Börn og barnaskapur, traust og hverjum er treystandi.

Barnaskapur, í alvöru og plati.

Afi og barnið. Voru að tala um mömmu og pabba.

 

Bernið: Hvar er pabbi þinn afi?

Hann er dáinn.

En mamma þín ?

Hún er líka dáinn elskan mín.

Hver drepti þau ?

Elskan mín það var Guð.

  

Ráðherran og sjávarútvegurinn.

 

I.S.G.  Hvað er þetta fólk alltaf að tala um í sambandi við fiskinn í sjónum ?

Form. L.Í.Ú. Þetta er bara rugludallar sem gera sér ekki grein fyrir því, að það er langbest að við sjáum um veiðar og nýtingu fiskistofnanna.

Já en hvað eru þeir alltaf að tala um að þið hafið fengi þetta gefins.

Form. Fástu ekki um það Ingibjörg mín, þetta er svona og verður ekki aftur tekið.  Eða viltu að sjávarútvegurinn hrynji.

Nei auðvitað ekki, ég mun því treysta ykkur til að sjá um þessi mál.

L.Í.Ú, já auðvitað við vitum þetta best.  Og svo stjórnum við Hafró.  Svo þetta verður allt í lagi.

 

Geir H. og bankamennirnir.

Geir.  Af hverju er fólkið alltaf að æpa um kreppu ?

Bankam.  Af því að þau kunna ekki fótum sínum forráð.  Vilja bara eyða og spenna, og einhver þarf að greiða allt spenderíið.

G .Já en þau eru alltaf að kalla á okkar aðgerðir.

B. Blessaður vertu Geir minn, það sem þau átta sig ekki á, er að við þurfum að græða meira, og halda sjó, svo landið fari ekki á annan endann.  Þess vegna er best fyrir ykkur að gera sem minnst, en bakka okkur upp hjá peningastofnunum.  Það er eina rétta leiðin.

Já ætli það ekki, ég læt ykkur þá bara um þetta.

Bank. Já það er best.  Þið getið fundið upp einhverja smjörklípur, til að slá ryki í augun á fólki.  Ef þið lendið í vandræðum, þá er sérfræðingur í Seðlabankanum, sem kann þetta 100%.Devil

  

Ýmislegt skemmtilegt á föstudegi í miðbæ Ísafjarðar.

Inn í nóttina.

IMG_9511

Himnagalleríið var opið á Flateyri í morgun.

IMG_9513

Hér kúrir þorpið undir fjöllunum.  Veraldarvinir eru þarna að hjálpa til við hreinsun, og í næstu viku vinn ég með þeim í gróðursetningum og hreinsun á illgresi, þau eru allstaðar að út heiminum, það verður gaman og fróðlegt að kynnast þeim.

IMG_9515

Í dag var síðasti dagurinn á kajaknámskeiðinu og þau fengu að grilla.  Amma ég vil fá hamborgara, og svo djúsí steik, sagði stubburinn.

IMG_9517

Gömul falleg hús, og bátar hér er sjóminjasafnið í neðsta Kaustað.

IMG_9519

en á fallegum góðviðrisdögum eru margir á Silfurtorgi og bara í miðbænum.  Hér var líka morrinn leikfélag vinnuskólans með uppákomu í dag.

IMG_9520

Fólki finnst lika notalegt að sitja í sólinni, og hitta mann og annan, ræða heimsmálin og svoleiðis.

IMG_9521

Svo var spilað á gítar, börnin máluð, og bara gleði.

IMG_9522

Hér var líka trúður.

IMG_9525

Ungar stúlkur að dansa.

IMG_9528

Strákunum fannst hinsvegar skemmtilegra að skjóta á einhvern úr vatnsbyssum.

IMG_9532

Og ekki vantaði ísbjörnin.

IMG_9534

Já hér var margt um manninn í dag.

IMG_9535

Það var líka setið úti fyrir Gamla bakaríinu og gætt sér á kökum, kaffi og slíku.

IMG_9537

Hello ve are french.  Cool Þau sitja fyrir utan Langa manga.

IMG_9538

Þessar ungu dömur gæddu sér á ís.

IMG_9540

En Lóa sat inn í handverkstæði Karitas, og prjónaði.  Þær eru duglegar konurnar hér að föndra allskonar fallega muni, sem þær svo selja túristunum og okkur hinum líka.

IMG_9541

Silfurtorg hjarta Ísafjarðarbæjar á góðum föstudegi.

Í kvöld kom svo vinur minn Hafsteinn Hafliðason í heimsókn með Iðunni konunni sinni.  Við sátum og spjölluðum, og svo gengum við um garðinn og ræddum um gróðurinn.  Hafsteinn er frábær og skemmtilegur, og sérlega fróður um gróður.

Svo eitt að lokum;

IMG_2674

Ég sakna þín barnið mitt blíða,

Með björtu augun þín skær.

Á röddina  hjartnæmu að hlýða,

Og knúsa þig brjósti mér nær. 

Að ræða um prinsessu pakka

Og pörin af ballettsins skóm.

Um daglegar þarfir, og þakka,

þegar þú færir mér blóm.  

Á ömmu sín æ viltu hlýða .

upphugsar allkonar gjörð.

Fallega prinsessan fríða.

Fróm vil ég stand’ um þig vörð.

IMG_6406 

 Prakkarinn litli sem lærir.

Og lætur mér líða svo vel.

Ákveðin hrund, sem að hrærir

hjartanu bljúga í mér.  

Þú kannt að gleðja og gefa

Gott er að hlúa að þér

.Grátin þinn  gjallandi sefa.

Gefa þér sálina úr mér.   

Víst er þú örmum mig vefur

Vaktar og  vilt ömmuskinn.

gæfuna mikla mér gefur.

gullmolinn yndæli minn.

 

Svo segi ég bara góða nótt, sofið rótt og takk fyrir hvað þið eruð alltaf yndisleg við mig. Heart  

 

 


Bloggfærslur 19. júlí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband