27.8.2008 | 13:49
Every time you say good bye, I die a little.
Hér er hún Solla stirða í allri sinni dýrð.
Ömmustelpan mín er nú ansi lík henni Sollu stirðu, með þennan lit og klippingu.
Krakkarnir og kisa. Það er sorg í hjarta mínu, því dóttir mín er farin suður, til að læra undir próf, síðan liggur leiðin hennar til Vínar, þar sem hún sest á skólabekkinn. Litlu stelpurnar hennar eru hér, og það hefur ekki verið auðveld kveðjustundin. Ég er líka í sárum, því ég á afskaplega erfitt með kveðjur. Í hvert sinn sem einhver kveður deyr einhver hluti af manni. En nóg um það. Ég næ mér fljótlega. Gat ekki skrifað neitt í gær, var of aum til þess.
Brandur er allavega glaður að fá frið á heimilinu fyrir þessu litla skrímsli, sem sífellt var að bögga hann. En hann hafði hina mestu skömm á, og var jafnvel hræddur við til að byrja með.
Heimilislífið dottið í sama farið, að fá afa í mat á sunnudögum.
Þessi ágæta kona, sem mér var sagt að væri bæjarstjóri, minnir í Nanortalik, kom og keypti hjá mér plöntur, hér er hún að leggja af stað út á völl, með fríðu föruneyti og blómin frá mér, til að fljúga beint heim til sín. Þar dafna blómin vonandi vel.
Ballerínan og riddarinn, eiga vel saman.
Með allt á hreinu.
Og hér er svo litla Heidy, en hún var eins og allir vita frá Austurríki.
Svo er auðvitað tekið til að að skoða gamla dótið upp á nýtt.
Prinsessur þurfa líka aðeins að sinna þeim málum.
En góða veðrið er ennþá hér. Milt og lygnt.
eins og sjá má.
Húsin í bænum standa gjarnan á haus.
Nýlega bættist í flota ísfirskra bátaeigenda. Þessi skúta er bæði afskaplega flott og kostar ekkert smá skilst mér.
Til lukku með hana Rabbi.
en það gerðist líka dálítið dapurlegt, þegar kviknaði í aðstöðu Sæfara, og margir kajakar eyðilögðust í eldi. Og húsið stórskemmdist líka. Aðstaða þeirra kajakmanna.
Lögreglan og eigandi að átta sig á aðstæðum. Sannarlega sorglegt mál. En vonandi verður þetta allt byggt upp aftur, og vonandi hafa kajakarnir verið tryggðir. Sem betur fór slapp minn karl við skemmdir á sínum kajak. En aðstaðan þeirra er mjög skemmd.
Vil óska þeim góðs gengis við endurbygginguna.
en kúlan er enn á sínum stað og þeir sem þar dvelja oft og lengi.
Litlu grallararnir mínir þar á meðal.
Þetta er miljón króna svipur á Evítu, hún er ótrúleg með svipbrigði stelpan sú.
Og svo eru þær alveg að fara að tala, það koma orð og stundum heilar setningar hjá Evítu.
Jamm grallaraspóar
Og Hanna Sól verður örugglega fyrirsæta.
Aríel litla er algjörlega hlutlaus, og búin að finna sér verðugan andstæðing
Svo fékk hún rúm, eða hún fann það eiginlega alveg sjálf.
Í nýja prinsessuherbergi heimasætunnar Hönnu Sólar.
Og veðrið er ennþá gott.
Hér er svo elskuleg fyrrverandi nágrannakona mín hún Magný. Þau búa núna úti á Spáni, í Andalúsíu, þar sem þau leigja út íbúðir Competa, Perla í fjöllum Andalúsíu, það er hægt að hafa samband við þau á www.competa.is, ef þið viljið ferðast til Andalúsíu og leigja ykkur íbúð á fögrum stað, ég var að skoða myndir. Er ákveðin í að bregða mér þangað fyrr en seinna, og ryfja upp skemmtileg ár með þeim hjónum sem nágrönnum mínum.
Þá er allt að verða klárt fyrir brottför. Síðustu mínúturunar fara í að sitja með foreldrum sínum og fá sér kaffisopa á uppáhaldsstað okkar, fyrir framan kúluna.
Og Kay hjálpar til. Hann er svo duglegur drengur og góður hann fer að byrja í skólnum í Austurríki.
Og þá er allt orðið klárt að leggja í hann. Góða ferð elsku barnið mitt, og knús þangað til við sjáumst aftur. Ég ætla að gæta litlu englanna þinna eins vel og ég get.
Og hér eru aðrir farfuglar að tygja sig til heimferðar. Þeir fara líka fljúgandi, eru farnir að hópast saman, en þeir fara gjarnan margir saman. Í augnablikinu eru þeir innan um fjárhóp, og virka svipað stórir, þetta sumar hefur því verið þeim gott og gjöfult af mat.
eigið góðan dag elskurnar mínar og takk fyrir hve þið eruð góð við mig endalaust.
Bloggar | Breytt 28.8.2008 kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
27.8.2008 | 03:34
Heimkoma.
jamm hér eru ferðalok.
Kcöldið er fagurt.
Sól er sest og sefur fugl á grein.
er þetta ekki rómó?
Og afi les fyrir börnin.
Svo þarf að þvo sér fyrir svefninn ekki satt?
Annars getur maður nú brosað að þessu öllu saman.
Grallaraspóarnir nammi namm gosdrykkur. Ætlarðu að klára þetta allt ?
Nei þú mátt líka fá sopa.
E það er betra að fá bara glas.
Borðið þér orma Frú Norma ?
Aha kettlingurinn, amma viltu ekki taka við honum.
Það er reyndar ágætt að hvíla sig í kattarsandinum.
Og jamm hér horfðu allir á ólympíuleikana.
Hver segir að kisur og börn eigi ekki vel saman.
Nú eða Eyrnaslapi, það má pakka honum inn í rýjur, svona til tilbreytingar
Umm sítrúna er súr !!!
Leyfðu mér... ég vil smakka.
Umm kisi kiss, fáðu þér mjólk
Sona sona, hér er mjólkin'
Best að klára þetta.
Strákar geta lika elskað ketti
Og svo var dansað, þetta var síðast kvöldið, hér er hann Erik frá Maríubakkannum á útopnu.
Og hann fríkar út, þessi elska.
Sumir létu sér nægja að dansa við mömmu
Nú eða ömmu
Og það er fjör!!!!
Jamms það var dansað upp á dekki,
Já allir voru að dansa upp á dekki !!!
Já systir Eriks frá Maríubakka, með kisu hana Aríel.
Amma og afi eftir allt fjörið.
Úbbs hvar er kisa?
Hér erum við á leiðinni heim, Dynjandinn er glæsilegur foss.
Og svo stoppuðum við auðvitað á Hrafnseysi, bústað Jóns Sigurðssonar.
Og fengum þar góðan viðurgerning, kaffi, kakó vöfflur og rjóma, svei mér þá.
Þarna er svo auðvitað minjasafn um kappann.
Pottur á hlóðum.
Þessa fallegu kirkju átti að rífa, það var byggð kapella inn í húsinu, en sem betur fer dróst að rifa hana, þangað til lög sögðu til um friðun, og hér stendur hún enn, þetta gamla kirkjuhús.
Hún er líka falleg og hlýleg að innan.
Og sjálfsagt hefur verið gott að ylja sér á ofni, þegar kalt var úti.
Hrafnseyri, þaðan sem okkar sjálfstæðishetja kemur Jón Sigurðsson. Og Ketildalirnir í rigningu.
Litla skottið finnur sér ýmislegt til að skoða.
Vertu sæll Jón Sigurðson.
Amm og farið yfir Hrafnseyrarheiðina, sem er ógnvænleg, get ég sagt ykkur.
Og hér er drottning, sem betur fer ekki sú danska, því þó hún haldi á sigarettupakka þessi drottning, þá talar hún frekar í síma en að reykja líkt og danadrottninginn.
En þetta svona dekkar vikuna mína, og ég segi bara góða nótt og dásamlega drauma elskuleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Bloggfærslur 27. ágúst 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 2024208
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar