Dagar vonar.

Ég var að lesa í dagbókinni 2008, en það eru málshættir neðst á hverri síðu.  Dagurinn í gær var dálítið táknrænn því þar stóð;

Leitaðu ekki hættunnar, svo að þú farist ekki í henni, en gakk hugaður á móti henni, þegar þú getur ekki flúið hana.  þetta er frábær tilvísun í Júlla minn.

Og í dag er þessi frasi; Móðir er barni best.  LoL

En það hefur verið þoka í dag og fremur kalt. En mér sýnist vera að létta til.  Samt var svo sem ágætt fyrir mig að hafa ekki of mikla sól í dag, ég var allan daginn að burðast með vatnsslöngur, til að gefa blómunum að drekka.  Og er því töluvert þreytt, eins og venjulega á þessum tíma reyndar.

En hér eru smá krúttmyndir, það fór aldrei svo að ég fengi ekki litla skottu i heimsókn, reyndar er Sóley Ebba og Úlfur búin að vera hér í tvo daga, eða Sóley að leika við Úlfinn.  En Evíta litla kom í dag, og það var notalegt að heyra ungbarnahjal. Heart Reyndar sakna ég telpnanna mikið.

IMG_9222

Halló amma ég er að koma!!!

IMG_9223

Ég þarf reyndar ennþá að skríða upp tröppur og stiga. Tounge

IMG_9224

Jæja þá getur maður aðeins stoppað og pósað fyrir ömmu.

IMG_9225

Úbbs, dálítið völt LoL

IMG_9226

Best að fara bara að vökva.  Heart

Hjartanlega takk fyrir mig og Júlla minn, það hefur svo sannarlega yljað mér fallegu hlýju orðin ykkar og góður hugur.  Það skilar sér áfram til hans.  Bestu kveðjur og knús inn í nóttina.  Heart


Bloggfærslur 9. júlí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband