25.7.2008 | 21:38
Huldumaðurinn.
Það lá við að ég dytti niður dauð, allt umhverfið breytt, þegar ég opnaði síðuna mína núna en samt ég er komin inn á eitthvað svæði sem ég þekki ekki lengur. Elsku bloggvinir mínir, ég þarf að átta mig á þessu svæði. Ætla að skoða þetta betur. Úff af hverju er verið að breyta svona án þess að láta mann vita.
En svona áður en ég set inn kvöldmyndir og gef mér tíma í blogghringinn, þá ætla ég að setja hér inn smásögustúf sem datt upp í kollinn á mér í dag, reyndar af því að þið tókuð svo vel í hina söguna mína. Þessi er öðruvísi, en er samt svona spurning um móral. Ég vona að þið haldið ekki að ég sé að farast úr kjánagangi eða eitthvað slíkt. Þetta bara kom svona, eins og þegar ég hef meiri tíma en mér er hollt. Þá er kollurinn á mér fullur af allskonar vitleysu. En hér kemur þetta;
Huldumaðurinn.
Gamli blaðamaðurinn stóð fyrir framan stórt skrifborð yfirmanns síns, og horfði rannsakandi á hann, meðan sá síðarnefndi las yfir nokkur blöð sem hann hafði rétt honum.
Já sagði ritstjórinn þetta er mergjað, og hann er lipur penni. Ég veit samt ekki...
Þú átt eftir að rokselja blaðið, ef þú tekur hann inn sem pistlahöfund, sagði blaðamaðurinn.
En hver er hann ?
Það get ég ekki sagt þér, sagði blaðamaðurinn. Við skulum bara nefna hann Huldumanninn.
Jæja við skulum taka þetta og sjá svo hvað setur.
Blaðamaðurinn brosti óræðu brosi. Gott mál, sagði hann svo, þú átt ekki eftir að sjá eftir þessu.
Ef til vill ekki tautaði ritstjórinn. Hann bar fyllsta traust til undirmanns síns, en þessi beiðni frá honum var óvenjuleg, og hann var ósáttur við að vita enginn deili á höfundi greinarinnar.
En hún var bæði mjög vel skrifuð og sterk, fyllti mann einhvern veginn réttlætiskennd.
Það gekk svo eftir sem blaðamaðurinn sagði, pistlar Huldumannsins urðu frægir og sala blaðsins jókst dag frá degi.
Hann skrifaði um réttlætið, fátæktina, ástina, afbrýðisemina og auðlegðina, eins og hann vissi það frá hjartans innstu rótum.
Blaðið seldist í ótrúlegum upplögum, og ritstjórinn varð glaður, og svo var líka um eigendur blaðsins.
Ritstjórinn fékk ótal samtöl og heimsóknir, þar sem fólk sagði honum, að pistlarnir hefðu haft áhrif.
Þessi pistill hefur breytt lífi mínu, sagði ungur maður. Ég var komin á fremsta hlunn með að fyrirfara mér, þegar ég las hann í blaðinu í gær, og það veitti mér þrek til að takast á við vandamál mín.
Annar sagði; ég var orðin svo upptekinn af sjálfum mér og að græða peninga, að ég hafði gleymt sjálfum mér. Þegar ég las blaðið þitt og pistil Huldumannsins, þá uppgötvaði ég, á hvaða villigötum ég var.
Ung kona kom til hans, hún var feiminn, stamaði og átti erfitt með orðin. Ég ákvað að koma til þín og þakka þér fyrir greinina í blaðinu þínu. Ég hafði farið villu míns vegar, hafði haldið fram hjá manninum mínum, sem ég elska þó svo mikið, og þegar ég las pistilinn sem var í blaðinu í fyrradag, þá sá ég hvað ég var að gera. Ég átti því gott samtal við manninn minn í gærkvöldi og við ákváðum að hefja nýtt líf byggt á trausti okkar beggja. Ég er því að hefja nýtt líf, vegna þess að ég var svo lánsöm að lesa blaðið. Ég vildi bara þakka þér og Huldumanninum fyrir mig.
Ritstjórinn var hamingjusamur yfir pistlunum. Hann var meira að segja sjálfur farin að hlakka til að lesa pistil dagsins. Og hann varð að viðurkenna, að hann hafði breytt sínum lífstíl. Hann hugsaði öðruvísi, og jafnvel íhugaði hvernig Huldumaðurinn myndi bregðast við í þessu eða hinu tilfellinu. Hann sagði samt engum frá þessu.
Það fóru að berast fyrirspurnir fá öðrum fjölmiðlum, um hvort þeir mættu taka viðtal við Huldumanninn, sjónvarpsstöðvar vildu fá hann í viðtöl, og það var greinilegt að pistlar hans höfðu víðtæk áhrif á samfélagið. Fólk fór að hugsa öðruvísi, og taka meira tillit til annara, bara vegna þessara sterku skrifa, sem birtust í Blaðinu.
En því miður, enginn vissi deili á þessum frábæra höfundi, og því var ekki um nein viðtöl að ræða, eða kynningu á honum.
Einn daginn þegar ristjórinn kom inn á skrifstofuna sína, var enginn pistill á skrifborðinu hans.
Hann kallaði strax inn blaðamanninn, sem hafði haft milligönguna.
Ritstjórinn var æstur, mig vantar pistil dagsins, sagði hann. Það var ekki bara að hann vissi að hann þyrfti að fá pistilinn fyrir blaðið, heldur var hann sjálfur orðin háður þessum skeleggu frábæru skrifum, sem ristu svo djúpt, og kenndu mönnum svo margt um hvernig ætti að haga sér í dagsins önn.
Blaðamaðurinn var þreytulegur og greinilega sorgmæddur.
Ég er hræddur um að það verði ekki fleiri pistlar frá þessum höfundi, sagði hann lágt.
HVAÐ!, sagði ritstjórinn, þú ætlar þó ekki að segja mér að hann hafi farið eitthvað annað, að einhver annar hafi keypt hann, og hann yfirgefið okkur, án þess að ræða við okkur, við erum alveg tilbúnir til að hækka verðið.
Það var aldrei neitt verð greitt fyrir skrifin hans, sagði blaðamaðurinn.
Nú var honum aldrei greitt neitt fyrir þau ?. Þá þarf að bæta úr því, strax, sagði ritstjórinn æstur. Segðu mér bara hvað hann setur upp, það verður gengið að því.
Ég er hræddur um að það sé ekki hægt, sagði blaðamaðurinn.
Nú ! sagði ritstjórinn bull, það eru allir falir fyrir fé.
Nei ekki þessi, svaraði blaðamaðurinn.
Hvaða vitleysa, sagði ritstjórinn, við viljum gera hvað sem er til að halda í hann. Hvað sem er heyrirðu það!
Já ég heyri það, sagði blaðamaðurinn, en það er samt sem áður ekki hægt.
Viltu ekki útskýra þetta nánar, sagði ritstjórinn og var orðin heitur í kinnum af ákafa.
Huldumaðurinn okkar var tekinn af lífi kl. oo6 í morgun að staðartíma, í fangelsinu hér í borginni, sagði blaðamaðurinn. Hann sat í dauðaklefanum dæmdur fyrir morð. Og í dag var dauðadómnum fullnægt. Hann mun því aldrei framar skrifa greinar, né pistla.
En ég er viss um að með þeim áhrifum sem hann hefur haft til góðs með skrifum sínum hér í okkar veröld, mun verða vel tekið á móti honum, þangað sem leið hans liggur nú.
Ritstjórinn horfði á blaðamanninn. Ég hef þekkt þig yfir 30 ár, sagði hann loks, en ég veit sam ekkert hver þú ert. Hver ertu eiginlega ?
Blaðamaðurinn brosti. Svo sem enginn sérstakur sagði hann svo. En við ættum að muna að stundum glóa perlurnar skærast á sorphaugum mannlífsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.7.2008 | 12:29
Kyrrðarstund að kveldi og ísfirskur morgun.
Gærkvöldið var hreinn unaður, eftir blásturinn í fyrradag. Það var líka svo hlýtt að við settumst út í garð.
Með kertaljós. Elli minn fékk sér eina ölkollu, og stubburinn undi sér hið besta.
Lognið var algjört, kyrrðin slík að ekkert heyrðist nema fuglasöngurinn og suðið í hunangsflugunum og geitungunum, sem unnu eins og þrælar við að afla sér hunangs í kattarblóminu mínu.
Ú virkar óvarlegt, en hann var undir vökulum augum afa.
Þetta var nefnilega spennandi.
Já það ríkti hljóðlát hamingja í okkur litlu fjölskyldunni, því þennan dag fengum við að vitað að hann yrði hjá okkur til 18 ára aldurs. Það gekk allt fram í góðu. Og er ég móður hans þakklát fyrir það. Mér þykir vænt um hana. Stundum verða hlutirnir bara að ganga öðruvísi en til var stofnað. Besta lausnin fundin, og síðan heldur lífið áfram sinn vana gang. Knús á þig mín kæra
Dísarrunnar blómstra og allt er einhvernveginn svo ferskt eftir rigninguna.
Já það ríkir friður yfir þessu heimili.
Brandi finnst lika gott að tilheyra hópnum. Hann eltir mann út um allt, og er hálf athyglissjúkur.
Morguninn heilsar líka með bliðu og stafa logni. Dagurinn lofar góðu.
Fjöllinn spegla sig í pollinum, dökk og kröftug, þar sem sólin hefur ekki ennþá náð að lýsa þau upp.
Hvort snýr upp eða niður.
Ekki gott að sjá
Flugvélin kemur inn til lendingar, og truflar álfana í Strengberginu.
Og Flateyri kúrir sig niður í Önundarfjörðin, eins og til að liggja betur við sólinni.
Svanafjölskylda syndir í rólegheitum, sennilega eru pabbi og mamma að kenna þeim öllum þremur eitthvert lífsspursmálið.
Á Pollinum neðan við Sólbakka, hefur listamaður sett fram þennan frábæra bát, sem liggur við bauju.
Og ekki síðra er varðskipið með þyrlu aftan á pallinum.
Ég vildi bara deila þessu með ykkur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 25. júlí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar