Dagurinn í dag.

Var einkar gleðilegur fyrir mig, fyrir margra hluta sakir.  Fyrir nákvæmlega í dag fyrir 38 árum fæddist mér sonur númer tvö.  Hann var baldinn í skóla, þurfti mikla athygli og átti oft í erfiðleikum vegna þess að hann var álitinn svo óþekkur.  Ég hygg að í dag væri hann talinn með athyglisbrest og hefði örugglega verið settur á rítalín.  Skólastjórinn og flestir kennararnir stóðust ekki prófið um að hlú að nemenda sínum.  En aldrei klagaði minn drengur þá fyrir illa meðferð.  Það var ekki fyrr en foreldrar annara barna fóru að segja mér frá því hvernig hann væri meöhöndlaður í skólanum, af skólastjóra og ýmsum öðrum kennurum, þegar öðrum börnum var farið að ofbjóða, að mér varð ljóst að sonur minn átti við erfiðleika að etja.  Enda lauk hans skólavist í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði með brottrekstri, sem í raun og veru átti ekki að vera hægt.  Ég sendi hann svo í skóla á Klúku í Bjarnarfirði, þar sem hann átti skemmtilega og góða daga í grunnskólanum þar.  Það sama var uppi á tengingnum í Gagnfræðaskólanum.  Það endaði á því að hann fór í Laugaskóla, þar sem hann hreinlega blómstraði.  Hann hefur átt í allskonar erfiðleikum þessi drengur minn.  Og m.a. orðið fyrir allskonar niðurlægingu af mörgum, alls ekki öllum.  En sér í lagi sýslumanni sem hér var, og þegar ég dey, ætla ég að biðja þennan gráhærða skeggjaða þarna uppi um að gera mér þann greiða að koma því svoleiðis fyrir að slík fyrirbæri komist aldrei í aðstöðu til að deila og drottna yfir brotnu fólki.  Þó er þetta freak enn að, bara annarsstaðar sem betur fer.  Ég get sagt ykkur það, að á tímabili var ég eina manneskjan í heiminum, sem trúði á þennan dreng. Og fékk skammir frá mörgum, m.a. mér nánum, fyrir að gera sjálfri mér það að halda í vonina um að hann næði einhverntíman áttum.

Ég er ekki að segja þetta fólkinu til lasts, það meinti vel.  Ég er að segja þetta fyrir þá sem eru í sömu sporum og ég var þá.  Það er ENGINN VONLAUS, og það er alltaf til von um bata, ef kærleikur er til staðar. 

Þess vegna er þessi dagur svo mikilvægur bæði fyrir hann og mig.  Dagurinn hans.  'Eg er ennþá meö kökkin í hálsinum af þakklæti, til þeirra sem stuðluðu að þessari sýningu, og svo vegna hans sjálfs, sem hefur sýnt hve frábær hann er, og líka systur minnar sem gaf honum tæki og tól til að skapa það sem hann hefur gert.

IMG_9158

Komið að þessu minnsta galleríi á Íslandi, og þótt víðar væri leitað.  Reyndar sagði eigandinn að hún gæti ekki kallað þetta gallerí, en ég geri það samt.

IMG_9160

Og rosalega vel við hæfi að það skyldu einmitt vera fiskar hér á annari sýningu þessa gallerís.

IMG_9168

Hér er hann að bæta einum fiski við, hval sem trónir yfir fiskunum.

IMG_9179

Hér eru svona hitaplattar fyrir potta og pönnur á borði.  Sannarlega flott gjöf.

IMG_9181

Hér getur hver panta sinn fisk.

IMG_9185

Galleríis eigandinn Lisbet. 

IMG_9188

Pabbastubbur var auðvitað með til að halda upp á daginn með pabba sínum.

IMG_9192

Júlli minn með drengina sína báða.

IMG_9206

Þetta er hápólitísk sýning sagði safnvörðurinn, þegar hann afhenti þeim báðum blómvendi.  Fyrsta sýning Fiskabúrsins var með lifandi fiskum, sem dóu einn af öðrum, og svo var komið að einungis lifðu steinfiskar, sem þó eru ef til vill meira lifandi en venjulegir fiskar.  Þetta er kvótakerfið í hnotskurn.

IMG_9214

Listamaðurinn og galleríeigandinn með blómvendina sína.  Þau eru tvær hæfileikaríkar manneskjur sem eru ekki sporgöngufólk, heldur halda ótrauð á ótroðnar slóðir.  Tvær yndælar manneskjur, sem við hin mættum læra mikið af. 

Innilega til hamingju bæði tvö, með það sem þið eruð að byrja með.  Megi gæfan fylgja ykkur báðum, og lyfta ykkur þangað sem þið eigið skilið.

IMG_9216

Bræður í léttum leik.

Ég er stolt af öllum mínum börnum.  Og ég hef reynt að innprenta þeim kurteisi, kærleika og að umgangast allt með virðingu, bæði menn, dýr og plöntur.  Í dag var einn áfangasigur á þeirri braut, með ungann minn, sem ég hef þurft að leggja hvað mesta vinnu í.  Og ég er full af þakklæti, til hans, og til þeirra sem komu í dag til að heiðra hann, og allra þeirra sem gerðu þennan dag mögulegan.  Vini hans, sem hafa hjálpað honum gegnum svo margt.  Þarf ekki að nefna nein nöfn, þeir vita við hverja ég á. Hvar værum við stödd í lífinu, ef við ættum ekki góða vini, sem væru til gegnum súrt og sætt, og ættingja sem alltaf eru tilbúnir til að fyrirgefa og hlú að.  Og samfélag sem er tilbúið að gleyma gömlum syndum, og gefa nýtt tækifæri.  En fyrst og fremst, er það vegna þess að viðkomandi einstaklingur er svo mikill ljúflingur og svo saklaus sál, þrátt fyrir allt, að þess vegna standa vegir opnir.

Takk fyrir þennan dag, takk fyrir mig, og takk fyrir elskulega drenginn minn. Heart Ég er alveg viss um að hér hafa orðið vatnaskil. 


Ísafjarðarveður, litlu andarungarnir, lítill ökumaður og minnsta listgallerí hér allavega, og þó víðar væri leitað, plús mjög sérstök listsýning.

Já veðrið hér hefur verið dálítið dumbungslegt svona á morgnana, en þó rofar til þegar á daginn líður.

IMG_9147

Svona var þetta fyrst í gærmorgun.

IMG_9148

Svo fór að rofa til.

IMG_9151

Og svo skein sólin.

En þessir litlu ungar voru í reiðuleysi upp á Seljalandsvegi alla leið, hvar var mammann.

IMG_9143

Og kötturinn lá bak við tré og sleikti út um.

IMG_9145

en sem betur fer kom mamma og leiddi ungana sína í burtu frá hættunni, og hún var ekki árennileg fyrir feitan latan kött, eins og Brand.

IMG_9149

Niður á Torgi var önnur ungaamma, með sinn unga, sem vildi prófa að aka þessum gamla bíl.

IMG_9150

Bjarndís, með sinn unga. Heart Þetta var nú aldeilis sport að fá aðeins að setjast upp í bílinn hans Árna bakara.

En í dag kl. 4. verður opnuð ansi skemmtileg og óvenjuleg listsýning, niður við tjöruhús.  Í litlu fiskabúri.  Þar mun sonur minn Júlíus opna sýningun kl. 4.  Hann á reyndar líka afmæli í dag þessi elska, ég er alveg rosalega hrifinn af þessum steinfiskum, sem hann gerir svo fallega.

IMG_9152

Þeir eru líka tilvaldir í allskonar gjafir.

IMG_9154

en sjón er sögu ríkari, svo ég hvet fólk til að leggja leið sína niður í gömlu safnahúsin og skoða þessa einstöku sýningu.

IMG_9157

Innilega til hamingju með þetta Júlli minn.  Og til hamingju með afmælið.  Heart


Bloggfærslur 8. júlí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband