurinn hennar fór með hana á spítalann, en ég fór inn til Hönnu Sólar.  Datt samt í hug að best væri að hringja í Ella minn og segja honum fréttirnar.  Fór fram til að hringja til að trufla ekki barnið.  En bak við hurðina voru geymt allskonar dót, innisnúrur og einhverjar aflóga hillur, sem ég er að hringja heyri ég dynk og höfðu dyrnar lokast og dótið dottið fyrir þær, þannig að ég gat ekki opnað.  þarna sat ég fyrir utan svefnherbergisdyrnar en inni svaf barnið og hundurinn.  Það var sama hvað ég reyndi ekkert gekk að opna, og um sjö leytið kom pólska ræstingarkonan og við reyndum áfram.  Svo heyrði ég að Hanna Sól var vöknuð, svo ég fór að tala róandi við hana gegnum dyrnar.  Las fyrir hana sögu og söng, hún var ótrúlega róleg.  Ég bað hana að reyna að taka dótið frá. Hún skildi ekkert í af hverju ég kæmi ekki inn, en hún var þá bara þriggja ára.  Loks bara gerðist eitthvað og sem ég rykkti í dyrnar opnuðust þær eins og ekkert væri.  Ég hef aldrei fundið skýringuna á því hversvegna í fyrsta lagi dyrnar smullu aftur, það hafði ekki gerst áður, og síðan opnuðust alveg fyrirvaralaust. 

En sem sagt litla skottan er hér og er tveggja ára í dag.

IMG_1360

Henni fiinnst gaman að búa um sig í tröppunum og þykjast sofa.

IMG_1584

Henni dettur allskonar hlutir í hug, og framkvæmir þá.

IMG_1611

Tjörnin hefur löngum haft aðdráttarafl fyrir litla prakkarann.

IMG_1646

Blómakona er hún líka eins og amma.

IMG_1709

Brandur fær líka sinn skammt af athygli.

IMG_1769

Hún getur líka verið algjör kjúklingur þessi elska.

IMG_1775

Og það er gaman að fara í sund.

IMG_1807

Og sum uppátækin eru kostuleg.

IMG_1821

Vínber eru líka góð.

IMG_1846

Best að fara varlega þegar endur eru einhvarsstaðar í nánd.

IMG_2091

Svo þarf að prófa allt.

IMG_2109

Henni þykir gott að borða.

IMG_3641

Og er sérlega hrifinn af kjöti.

IMG_2354

Sjáðu!!!

IMG_2401

Ég var að sulla.

IMG_3621

Já það þarf ýmislegt að máta og prófa.

IMG_3626

svo er best að skreppa út.

IMG_3635

Hún er líka skapmanneskja mikil.

IMG_3797

En alltaf til í að kyssa.

IMG_4336

Svo er hægt að skoða sjálfa sig frá öllum hliðum.

IMG_2310

Líka gott að knúsa ömmu.

IMG_2427

Og afa.

IMG_4351

Svo getur maður líka verið voða fín.

IMG_4371

Og á morgun fær hún pakka, og þá verður líka veisla.  Pabbi hennar ætlaði að koma í dag, en það var því miður ekki flogið, svo vonandi kemst hann í fyrramálið.

Innilega til hamingju með tveggja ára afmælið elsku Ásthildur Cesil mín !WizardHeart


Bloggfærslur 23. janúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband