Dagurinn í gær.

Það var mikið að gera hjá mér í gær.  Náttúrulega litlu skottin mín, sem tóku sinn tíma, svo átti einn vinnufélagi minn fimmtugsafmæli, og ég mætti í það auðvitað, í kósí fjárhúsi inn í Arnardal, þar sem búið er að gera upp sveitabæ af miklum dugnaði, og verður einskonar ferðamannaparadís, enda þau sem að honum standa kraftmikið ungt fólk. En Guðjón Jón Jónsson til hamingju með fimmtugsafmælið, og takk fyrir mig.  Ég þurfti að fara allt of snemma, því þetta stemmdi í virkilega skemmtilegt kvöld, og karlinn var með kjötsúpu í matinn.  Það er ekkert betra en heit ilmandi kjötsúpa.  Wizard

Svo var tónlistardagurinn, ég komst ekkert á hann, en Elli minn var að spila, og svo var Úlfur að spila líka.

 21.8.08 018

Afi tók þessar myndir.

21[1].8.08 014

Flottir. Einhvernveginn held ég að þeir séu að djassa, saxofónleikarinn hefur einmitt sýnt mikla framför í jassi undanfarin ár.

21[1].8.08 017

Kennarinn stubbsins hann Önundur, er alveg frábær, og nær svo vel til stráksins.  Enda hefur hann þetta allt í sér, þ.e. músikína sá stutti.

21.8.08 001

Svo er líka ósköp notalegt að eiga bara saman morgunstund með afa.

En svo átti Alejandra mín líka afmæli, og við vorum boðin í mat til þeirra.  Isobel er frábær kokkur.  Afi gamli var líka boðinn, og hann skemmti sér mjög vel. 

21.8.08 024

Í góðum félgasskap. Heart

21.8.08 032

Sú stutta búin að finna eitthvað fallegtHeart

21.8.08 037

Riddarinn hugumprúði að sýna meyjunni sápukúlur.

21.8.08 038

Og svo blása LoL þau eru algjörar rúsínur, Ísaac og Ásthildur.

21.8.08 040

En svo kemur stóra systir og vill taka af manni dótið.

21.8.08 043

Og hleypur í burtu með það hehehe, sjáið svipinn á litla skæruliðanum. LoL

21.8.08 051

Heart Það er ekki til betra fólk. Og nú þurfa þau á okkar aðstoð að halda, til að koma dóttur sinni og fjölskyldu hingað.  Þau eru nú hundelt af mafíunni, og óttast um líf sitt.  Og yfirvöld í El Salvador gera ekkert til að styggja illþýðið.

21.8.08 052

Krúsísmúsí!

21.8.08 053

Nammi namm.

21.8.08 063

Afi gamli skemmti sér rosalega vel í gær, þau spurðu hann mikið um efnahagsmálin, gengið og framtíðina, og það er enginn betri að uppfræða fólk en hann um allt slíkt.  Hann veit nákvæmlega hvað gengið er hátt á hverjum tíma, evran dollarin og jenið, bara fletta upp í honum, og svo hvað er skynsamlegt að gera.  Þetta eru hans ær og kýr.  Og Rolando gat þýtt þetta allt saman á milli.

21[1].8.08 028

Ætli það sé ekki leitun að slíkum manni komin yfir nírætt ?Heart Þórður Júl er bara sá flottasti.

21[1].8.08 022

Hanna Sól búin að hreiðra um sig í hjónarúminu og horfir á Shreck á spænsku LoL

21[1].8.08 066

Hér er Isobel litla komin líka.

21[1].8.08 067

Og svo fóru þær að dansa og dilla sér LoL

21[1].8.08 073

Meðan sumir bara skriðu um, þau voru reyndar öll í kisuleik.  

21[1].8.08 058

ég grauta þessu fram og aftur, en afi kom seint í matinn því hann hafði verið að spila, og þessi mynd er alveg kostuleg, enn í kisuleiknum og sníkir mat LoL

21.8.08 082

Þegar við vorum á leiðinni heim, þá var einmitt í gangi flugeldasýningin, slúttið á Tónlistardeginum mikla.

21[1].8.08 080

21[1].8.08 081

Þessar dularfullu kúlur eru regndropar, believe me or not.

En svo að lokum fyrir hana Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, ég lofaði henni myndum af Sóltúni.  En þar átti hún heima fyrir nokkrum árum.

21[1].8.08 005

En Guðmundur Mosdal smíðakennarinn gamli átti hér heima, ég held að hann hafi byggt þetta hús, síðan hafa margir átt hér heima, ég sagði nú í gamni einhverntíman að öll pör sem hafa búið þarna hafa skilið að skiptum, hvort sem það er tilviljun, eða álög, ég held að Guðmundur hafi aldrei verið við kvenmann kenndur.  En svona er lífið.   Nú er þetta hús í eigu ísfirðingafélagsins.

21[1].8.08 007

21[1].8.08 011

Flott hús á flottum stað, og mér sýnist að þar sé fólk alla daga allan ársins hring, svo það er vinsælt af brottfluttum ísfirðingum og öðru góðu fólki.

En hér með líkur þessari myndasyrpu, eigið góðan dag elskurnar. Heart

 

 


Bloggfærslur 21. september 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband