27.7.2008 | 17:25
Ferð á Patró og fertugsafmæli með stæl.
Eins og ég sagði ykkur held ég í gær þá var ég að fara í fertugsafmæli til elskulegrar stúlku, sem er bæði vinkona mín og svo barnsmóðir sonar míns og mamma ömmubarnsins míns hans Sigurjóns Dags dúllu.
en við byrjum í morgun, dagurinn í dag var fagur eins og aðrir, heitur sólríkur og dásemdin ein.
en Elli minn brá sér af bæ í gær, skrapp til Patreksfjarðar, þar er verið að vinna að lóð grunnskólans af miklum myndarskap og framsýni. Gott hjá Patreksfirðingum. Þetta minnir nu mest á aðaltorgið á Akureyri svei mér þá, nema ef til vill aðeins minna í sniðum.
Og mér sýnist unglingarnir á Patró, vera í svipuðum gír og börnin hér, gera lifið skemmtilegra fyrir bæinn sinn.
Þarna er líka trúður á ferð. Patreksfirðingar upplifðu í fyrra að einhver skrifaði falleg bréf og setti hér og þar um bæinn. Skemmtileg uppákoma. Þeir hafa líka etið Refakjöt, og hafa ekki orðið samir síðan hehehehe... dálítið villtir held ég.
Skemmtileg hleðsla og tröppur.
Hér er svo yngsti sonur minn (örverpið) sá sem stýrir framkvæmdum þarna fyrir vestan. Duglegur er hann blessaður. En það er reyndar mikill hugur í Vesturbyggð, og þeir eru að græða upp og gera góða hluti þar vestra. Ég vildi bara að það væru betra vegasamband okkar í milli, svo við gætum átt meiri samskipti. Það er gott fólk sem þarna býr. Okkar fólk.
Hér kúrir Patreksfjörður, og eins og sjá má er sama lognið þar og hér.
Fjöllin eru tignarleg hér vestra, það verður ekki af þeim skafið.
Lítið kúrir þorp undir fjallakögri.
Dulúð vestfirskra fjalla og samspil fjallanna, hafsins mikla og himinsins er óræð eins og tímans tönn, maður hlýtur að fyllast lotningu við slíka sjón.
En hér erum við komin í afmæli. Elli minn stoltur milli tveggja barnsmæðra sona okkar, önnur gift sínum, hin í góðu vinasambandi.
Já það var nefnilega Júlli minn sem eldaði sína frægu fiskisúpu fyrir veisluna.
Undir tuttugulítra súpupott þarf sterklega undirmottu, þessi er ekki af verri endanum, enda frá honum sjálfum komin.
Já allt tilbúið til að skenkja gestunum, sem sumir höfðu komið alla leið frá Reykjavík í veisluna.
Út um eldhúsgluggan má sjá eina hlið bókasafnsins, eða gamla sjúkrahússins, og eins og sjá má, er aðeins innlögn þarna um sex leytið, en þegar á kvöldið leið, lagðist fáninn að stönginni, eins og til að bjóða henni innilegt faðmlag og góða nótt.
Og hér er súpan skenkt í þar til gerð brauðform, sem eru alveg frábær, og enginn þörf á diskum eða uppvaski.
Flestir kusu að sitja úti af því að veðrið var svo gott.
Hér er að hefjast baráttan um brauðið, lítill stubbur og hundspott, sem báðir höfðu mikinn áhuga á súpubrauðinu hehehe.
Hann tók brauðið, ætlarðu ekki að hjálpa mér að ná því ??
Nei ég vil fá brauðið.
Jamm það er ýmislegt að bralla fyrir litla stubba.
Og stubbur ef út í það er farið. Evíta Cesil var þarna líka.
en það var mikið hlegið og mikið gaman í afmælinu í gærkvöldi. Enda veðrið alveg dásamlegt.
Maður er nú ekki fertugur nema einu sinni.
Sigga mín gerir aldrei neitt til hálfs, heldur fer hún alltaf alla leið. Auðvitað réði hún hljómsveit til að leika fyrir gestina. Og þeir voru bara góðir get ég sagt ykkur.
Halló amma heyrðist svo kallað úr næsta garði, og ójú, þarna ég ég nokkur krýli, og afi greinilega búin að finna þau.
Hér er svo afmælisbarnið að slá í gegn, hún söng lög með Bubba, og strákarnir kláruðu sig fínt með það. Hér tekur hún Fjöllin hafa staðið hér í þúsund ár, eða what ever. Og hún söng af innlifum og krafti sem margir mættu öfunda hana af.
Hér tekur hún annað Bubbalag ef ég man rétt var það serbin með frænku sinni.
Auðvitað leiddist gamla brýnið út í að taka lagið, hér erum við að syngja eitthvað sem allir kunna, fjöldasöng eða þannig. ég og mamma hennar Siggu.
Þessi er ótrúlega fyndinn þarna tókum við Cotton Fields hehehehehe.. sjáði innlifunnia
svo var auðvitað sungið Hvað er svo glatt, svona þegar ákveðnu stigi var náð, eins og gengur, annars værum við nú ekki íslendingar
Hér erum við svo afmælisbarnið og ég eitthvað að syngja saman. Samt ekki Bubba, því ég kann ekkert eftir hann
endum svo þennan afmælispistil á mynd sem var tekin í morgunn.
Elsku Sigga mín, þetta var meiriháttar afmæli hjá þér í gærkvöldi. Og vel heppnað. Það var yndilegt að sjá alla ættingjana sem lögðu leið sína hingað frá Reykjavík til að eiga með þér góða stund. Og svo voru nágrannarnir þarna líka. Innilega til hamingju með öll þín 40 ár. Þú ert gull og gersemi, sem margir mættu læra mikið af. Því þú ert heilsteypt manneskja, ef til vill á of mikill ferð gegnum lífið, eða eins og þú sagði í gær, þegar einhver benti á einhvern sem væri jafngamall og þú, já ég veit, sagði þú, en ég hef örugglega farið langt fram úr honum á hlaupunum um árin
En gull af manni, og þeir sem eiga þig að, geta gengið að því vísu. Í dag er það raunar sífellt að verða sjaldgæfari eiginleiki því miður. Knús á þig elskulegust og enn og aftur takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
27.7.2008 | 12:35
Svona til umhugsunar.
Var að lesa 24 stundir frá því í gær í morgun. Það stendur;
Síbrotamaður fær nýjan dóm.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 25 ára gamlan karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. með brotum sínum rauf maðuirnn skilyrði reynslulausnar, en hann hefur áðurhlotið fjölda dóma.
Hann játaði skýlaust brot sín. Maðurinn var nú dæmdur fyrir vösrlu á 31 gr af amferamíni, 2gr af marijúana og 14 gr af kókaíni, auk þess að hafa ekið bíl án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.
Ég heyrði þetta líka í útvarpinu.
Það sem ég vil segja er þetta. Er einhver til hér á landi sem er svo skyni skroppinn, að halda að svona dómar bjargi þessum unga manni frá síendurteknum brotum ? Er einhver sem ímyndar sér að hann fái einhverja aðstoð við að takast á við líf sitt í fangelsi ?
Það þarf engra vitna við um að þessi blessaði maður er forfallinn fíkniefnaneytandi. Og þetta sem hann var með, hefur hann útvegað sér til eigin neyslu eða til að selja öðrum. Þessi maður er fórnarlamb. Í stað þess að taka hann endalaust og færa í fangelsi, þá ætti hér nú að vera til staðar lokuð meðferðarstofnun, þar sem hann yrði dæmdur til að vera í 18 mánuðina. Þar yrði tekið á hans fíkniefnavanda. Hann fengi aðhlynningu, og kennslu í því að lifa reglulegu lífi hérna meginn við ógnarheim fíkniefnanna. Mér þykir nefnilega nokkuð ljóst að þangað hefur hann ekki komið lengi. Sennilega hefur hann lifað á innbrotum til kaupa á efnum.
Hvað ætli hann sé búin að kosta ríkið og einstaklinga með athöfnum sínum, sem hann hefur enga stjórn á.
Ég tek það fram að ég þekki þennan mann ekki neitt. En ég þekki svona aðstæður, og ég þekki þá vanlíðan sem þeir sjáfir ganga í gegnum, en svo eiga þeir líka foreldra, og systkini, sem þjást. Það getur orðið svo slæmt að aðstandendur þola ekki lengur álagið og útiloka einstaklinginn algjörlega, út úr neyð. Aðrir þurfa róandi pillur til að lifa álagið af.
Ég segi bara; það er ekkert vit í þessum dómi. Og það er ekkert sem þar gerist nema að viðhalda ástandinu. Það er ef til vill smávon, nú þegar Margrét Frímannsdóttir hefur breytt um aðferðir við fanga, sem er hið besta mál. En það verður aldrei sami hluturinn og lokuð meðferðarstofnun. Þangað sem hægt er að hreinlega dæma menn inn á, þegar allt um þrýtur, þegar allar dyr eru lokaðar, og enginn vill taka við einstaklingnum vegna neyslu hans. Og enginn meðferðarstofnun getur haldið honum inni eins og ástandið er í dag.
Vaknið upp ráðamenn, og farið að gera eitthvað annað, hugsa dæmin öðruvísk. Þið eruð að berja hausnum við steininn.
Það er hægt að bjarga öllum, með réttu hugarfari og réttum útbótum. Hvað haldið þið að séu margir þarna úti, sem eiga svona syni og dætur ? Og hvernig haldiði að þeim líði, verandi aldrei viss hvað verður næsta skref. Dauðinn liggur alltaf í leyni.
Reynið að koma því inn í ykkar koll, að fangelsi eiga ekki að vera geymslustaðir fyrir fíkla. Þau eiga að vera fyrri ofbeldismenn og menn sem vitandi vits eru ekki hæfir í mannlegu samfélagi.
Fíklar eru annarskonar fólk. Fólk sem ekki getur lengur stjórnað lífi sínu, hvað þá ákveðið að fara í meðferð og standast hana, þegar svona er komið. Hér þarf einhverja utanaðkomandi hjálp. Og hún er einföld. Húsnæði sem hægt er að setja þetta fólk inná, og sleppa þeim ekki út fyrr en þeir hafa hlotið sína endurhæfingu, og kennslu í mannlegum samskiptum. Oftast er þetta yndælis fólk, sem hefur fallið ofan í helvíti, vegna lyga og áróðurs. Það þ.e. lygararnir og áróðursmeistararnir, sölumennirnir og þeir sem fjármagna kaupinn er fólkið sem þið eigið að fylla fangelsin með. Þar eru hinir raunverulegu glæpamenn.
Þetta fólk er það ekki, heldur fórnarlömb.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 27. júlí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar