Óbeisluð fegurð.

En ég átti eftir að segja ykkur frá Óbeislaðri fegurð.  Hún var endursýns á Langa Manga núna í fyrrakvöld.  Þar voru mættar þónokkrar óbeislaðar konur og svo líka útlendingar.  Það var greinilegt að þeir skemmtu sér vel yfir myndinni.  Og ég verð að segja að hún er alltaf jafn góð, þó maður sjái hana fimm sex sinnum.

IMG_9870

Þetta er svona upphitun LoL Frú Matthildur gefur Kristínu stuð.

IMG_9871

Já þetta var ljúft kvöld og það var gaman að rifja upp þetta skemmtilega kvöld í apríl í fyrra.

IMG_9875

erlendu gestirnir skemmtu sér greinilega líka konunglega.

IMG_9878

Við erum náttúrulega flottastar.

IMG_9879

Þessa mynd tók ég svo á leiðinni út, það er aðeins tekið að rökkvan.

Takk fyrir mig Fólkið á Langa manga. Heart


Fjallganga.

Jæja eftir að hafa farið yfir allað leiðslur, sett um system restore tókst mér að koma tölvunni í lag hehehe..

 En hingað kom margir gestir.  Um daginn kom norskur arkitekt, en í fyrradag kom svo noskur arkitektastúdent.

IMG_9824

Hér skrifar hann í gestabókina mína.  Hann sagðist hafa gengið mörgum sinnum fram hjá húsinu mínu og langað svo til að kíkja við.  Lét svo loks verða af því.

IMG_9826

en hér leggur stubburinn upp í fjallaferðina með afa.

IMG_9831

Berin eru óvenjusnemma á ferðinni í ár. 

IMG_9829

Og aðalbláberin nammi namm.

IMG_9832

Svo er sest niður og litið yfir farin veg.  Það er gott og ánægjulegt.

IMG_9839

Já það er gott að vera úti í náttúrunni með afa sínum.

IMG_9840

Svo er lagt á brattann aftur.  Fjallið verður hrikalegra eftir því sem ofar kemur.

IMG_9843

Sannarlega mikil björg hér, sem ef til vill eru tilbúin að bruna niður hlíðina.  En það er allt í lagi, þau komast aldrei alla leið niður. 

IMG_98461

 

Já hér er leikur í gangi fyrir fólki sem hingað kemur.  Svonefndir fjallapassar, á fjöllunum hér í kring.  Maður skrifar sig í bók, og lætur taka af sér mynd með þessa húfu, og þá fá menn verðlaun.  Það eru góð verðlaun í boði fyrir þá sem skrifa sig í alla fjallapassana.  þetta er til að hvetja fólk til útivistar og hollrar hreyfingar.

IMG_98481

Skrifað í gestabókina.

IMG_9851

En ætli þetta sé geimvera ? sem þeir afgarnir hittu á leiðinni ?LoL

IMG_9860

Hrikalegt þeir fóru ef til vill til tunglsins LoL

IMG_9863

Sennilega sjálfsáin reyniplanta, núna þegar hlýnar svona ætti að koma fleiri tré í hlíðina okkar.

IMG_9865

Hér erum við svo komin í skógræktina ofan í Stórurðinni.

IMG_9867

Veðrið er svona upp á hvern dag þessa dagana.

IMG_9869

Þessi geimkarl stóð þarna í miðjum bænum og studdi höndum á axlir.  en ég ætlaði að sýna ykkur dálítið meira frá Langa Manga og endursýningu á Óbeyslaðir fegurð, en það verður víst aðeins að bíða, því ég var að fá í heimsókn fólkið mitt frá Svartaskógi. Þau eru komin "heim" eins og þau kalla litla sumarhúsið sitt í Hnífsdal.  Þangað til njótið þessa yndislega veðurs og knús á ykkur öll. Heart

 


Við erum góðu gæjarnir, sem viljum viðhalda lýðræði og réttlæti...... Ekki satt ?

Mín kæru, þið sem hafið haft gaman af að skoða myndirnar mínar.  Tölvan mín heima er í einhverju lamasessi, ég var tilbúin með myndir af fjallgöngu stubbsins í fyrra dag, og svo eru myndir af besta degi ársins á Ísafirði í gær með bæinn fullan af fólki.  En þær verða að bíða þangað til ég get fundið út hvað er að, eða kallað til aðstoð.  Dagurinn í dag er líka svona yndislegur.  Ég segi því bara knús á ykkur öll sömul. 

Hjalti í hernum

Set bara inn svona "skemmtilega" mynd frá Írak, þar sem systursonur minn var í danska hernum í fleiri mánuði, hann er þarna reyndar líka.  Besti vinur hans var sprengdur í tætlur, í ferð sem frændi minn átti að fara í, en vinur hans bauðst til að fara fyrir hann.  Annar félagi þeirra framdi sjálfsmorð eftir að hann kom heim frá Írak.  Hinir ganga allir meira og minna til sálfræðinga.  Eiga erfitt með lífið sitt eftir þessi ósköp.  Það versta er, að þeir sem stjórna apparatinu, þ. e. þeir sem stjórna stríðinu, búskurinn, ráðamenn í þeim löndum sem senda menn í þetta stríð, og þeir ráðamenn sem studdu þennan hrylling,  hafa engan móral, engar martraðir, ekkert samviskubit fyrir að senda unga óharðnaða menn í átök sem þessi.  En ég er viss um að þeir fá að borga fyrir hvert einasta líf, hverja einustu martröð, hvert sálarmorð sem framið hefur verið og verður fram í þeirra nafni.  Þeir ættu eiginlega að biðja um það á hnjánum að fá að byrja að afplána núna, því eftir því sem syndaregistrið lengist, því erfiðara verður fyrir þá að takast á við það myrka afl í þeim sjálfum., sem hleypti þessu öllu af stað.  Ætli það sé nú ekki græðgin, valdasýkin og eigin upphafning sem stjórnar gerðum þeirra. 

Hvað var þetta svo líka með það að Saddam væri svo vondur maður, að það þyrfti að koma honum frá ? Þetta sagði Davíð Oddsson einn þeim sem sök eíga hér að máli.  Hvar eru aðrir vondir menn sem þarf að koma frá völdum.

Aung San Suu Kyi

Hvað með þennan karl, ekki hefur verið hægt að bjargar Kim ennþá úr þeirra klóm ?

Eða Múgawe, að hvað hann nú heitir sá ágæti maður?

Eða kínverskir ráðamenn, sem dunda sér við að murka lífið út Tíbetum, og andófsmönnum ?

Ég held að þessir menn ættu að líta sér nær, og hætta að leika löggur út um allan heim.  Og fara að snúa sér að því að skoða inn í sálina á sjálfum sér, og sjá hvort ekki þarf að laga eitthvað þar inni, áður en það er orðið of seint.   Það er sennilega orðið of seint nú þegar reyndar.  Þeir munu þurfa að taka út sína refsingu.

En þetta er nú meiri lesturinn á svona yndislegum degi.  Ég þurfti bara aðeins að fá útrás, eftir að ég sá myndina af honum frænda mínum.  Og eftir að ég veit í nærmynd hvernig þessir drengir hafa það, og hvernig þeim líður.  Og þá erum við ekki að tala um vesalings fólkið sem lífið hefur verið murkað úr, og þessir sömu menn beta ábyrgð á.  Megi það íþyngja þeim sem lengst og mest öllum saman.

En við hin skulum senda öllu því fólki sem á um sárt að binda kærleikskveðjur, og ljós.

Því miður er ekkert sem við getum gert, annað en að vekja athygli á hvað er að gerast í heiminum, taka undir með fólki eins og Birgittu Jónsdóttur og fleiri, sem leiða okkur í sannleikan um hluti sem verið er að reyna að fela fyrir okkur. Steinunni Helgu Sigurðardóttur og hennar samtaka og taka undir með fólki eins og þeim í Saving Iceland, sem hafa áhyggjur af móður jörð og ásælni peningavaldsins í gæði jarðarinnar á kostnað náttúrunnar. Allur áróðurinn er  unnin með góðri aðstoð fjölmiðla, sem reyndar virðast oftast vera einstakir talsmenn ráðandi afla í samfélögum heimsins.  Þess vegna er netið svona mikilvægt, rödd litla mannsins heyrist að minnsta kosti ennþá.  Þó marga dauðlangi til að kæfa þá rödd niður, enda oft óþægilegt að heyra sannleikann beint framan í andlitið.

 Mestu óvinir mannkynsins eru græðgin, auðhyggjan, valdasýkin og þöggunin, matreiðslan ofan í okkur um hvað sé okkur fyrir bestu, þegar einungis er verið að leita leiða til að sölsa undir sig sem mest og ráða sem mestu.  Það er óþæglegt að vita að þeir sem ráða hér í landinu, eru einmitt talsmenn þessara afla, og vinna að því leynt og ljóst að hygla þeim sem mest, ef ekki beint fyrir framan augun á okkur, þá með allskonar plotti, og kasta ryki í augu okkar, þangað til við vitum ekki lengur hvað er satt og hvað er lygi.  Þjóðir heims mega eta það sem úti frýs, ef auðmennirnir fá sitt, og geta borgað sínar talentur í rétta kosningasjóði, svo hægt sé að viðhalda alræðinu. 

Sorrý, en ég varð að tappa aðeins út.  Þetta er orðið ágætt hjá mér.  Nú fer ég út í sólina, og skoða hvernig allt liggur hjá mínu fólki í dag.  Það er gott að rasa svona út, og geta andað að sér hreinu lofti.  Þeir mega taka við skítnum sem eiga hann. 

En knús á  ykkur bloggvinir mínir inn í þennan dýrðardag, og ég ætla að reyna að koma tölvunni minni í lag, svo ég geti sent ykkur myndir.  Heart

Einhyrningur

 

 


Bloggfærslur 30. júlí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband