13.1.2009 | 21:27
Fjallamyndir og veður á Ísó.
Veðrið er gott hér fyrir vestan þessa dagana.
Pápi gamli komst í mat, því hægt var loksins að aka alveg upp að dyrum í kúlunni. Við grilluðum meira að segja.
Lítill stubbur í heimsókn.
Ásthildur fær sér kex..
Ó Ó brennandi heitt segir hún og passar sig voða vel.
Veðrið í gær, það er greinilega orðin meiri birta og dagarnir lengjast.
Veðrið var líka fallegt í morgun.
Og fyrstu sólargeislarnir á fjallatoppnum, svo færist hún neðar og neðar.
Ó þú Íslenska fjallatign.
Í morgun var Snæfjallaströndin bleik, svo varð hún blá.
Kyrrð og lygna á Pollinum.
Og Ísafjörður kúrir milli fjallanna.
Þó snjór hylji jörð þá þarf samt að framleiða meiri snjó í skíðabrekkurnar.
Þessi er fyrir Sigrúnu, tekinn á Suðureyri og Gölturinn blasir við.
Og hann Júlli minn er sífellt að þróa betur tæknina, þessi steinbítur er næstum ætur svei mér þá.
Svo segi ég bara góða nótt og sofið rótt. Setjið áhyggjurnar og reiðina í hvítan poka og sendið hann upp í ljósið og kærleikann. Hafið ekki áhyggjur af því að það komi ekki nýjar á morgun til að takast á við. Bæði ný verkefni og nýjar áhyggjur, þess vegna er ágætt að tæma þær burtu á kvöldin, maður sefur betur á eftir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
13.1.2009 | 12:36
Tveggja ára grein - hefur þróun mótmælanna verið lengur í bígerð en okkur órar fyrir. Hefur akurinn verið plægður smátt og smátt undanfarin ár?
Ég var að fara yfir greinar sem ég hef skrifað og geymt í tölvunni minni. Þessi grein sem ég set inn hér er orðin nokkurra ára, eða meðan Framsóknarflokkurinn var ennþá við völd. Það er skondið að lesa þetta núna tveimur árum seinna.
Greinin.
Ég hef verið að spá og spekulera.
Meðan Mogginn var aðalmálgagnið og allir lásu moggann, þá lá áróðurinn þannig, að stuttklipptu vatnsgreiddu strákarnir, í bláu jakkafötunum með bindin og draktarkonurnar úr Heimdalli voru IN, þau voru töff. Það þótti æðislegt að tilheyra þessum hópi.
Í dag, þegar menn lesa fleira en bara Moggann og Fréttablaðið er orðið jafnvel útbreiddara en hann, þá hefur þessi mynd einhvern veginn skekkst.Þeir eru ekki lengur í tíxku. Fólk er farið að sjá í gegn um taktana, sem er örugglega kennd í stjórnmálastkólanum. Þ.e. að brosa yfirlætislega að tilsvörum andstæðingsins, saka hann um rökleysi og kjánagang, hafa hærra en næsti maður. Og svara með skætingi, benda helst á eitthvað annað, ef spurningar gerast óþægilegar.
Nú er eins og MUSSULIÐIÐ, þetta fína nafn, sem okkar menn hér hafa gefið okkur sem ekki fylgjum harðlínu sjöllum að máli, eigi meiri hljómgrunn meðal fólks almennt.
Nú virðast þessir vatnsgreiddu yfirlætisfullu menn og konur standa fyrir hroka og græðgi, og ekki töff heldur frekar eitthvað sem er á útleið.
Þetta er allavega mín tilfinning.
Glottið þeirra er ekki lengur töff, heldur frekar ógeðfellt. Og fínu fötin standa frekar fyrir lífstíl þeirra sem geta krafið þjóðfélagið um milljónir í laun, meðan aðrir eiga ekki fyrir salti í grautinn.
Ég er að tala um ímyndir en ekki fólkið sjálft. Þessar ímyndir sem hafa verið skapaðar af hugmyndafræðingum í sjálfstæðisflokknum.Auðvitað er fullt af öðruvísi sjöllum hér, og annarsstaðar, sem er elskulegt fólk, og fylgir þessari tegund stjórnmála af trú á að þetta lagist, eða að ekkert annað sé betra. En þetta fólk á sér ekki neina framavon í flokknum, vegna þess að það játar ekki öllu fortakslaust.
Svona á heildina litið, þá er farið að flísast vel upp úr þeim flokki sem kenndi sig við flokk allra stétta, en sem er í reynd nú í dag, einungis flokkur þeirra ríku og valdamestu.
Ég held að opin umræða og gagnrýnni á stjórnvöld hafi opnað augu margra, og ég held að opnar spjallrásir eigi þar ef til vill meiri hlut að máli, en flest annað.
Fólk heyrir fleiri sjónarmið, og getur betur valið hverju það vill trúa. Fátækleg rök margra sem bara fara með sömu frasana aftur og aftur, hafa líka sýnt fólki hver trúverðugleiki þeirra aðila eru.
Með Framsóknarflokkinn, þá skilja fáir, hvernig þessi flokkur hefur alltaf verið við kjötkatlana miðað við það fylgi sem þeir hafa haft. Og núna þegar valdabrölt þeirra opinberast almenningi, með þeim hætti sem nú er, þá verður enn erfiðara að skilja þetta.
En ráðamenn þjóðarinnar eru sennilega komnir svo langt frá almenningi, að þeir hafa ekki hugmynd um að fólk hugsar, eða taki sjálfstæðar ákvarðanir.Allstaðar þar sem menn hafa verið of lengi við völd, og þetta á við um allar stefnur og strauma, þá hefur valdagræðgin og fjarlægðin frá pöplinum orðið þeim að falli. Þegar slík gjá hefur opnast að fólk unir ekki lengur því sem það sér gerast.
Þetta er að gerast hér núna, bæði í ríkisstjórn og líka í bæjarfélögum. Þess vegna held ég að það séu spennandi tímar framundan í pólitík.
Ófyrirsjáanlegir hlutir muni gerast. Ég sé líka fyrir mér að upp spretti fleiri stjórnmálaflokkar, þegar menn sjá að akurinn er þegar plægður, þá er um að gera að kaupa sér dráttarvél og plægja líka.Mín tilfinning er sú að þetta gerist fyrr en okkur grunar. En það er bara mín tilfinning. Hér hefur lengi verið ólga í samfélaginu. Ýmsir hópar sem hafa kallað eftir leiðréttingum. En nú er að fara af stað þung undiralda, sem ekki verður svo auðveldlega stöðvuð. Og þeir sem á eftir koma, munu ekki voga sér að hlusta ekki á fólkið.
Það er líka það besta sem gæti gerst fyrir lýðræðið í landinu, það litla sem eftir er af því (lýðræðinu). Að almenningur rísi almennilega upp, og láti ráðamenn finna, að stjórnmál í einu landi, er ekki bara tveggja manna tal í bakherbergjum. Heldur samráð og samvinna 63 alþingismanna á Alþingi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 13. janúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar