3.8.2008 | 22:44
Þórður Júlíusson níræður.
Þð var mikið um að vera að dag, mýrarbolti, goflmót og fleira. En núna ætla ég bara að setja inn myndir frá afmælinu hans pabba míns.
Afmælisbarnið og litla systir hans. Falleg og flott.
Guðjón Arnar hélt aðalræðu kvöldisins, að minni beiðni, enda er hann uppalinn í Stakkaneshverfinu sem svo er nefnt, nágranni frá barnæsku.
Gunnar bróðir minn hélt svo skemmtilega ræðu óundirbúin og blaðalaust, enda frábær ræðumaður.
Hér er hún frú Matthildur Helga, óbeisluð, og í peysufötum. það eru margar konu hér sem eiga slíkan grip í dag, þökk sé þeim stöllum óbeisluðum að halda hér saumanámskeið til að sauma íslenska þjóðbúninga. Og það að auki gera þær sjálfar meira og minna þá skartgripi sem heyra búningnum til. Ég dáist að þeim, og er alvarlega að hugsa um að fá að vera með næst.
ég verð sennilega skorin í spað og tekin í karphúsið af systrum mínum fyrir að setja þessa mynd inn, en hér erum við systkinin með pápa mínum.
Og hér með mökum.
Hér er hún Sigga litla systir mín, með drengina sína, þeir hafa allir þjónað í danska hernum, og sá elsti með fullt af heiðursmerkjum frá stríðinu í Írak. Það var ekki auðvelt líf.
Þarna voru mættir margir sem vildu votta honum virðingu sína, þar á meðal sjávarútvegsráðherra vor.
Hér er föðursystir mín yndislega Judith Friðrikka, og Gunnar Friðriksson, sá mæti maður.
Ýmsir máttarstólpar samfélagsins hér voru mættir
Og svo alþingismenn.
m.a Guðjón Arnar með Barböru sína elskulegu pólsku eiginkonu.
Hehehe hver segir að það sé ekki hægt að bretta eitthvað annað en servíettur
Spúkí tengdadætur hehehehe
Pabbi naut sín vel þetta kvöld, hér er Ásthildur Cesil aðeins að hvíla sig
En sú gamla bara að hafa ánægju af öllu saman.
eða eins og sjá má, þá skemmti ég mér konunglega líka.
Já við fengum svona tjald utan við húsið til að gefa kost á því að vera utan dyra, og veðrið lék reyndar við okkur.
Það voru hnallþórur
Og rosalega flottar brauðtertur skreyttar af systur minni. Svo annað eins hefur varla sést. Hún hefur þetta frá móður okkar. meiri hátta, og þær voru líka bara svo góðar.
Hafið bara séð svona flottar brauðtertur?
Tekið áður en gestirnir komu, en mér telst til að hér hafi verið um 150 manns í það minnsta.
já hingað mættu margir. Meðal annars frá Sandgerði.
Og pabbi sker fyrstu kökuna.
Hér er svo lítið skott, sem fannst flott að borða í hillunni hennar ömmu
Og litlar prinsessur með pabba sínum.
En ég ætla að enda þennan pistil á að setja hér inn ræðuna mína.
Við komum hér saman í dag til að fagna með föður mínum Ingólfi Þórði Júlíusyni. Tilefnið er jú að hann er um það bil að vera níræður, eða næst komandi mánudag þann 4. ágúst. Pabbi minn hefur skilið eftir sig stórt spor í atvinnulífi Ísfirðinga. Eins og allir hér vita. Við erum hér líka 7 systkini sem værum ekki til ef hans hefði ekki notið við. Ég er nú eiginlega þakklátust fyrir það, svona persónulega. Allavega er ég ánægð með að foreldrar mínir áttu a.m.k. eitt barn. Pabbi tók það skýrt fram strax að hann vildi ekki þiggja neinar gjafir. Enda á maðurinn allt sem hann þarf og meira til. Það er samt ein gjöf sem ég ætla að færa honum. Sú gjöf er vegna þess að ég vil þakka honum fyrir svo margt. Fyrir það fyrsta, þá var hann mér góð fyrirmynd í heiðarleika, vinnusemi og alþýðlegri hegðun. Hann kenndi okkur börnunum sínum, að skorast ekki undan vinnunni, eða vera með hroka gagnvart öðrum. Pabbi gekk í öll þau verk sem unnin voru, meðan hann rak sín fyrirtæki, hvort sem það var skreiðarverkunin, rækjuverksmiðjan eða litla íshúsið sem hann byrjaði á í skúrinni ofan við húsið. Það getur verið að ég hafi fengið meira að njóta samvistanna við hann, því þegar tíminn leið, urðu börnin fleiri, og minni tími gafst til að sinna þeim. Pabbi vann alltaf manna mest, fór fyrstur út, og kom síðastur inn. Aldrei kvartaði hann yfir þreytu eða vinnuálagi. Hann kenndi okkur líka að meta það smáa í lífinu. Til dæmis spurði ég hann einhvertíman hvað hann langaði í í jólagjöf. Þú getur teiknað fyrir mig mynd, sagði pabbi. Og ég var hæstánægð með þá lausn. Það var líka pabbi sem kenndi okkur Nonna kvöldbænirnar. Ég minnist þess þegar við vorum að læra vertu nú yfir og allt um kring með einlægri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Önnur bæn sem ég var lengi að spá í, en það er bæninn Vertu Guð faðir faðir minnÍ frelsaran Jesú nafni, Hönd þín leiði mig út og inn.Svo allri synd ég hafni. Mér fannst þetta vera eitthvað um að allir væru að synda í höfninni. Sú mynd sveif svo alltaf fyrir hugskotsjónum mínum. Hvað var allt þetta fólk að gera að synda í höfninni og hvað kom það eiginlega Guði og Jésú við.
Ljóð:
Ungur lagði upp frá æskuströndum
Ekkert átti nema kjark og þor.
Verkin öll svo vann með tveimur höndum,
víða hér má sjá þau hraustu spor.
Svo komu börnin, sín á hverjum tíma,
krakkahópur átti altlot hans.
Kennslustund í kurteisi að sýna,
hann ætlaði að koma þeim til manns.
Sorgin kom og vont þá er að vera
viðkvæmur í þrautum svartnættis,
Þungt er sporið barnið sitt að bera,
bjargarlaus í faðminn almættis.
Sárt er líka maka sinn að missa,
maður verður stundum eins og leir.
Förunaut, sem var manns trú og vissa,
en verður örsnöggt þarna ekki meir.
Þú fagnað þessum fjársjóði nú getur,
föngulegum stórum barnaher.
Heimsins enginn gæði hæfa betur,
hér við gleðjumst öll saman með þér.
Níræður nú ertu klári kappinn.
Við komum saman til að fagna um sinn.
Og ég tel að ég sé heldur heppinn,
að hafa átt þig elsku pabbi minn.
Á hverju ári veitir forseti Íslands fjölda manns fálkaorðu, flestum bara fyrir að mæta í vinnuna sína, þetta er að verða einhverskonar snobbsamkoma, og það er sjaldgæft að alþýðan njóti þeirrar upphefðar. Þá á ég við þá sem puða í sveita síns andlitis, eignast peninga, og láta gott af sér leiða í sínu bæjarfélagi. Pabbi minn hefur aldrei fengið slíka orðu, þó hann hefði verið betur að henni komin en margur sem nú skartar slíkum grip. Hann er eiginlega of stór fyrir fálkaorðu. Þess vegna ætla ég að sæma föður minn orðu sem er stærri en fálka orðan. Ég ætla að biðja hann að koma hér upp og þiggja af mér Arnarorðuna þá fyrstu sem er gefinn út, hér á Ísafirði allavega. Og er hún gerð honum til heiðurs sérstaklega.
Bloggar | Breytt 4.8.2008 kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Bloggfærslur 3. ágúst 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar