20.1.2009 | 18:32
Í skugga ofbeldis lögreglu með piparúða og friðsamlegra mótmæla.
Mótmælin í dag voru afgerandi. Viðbrögð stjórnarliða er líka eftirtektarverður. Þorgerði Katrínu þótti verst að verið væri að trufla hana við vinnuna sína. Árni Mathiesen taldi að hann hefði ekki gert neitt rangt. Geir bað um þolinmæði. Hversu langt frá þjóðarsálinni er þetta lið eiginlega. Og hver voru svo þessi áríðandi mál sem alþingismenn voru að ræða? Jú þeir voru að ræða um líffæragjafir og hvort selja ætti áfengi í matvöruverslunum.
Getur einhver sagt mér hvað fólkið er að hugsa? Nei auðvitað ekki. Þau eru svo gjösamlega á svig við alla almenna skynsemi.
Ég held að lögreglan ætti að fara á námskeið í framkomu. Þeir voru þeir einu sem beittu ofbeldi Það vakti hjá mér vondar hugsanir að sjá þá standa þarna og rjúka upp af minnsta tilefni og sérstaklega þegar þeir beittu piparúðanum. Þegar gert verður hreint fyrir dyrum eftir að búið er að losna við spillingaröflin, verður að taka í gegn lögregluna og skoða hverjir þar eru sem beita valdi. Eru í Rambóleik. ´Sá ekki betur en aðgerðir þeirra væru fumkenndar, og allt í einu ákveðið að rýma þennan stað eða hinn. Og þá var ráðist til atlögu gegn óvörðu fólki.
Ég hef verið að reyna að gera mér í hugarlund hvað þetta fólk er að hugsa. Hvað er það sem gerir þeim svona erfitt fyrir að segja af sér. Að þau vilja vinna allt til að sitja áfram þó alveg sé ljóst að þjóðin hefur hafnað þeim. þau fórna ærunni, stoltinu og mannlegri reisn til þess að slímsitja hvað sem á dynur.
Hvernig líður þeim, þegar þau heyra hvern sérfræðinginn af öðrum, innlendan sem erlendan segja hreint út að þau séu í besta falli vanhæf í versta falli lögbrjótar. Eða hafa þau lokað öllum skilningarvitum?
Í flugi er ákveðin staður þar sem ekki er hægt að hætta við flugtak. (point of no return) Núna hefur ríkisstjórnin komist á þann punkt að hún á enga leið til að sitja áfram. Henni ber því að segja af sér og koma sér frá.
Mér líður eins og að hafa verið svipt inn í einhverskonar hryllingsmynd, þar sem allt getur gerst. Á nokkrum vikum hefur lífi mínu verið umturnað gjörsamlega. Ég var í öryggi sátt við það sem ég hafði, átti von á rólegum þægilegum tíma í ellinni. þessu var svipt burtu með einu pennastriki þjófa og ræningja. þessir ræningjar sitja ennþá og má ekki blaka við þeim, meðan almenningi blæðir, þar er enga miskunn að fá. Þeir skulu sko fá það óvegið, meðal annars piparúða, beint í augun ef ekki vill betur til.
En ekki nóg með það, heldur var mér kippt út úr umhverfi lýðræðis og inn í ógn alræðisríkis. Þar sem fólkið sem við höfum jú að vísu komið til valda, reynast einræðisherrar og sýna ekkert nema hroka og yfirgang. Ég er reið, en líka hjálparvana, því ég er að gera mér grein fyrir að ósvífið fólk hefur rænt okkur og ætlar að halda áfram að láta okkur blæða, meðan það er að hjálpa sínum auðkýfingum og ræningjum, enda má segja að sum þeirra allavega eru nú einhversstaðar nálægt bankageiranum, spurning um hversu náið. Og er svo firrt að það telur sig eða segist vera að bjarga okkur, moka skaflinn og vill frá frið.
Það er búið að gefa ykkur meira en þrjá mánuði til að bjarga okkur ágæta ríkisstjórn. Það er ekkert sýnilegt sem þið hafið verið að gera. Það tók eina kvöldstund að hækka á okkur áfengi og tóbak. En það tekur meira en þrjá mánuði að gefa út tilskipun um handtökur og rannsaka stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Hvað veldur?
Og í Guðsbænum ekki tala við okkur um hvað þið ætlið að gera í Nýju Íslandi, það er bara klám í ykkar munni. Við viljum ykkur ekki. Við erum búin að fá nóg, og þolinmæðin er á þrotum.
Þið hafið fengið rauðaspjaldið svo vinsamlegast komið ykkur burt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.1.2009 | 00:16
Af prinsessum og öðru fyrirfólki.
Eftir þessa framsóknaryfirhalningu er ekki úr vegi að setja inn smá prinsessumyndir og af öðru góðu fólki.
Prinsessur eru vanmetnar í dag allavega mínar þær hafa sterkan persónuleika, og þó þær séu ungar að árum þá hafa þær stálvilja allavega þessar sem hér eru kúluprinsessurnar mínar.
Sjáið bara, þær eru til í hvað sem er.
Og flottar eru þær.
Þessi prinsessa átti langt samtal við afa sinn um daginn, þar sem hann útskýrði fyrir henni að þeir fyrstu yrðu siðastir og hinir síðustu fyrstir. Hún vill nefnilega alltaf vera fyrst, inn í bílinn, út úr bílnum, og núna síðast vakna fyrst af öllum. Og eftir þetta samtal, sagði hún við ömmu, ég vil vera fyrst, og þess vegna má Ásthildur fara fyrst út úr bílnum, af því að þeir sem eru fyrstir verða síðastir og þeir sem eru síðastir verða fyrstir. Og þannig er það bara núna.
Málið er að börn eru miklu eftirtektarsamari en fullorðnir. Og þau fylgjast miklu betur með því sem er að gerast í kring um þau en fullorðið fólk, og þessi litla dama var farin að íhuga málin, sá að sú stærri var alltaf á undan, og svo kom að því að það gerðist sem ég vissi að myndi gerast, hún sagði É fytt!
Já málið er að hún er ekki alveg búin að ná þessu með síðastir og fyrstir, svo ennþá er allt í jafnvægi
Amma sagði Úlfur, þú setur aldrei inn myndir af þér, þessi fer á netið sagði hann um leið og hann smellti af. Og auðvitað er það netið....
Hér er svona pabbaprinsessa, en nýtur athygli frá föðurbróður líka.
Og svo er dundað sér við eitt og annað þar sem tvær prinsessur koma saman.
Skipst á ýmsum hlutum og svona. Einhverju sem skiptir máli og svoleiðis.
Og samningar hafa náðst, enda hvað er peli eða afaskyr á milli vina.
Og maður er manns gaman.
Og alltaf gaman að fara í smáreiðtúr, þó bykkjan sé bara rugguhestur.
Og svo er haldið heim á leið.
Þó sumir dundi sér við að horfa á videó.
Svo blundar alltaf þessi modelismi í manni frá unga aldri heheheh
Já það er hægt að vera ansi frumlegur þó maður sé ekki orðin tveggja ennþá.
ég verð að fara að gefa mér tíma til að þrífa þennan spegil. En einhvernveginn þá hleypur draslið ekki frá manni. Allt hitt tekur meiri tíma, og gefur manni meira.
Þetta er veðrið í gær.
Veðrið í dag kemur örugglega á morgun hér. Ein eigið góða nótt elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 20. janúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar