Það er bara svona !!

Jamms eins og þið eflaust hafið tekið eftir þá er ég ekki mjög virk í dag.  Málið er að það þarf mikinn undirbúning með afmælið hans pabba míns, og hann er nú ekki neinn svona venjulegur normal maður.  Enda hafa koma í veisluna allavega einn ráðherra, og tveir þingmenn, annar þeirra Guðjón Arnar æskuvinur minn sem mun halda ræðu honum til heiðurs.  Enda hefur pabbi minn  verið virkur í atvinnumálum hér á Ísafirði til margra ára.  En það munu koma myndir af amælinu á morgun eða hinn.

IMG_9927

 

ég get sagt ykku að veðrið hefur verið hreint út sagt unaðslegt undanfarna daga.

IMG_9929

Og himnagalleríið opið.

IMG_9933

Fallegt ekki satt ?

IMG_9936

Ég get sagt ykkur að sumir eru afskaplega einlægir i að vera snyrtilegir og gera sitt besta, eins og í þessi tilfelli, starfsmenn........................... nei ég má ekki segja hvaða fyrirtæki.  En þeir þurftu sem sagt að gera ákveðna hluti í ákveðinni lóð, og þar á lóðinni voru stórir og stæðilegir skógartoppar, nokkuð gamlir og stálpaðir. Þessum ágætu iðnaðarmönnum fannst við hæfi að passa nú vel upp á plönturnar og þar sem þeir þurftu að taka upp beðið, tóku ræturnar og bundu þær snyrtilega upp eins og sjá má.  Til að þær skemmdust nú örugglega ekki W00t Þeir gleymdu bara þessar elskur, að rætur þurfa að vera ofan í moldinni, eða að minnsta kosti í raka og mold.  því fór sem fór.  Stundum villjum við gleyma aðalatriðunum í lífinu, eða um hvað lífið snýst.  Þannig er það bara.

IMG_9938

Amma sögðu stubbarnir mínir Daníel og Úlfur, hér er kartöflumús.. heheheh þeir gerður reyndar sitt hvora , en ég gat ekki sett inn nema aðra.  Því það var ekki hægt að segja kartöflumýs LoL En einhver listamaður sagði einhverntímann við mig, þegar ég var að hneykslast á fáránleika listanna, eins og að setja upp einhvern hvítan ramma, og segja það list.  Að það væri hugsunin sem gilti og einföldunin, og svo að láta sér detta hluturinn i hug... Þá gildir það sama hér ekki satt ? að láta sér detta i hug að búa til kartöflumús með þessum hætti Heart Bara hrein og tær list.

IMG_9943

Hér er Daníel "on the edge"

IMG_9946

Amen og halelúja hver er svo hér ? Nema Hanna Sólin hennar ömmu lifandi komin, jamm þær komu í heimsókn i bili.

IMG_9947

litla perludýrið hennar ömmu sín. Og alt það Heart

IMG_9948

Og fyrir Sigrúnu bloggvinkonu mína, myndir af húfunum sem hún sendi mér, og stelpurnar harðánægðar með þær svo sannarlega. Heart

IMG_9953

ef þetta er ekki mynd friðar og kyrrðar, þá veit ég ekki hvað Smile

IMG_9955

Kær vinkona mín Laufey bað mig um að setja inn mynd af nykurrósinni þegar hún blómstraði, hér er fyrsta rósin komin falleg ekki satt ?

IMG_9959

Og það er margt í kúlunni þessa helgina, sofið í hverju skúmaskoti eða þannig  og svo allir hinir sem bara kíkja við Heart

IMG_9962

Ömmuskotta.

IMG_9970

Og ömmuprakkari.

en ég segi bara góða nótt, og elskurnar mínar, ég er svo mikið á kafi í að undirbúa afmæli elskulega pabba míns, og svo hefur góða veðrið dregir úr manni kraftin og dregið mann út í sólina, að ég hef ekki gefið mér tíma til að kíkja við.  En mér þykir rosalega vænt um ykkur öll mín kæru.  Á morgun verður dagurinn hans pabba mín, það eru allir velkomnir sem komast.   Það verða góðar veitingar og örugglega góð stemning.  Gjörið svo vel allir velkomnir.  En ég segi bara góða nótt, og takk fyrir að vera vinir mínir. Heart


Bloggfærslur 2. ágúst 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband