Daglegt líf.

Stóra litla stelpan mín er rosalega kúl.  Það byrjaði með því að Úlfur fór í stelpuafmælið, og þurfti auðvitað að greiða lubbann, hann greiddi allt hárið út í aðra hliðina, til að vera kúl hehehe... síðan er Hanna Sól afar upptekin af því að vera kúl. 

IMG_1720

Amma er ég ekki kúl?  Og svo dettur hárið alltaf niður, en það er jafnóðum greitt upp aftur.  enda burstin ávalt við hendina.

IMG_1722

Hún virðist vera alveg saklaus og hættulaus hehehe... en það er bara á yfirborðinu.  Hún er mjög fundvís á allt sem ekki má.   Annars er hún búin að vera rosalega dugleg í morgun, tvisvar búin að pissa í koppinn. 

IMG_1723

Það er nefnilega frí í leikskólanum, starfsdagur hjá fóstrunum.  En Ásthildur hefur verið dugleg við að leika sér að byggja lestarteina. 

IMG_1724

Meðan stóra systir nýtur þess að vera bara heima í fríi.

IMG_1726

Já hér er hún að fá sér hárnæringu.  En bara alls staðar annarsstaðar en í hárið LoL Reyndar tók Hanna Sól þessa mynd.

IMG_1729

Í hádeginu var svo lagt á ráðin um að fanga bófa.  Það á að grafa holu, og láta þá detta ofan í.  Svo er spurning hvort eigi að setja þá í poka, en allavega á að færa löggunni þá. 

En dagurinn er annars góður, það er sólarlaust en mjög hlýtt og notalegt.  Eigið góðan dag. Heart


Klukk!!!

Klukk númer tvö

Klukkuð af Margréti Hafsteins.  Nú þarf ég að leggja höfuð í bleyti og finna út eitthvað um sjálfa mig, sem ég hef ekki spáð mikið í undanfarið.  Hef reyndar mjög einfaldan smekk. Smile

Fjögur störf sem ég hef unnið um Ævina

Vann í frystihúsi sem unglingur. 

Líka í Apoteki, og fattaði að það er alveg rétt sem fólk segir um að læknar skrifa illa, að minnsta kosti lyfseðla.

Vann um tíma við að breiða út á steina saltfisk, þegar ég var barn.

Síðan hef ég unnið við garðyrkjustörf eða í tæp 30 ár.

Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á

Nynd sem ég gleymi seint It´s a mad mad mad world. Út af Terry Thomas ógleymanlegur í þeirri mynd, blessuð sé minning hans.

Silent movie

Mamma Mía

Three men and að baby.

Fjórir staðir sem ég hef búið á

Ísafirði,

Reykjavík, stuttan tíma

Glasgow 2 ár.

Vimmerby einn vetur.

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkarInspector FrostColumboÞættir eftir Agötu ChristieSherlock Holmes.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium

Mexico

Guatemala

Belize

New Orleans.

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

BB

Skutull

 

Mbl

Málefnin.com

Fernt sem ég held upp á matarkyns

Lambakjö

Melónu

Harðfisk

Hrefnukjöt

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

Harrý Potter

Agötu Christie

Garðblómabókin

Íslensk flóra.

Fjórir bloggara sem ég klukka

Elísabetu “Liso”

Icekeiko

Antoniu

Helgumagg.

Bloggfærslur 8. september 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband