10.1.2009 | 16:26
Silfurtorg - mótmæli.
Fundurinn var frábær. Nú finn ég hvað það er nauðsynlegt að fólk komi saman hlýði á kjarnyrtar ræður og finni samstöðuna. Það þyrfti að gerast í hverjum bæ og bóli til að vekja fólkið upp til umhugsunar.
Ræðurnar voru fínar fundarstjórinn góður og allt fór vel fram.
Veðrið var betra en ég hélt.
Fyrst var farið að ná sér í skilti.
Svo að taka sér stöðu.
Fólk streymdi að úr öllum áttum, ég hugsa að þarna hafi ekki verið undir 150 - 200 manns.
Fólk sem ekki lét veðrið aftra sér og ekki var veikt.
Stubburinn valdi sér spjald við hæfi.
Hér er fundarstjórinn Guðmundur Þór.
Herdís Hübner hélt góða ræðu. Hún bar saman þegar útrásarvíkingar voru að fara í skemmtireisu fyrir skömmu sem kostaði 4 milllur á manninn, var á sama tíma verið að bera aldrað fólk út af íverustöðum sínum, nauðugt og koma þeim fyrir eins og ám í stíu tveim og þrem saman í herbergjum.
Lýður sagði að hann hefði komist að því að meðan við hefðum verið um borð í þjóðarskútunni, hefðu stjórnvöld alls ekki verið þar þegar skútan sigldi í strand, þeir hefðu verið í þotunum einkasnekkjunum og heimsreisum útrásarfurstanna, það hefði verið svo gaman að þeir hefðu ekki mátt vera að því að sigla fleyi til hafnar, því fór sem fór.
Burt með þetta lið.
en ég er viss um að það verða fleiri næst.
Þó veðrið sé kalt þá er bara að klæða sig vel.
Það má engin skorast undan að láta álit sitt í ljósi. Þá er ég að tala um fólkið sem vill breytingar, hinir sitja auðvitað bara áfram á sínum rassi og njóta ylsins heima hjá sér svo lengi sem hann varir.
En angarnir mínir fóru út að leika í snjónum í dag.
Það er gaman að leika og byggja snjókarla og hús.
En eigið góðan dag elskurnar mínar. Ég er allavega rosalega sátt við daginn. Takk félagar mínir sem voruð með mér á Silfurtorginu og þeir sem fjölmenntu á Austurvöllinn og allir sem mótmæla í hjarta og sinni. Samstaðan er mikilvægust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.1.2009 | 12:20
Vakningarræðan hennar Láru Hönnu!
10.1.2009
Ó, þjóð mín þjóð
Hvar ertu?
Hvar eruð þið, sem ræðið um byltingu í heitu pottunum og á kaffistofunum?
Hvar eruð þið, sem fordæmið bankamenn og útrásarauðmenn?
Hvar eruð þið, sem skammið ríkisstjórn, alþingismenn og embættismenn?
Hvar eruð þið, sem hallmælið gróðærinu og viljið annað siðferði?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við aðgerðir og aðgerðaleysi ráðamanna?
Hvar eruð þið, sem viljið réttlæti öllum til handa, ekki bara sumum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á hlutabréfakaupum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á peningamarkaðssjóðum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað lífeyrinum ykkar?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við að bankarnir afskrifi skuldir auðmanna?
Hvar eruð þið, sem viljið ekki selja þeim fyrirtækin aftur skuldlaus?
Hvar eruð þið, sem viljið jafnræði?
Hvar eruð þið, sem sjáið húsnæðislánin ykkar rjúka upp?
Hvar eruð þið, sem hafið misst vinnuna?
Hvar eruð þið, sem viljið kosningar og nýja stjórn?
Hvar eruð þið, sem teljið réttlætiskennd ykkar misboðið?
Hvar eruð þið, sem eruð að lenda í heljargreipum verðtryggingar - sumir aftur?
Hvar eruð þið, sem viljið láta frysta eigur auðmanna?
Hvar eruð þið, sem fordæmið leynd og ógegnsæi aðgerða stjórnvalda?
Hvar eru þessar tugþúsundir sem eru í viðráðanlegri fjarlægð, við sæmilega heilsu og ættu að mæta á Austurvöll klukkan 15 á laugardögum og tjá óánægju sína með nærveru sinni þar? Eruð þið í Kringlunni eða Smáralind? Heima að horfa á enska boltann eða þrífa? Í sundi eða húsdýragarðinum? Hvar eruð þið?
Það eru 168 klukkutímar í einni viku. 8 tíma svefn á nóttu eru 56 tímar. 10 tímar í vinnu og ferðir 5 daga vikunnar eru 50 tímar. Eftir eru 62 tímar í viku. Hvernig í ósköpunum stendur á því að þið getið ekki séð af 1 klukkutíma til að mæta á Austurvöll og tjá með nærveru ykkar að þið séuð ekki sátt við ástandið í þjóðfélaginu og hvernig er tekið á því?
Ég bara næ þessu ekki.
Hvort ætli sé mikilvægara - hvort Manchester United vinnur Chelsea í dag eða hvort þið eigið þak yfir höfuðið til að horfa á leik eftir nokkra mánuði? Hvaða máli skiptir hvort þið farið í sund klukkan tólf eða þrjú? Eru Kringlan og Smáralind ekki opnar á öðrum tímum en milli þrjú og fjögur á laugardögum? Hvar í andskotanum eruð þið?
Hvernig réttlætið þið það, að láta okkur hin - par þúsund manns eða svo - heyja baráttuna fyrir ykkur? Hvað gerir ykkur svo sérstök að þið séuð undanþegin því að taka þátt í að berjast fyrir framtíð ykkar sjálfra, barnanna ykkar og barnabarnanna? Hvernig í ósköpunum stendur á því að þið berið ekki hönd yfir höfuð ykkar og látið aðra um að mæta á mótmælafundi fyrir ykkur? Hvar er sú gagnrýna hugsun sem ykkur var gefin í vöggugjöf?
Hvað ætlið þið að segja barnabörnunum ykkar þegar mótmæla- og borgarafundirnir eru komnir í sögubækurnar? "-Varst þú þarna, afi? -Nei, ég var heima að horfa á enska boltann. -En þú, amma? -Nei, ég fór alltaf í Kringluna á laugardögum." Eða ætlið þið kannski að ljúga og segjast hafa tekið þátt í mestu hugarfarsbyltingu Íslandssögunnar án þess að hafa lyft litlafingri eða mótmælaspjaldi? Hvar er réttlætiskennd ykkar?
Ég bara skil ykkur ekki.
Eruð þið virkilega ekki búin að fatta hvað er á seyði? Horfið þið ekki eða hlustið á fréttir? Vitið þið ekki að það er búið að arðræna þjóðina, stjórnvöld hylma yfir með sökudólgunum og enginn er látinn sæta ábyrgð? Vitið þið ekki að heilbrigðisráðherra er að leggja heilsugæsluna í rúst til að einkavæða hana og gefa auðmönnum - að hann hefur ekkert lært? Hvar eruð þið, heilbrigðisstéttir þessa lands á frívakt á laugardögum?
Ef einhver er í vafa um hvort tilefni sé til að mæta á Austurvöll klukkan þrjú í dag eru hér þrjú myndbönd til að skerpa sýnina. Þetta eru fréttir Stöðvar 2 og RÚV 8. og 9. janúar - í gær og í fyrradag. Bara tvö kvöld - og bara þarna eru ótal tilefni. Hvað þá í fréttum undanfarinna þriggja mánaða. Og myndband af Sjónvarpi Mbl.is þar sem grunur minn í síðasta pistli er staðfestur - það á að einkavæða heilbrigðisþjónustuna að amerískri fyrirmynd. Ég - fyrir mína parta - mótmæli því af alefli! En þið?
Stöð 2 - 8. og 9. janúar 2009
RÚV - 8. og 9. janúar 2009
Mbl Sjónvarp - 8. janúar 2009
Elskurnar mínar - ef þetta nægir ykkur ekki, ofan á allt sem á undan er gengið - þá veit ég ekki hvað þarf til að vekja ykkur af gróðærismókinu. Sjáumst á Austurvelli í dag og alla laugardaga þar til árangur næst - klukkan þrjú
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/767334/#comment2092491
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 10. janúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar