Veðrið á Ísafirði og smá mömmublogg.

Mömmukrúttfærsla.

IMG_1668

Það er verið að borða morgunmatinn hérna, Ásthildur vill fá bita líka LoL

IMG_1670

Svo er verið að gera sig klára í bílinn, og það er gott að hafa kexköku til að maula á leiðinni.

IMG_1673

Á Suðureyri eru svo ungar á tjörninni, þeir koma hlaupandi þegar maður birtist, og nú ætlar amma að hafa með sér brauð til að gefa þeim.

IMG_1676

Svanirnir eru farnir suður á bóginn. 

IMG_1679

Og í gær var Hanna Sól umsjónarmaður á leikskólanum, það er mikið ábyrgðarstarf, sem hún hefur áreiðanlega sinnt með miklum sóma.

IMG_1680

Litla skottið komin á leikskólann.

IMG_1682

Við fórum svo í sund eftir leikskólann.  Úlfur kom með sem sérlegur aðstoðarmaður.

IMG_1684

Hann er nefnilega rosalega duglegur að hjálpa ömmu sinni með stelpurnar.

IMG_1683

Eftir sundið var haldið heim á leið.

IMG_1688

Já það er fjör.

IMG_1690

Afi kennir þeirri stuttu að vaska upp !

IMG_1692

Og nú getur hún þetta alveg sjálf, enda rosalega gaman að sulla LoL

Veðrið er dásamlegt dag eftir dag.

IMG_1678

Hlýtt logn og friður.

IMG_1681

Gaman að sjá allt speglast í firðinum.

IMG_1699

Og tilkomumikið listaverkið sem umlykur allan pollinn, þegar fjöllin speglast í honum.  Það kemur yfir mann ró og friður.

IMG_1696

En þetta er næstum dagleg sjón hér á sumrin, sérstaklega á morgnana.

IMG_1700

Eigið góðan dag elskurnar.  Ég verð að biðjast afsökunar á hve ég hef lítið verið á ferðinni, en það er bara svo mikið að gera hjá mér þessa dagana.  Heart


Bloggfærslur 5. september 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband