17.7.2008 | 23:05
Góða nótt.
Dagurinn i dag.
Kajaknámskeið í fullum gangi.
Stubbur skemmtir sér vel. Og er rosalega ánægður.
Bátaflotin bíður eftir krökkunum, þau ætla að fara sigla um pollinn.
En vinnudýrin mín voru að þökuleggja. Gera allt grænt og fallegt.
Og Jói minn blessaður var á gröfunni að slétta.
Við systur bröllum ýmislegt, ein systir mín ákvað að það yrði að taka mynd af ketti annarar systur með svona flotta húfu hehehehe
Nema sir Jóakim var ekki alveg tilbúin að samþykkja þetta, enda í fýlu, af því að systir mín fór í ferðalag og skildi hann eftir heima, Hann er búin að vera í fýlu í heilan sólarhring, svo þótti honum þetta brölt vera fyrir neðan sína virðingu Sjáiði bara svipinn á dýrinu ?
Hér er hann enn í fýlu hehehehe...
en á svona góðum dögum er bærinn fullur af fólki, sem situr og hygger sig í sólinni. Það er voða notalegt.
Já sólin gerir allt svo gott og notalegt.
Hér er falleg rós.
Hengipetunía svo falleg líka.
Og fjóla, sem ég hreinlega elska.
En þetta er bara svona smásnakk fyrir svefninn. Ég hef vaknað allof snemma núna undanfarna morgna, eða um fjögur fimm, og get ekki sofnað aftur. Ligg og hugsa um svo margt. Þannig að ég er orðin sybbinn, og vil bara segja góða nótt með þessum fallegu blómum, mannablómum og blómablómum. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.7.2008 | 09:29
Morgunstemning frá Ísafirði og Bolungarvík.
Svona nokkrar stemningsmyndir í morgunsárið.
Þegar nóttin er búin að segja bless, og dagurinn er ekki ennþá kominn. Þessi birta heillar mig.
Og róin yfir öllu, fjallið mótað í pollinn, og allt svo ferskt því í nótt rigndi enn á ný. En nú er sólin að brjótast fram aftur.
ég þurfti að skreppa út í Bolungarvík, og það er dálítið hrikaleg leið skal ég segja ykkur. Eða eigum við að segja hrikalega falleg leið. En næsta ár verða þarna göng, ég held samt að Óshlíðin verði opinn yfir sumartímann, svona til að fólk geti fengið óttahroll eins og að fara í rússíbana.
Eftir 20 ár trúir enginn því að þetta hafi verið aðalvegurinn til og frá Bolungarvík árið 2008.
Þeir eru að stækka og laga félagsheimilið sitt Bolvíkingar, þar ríkir enginn smámunasemi skal ég segja ykkur. Enda eru Bolvíkingar stórhuga menn. Datt í hug að segja hér inn myndir af þessum aðalskemmtistað Bolungarvíkur til margra ára, fyrir þá sem ekki eru þar lengur. Margir hafa stofnað til sambanda hér, og örugglega einhverjir orðið til, vegna þessa húss hehehe... og svo nálgast ástarvikan. Gott að hafa það í huga. Þó þetta hús verði ekki tilbúið þá.
En það er alveg öruggt að einhverjir fá sæluhroll að minnast skemmtana í húsinu. Og svo verður það fínt og flott, fyrir komandi kynslóðir að taka á móti, og gera þeim kleyft að kynnast og stofna til hjúskapar og barneigna. Félagsheimilin eru auðvitað bráðnauðsynleg svona í dreyfbýlinu.
Svo fór ég smárúnt á höfnina. Það er eitthvað við þessi skip, sem bíða endalaust eftir því að einhver bjóði þeim í siglingu. Sem sennilega verður ekki, nema þetta fjandans kvótkerfi verði afnumið eða breytt verulega.
Enda skrýtið að heyra í fréttum í morgun, Valgerði Sverrisdóttur segja okkur frá því, að Evrópusambandið hefði boðið íslenskum sérfræðingum að taka þátt í mótum fiskveiðistjórnunarkerfi Evrópusambandsins, og vinna nánar með þeirra sérfræðingum, en íslenska ríkisstjórnin, eða sjálfstæðismenn hefðu lagst alfarið gegn því. Það væri gaman að heyra þeirra útskýringar á því, hverju það sætti. Sennilega þurft að vernda kvótakóngana, sem borga í kosningasjóðina þeirra. Eða manni dettur það í hug.
Og svo vil ég nota tækifærið og vekja athygli á undirskriftasöfnun sem Guðsteinn Haukur hefur komið af stað til að styðja við bakið á Ásmundi Jóhannssyni sjómanni úr Sandgerði, sem er að róa kvótalausum bát, til að mótmæla þessu kerfi. Hann á heiður skilið og stuðning allra réttlátra manna. Því aðgerðir stjórnvalda eru mannréttindabrot á sjómönnum. Ekkert minna en það. http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur
Þó ekki hafi ríkt friður um byggingu nýju kirkjunnar á Ísafirði, þá er friður í þessari mynd.
Og gamli pollinn, vísar leið til nýrra tíma, stjórnsýsluhúss, hótels og blokkar. Bryggjan er farin að gefa sig, eins og kvótakerfið. Brátt hrinur hún niður, og ég vona að það geri þetta arfavitlausa kvótakerfi líka. Svo mitt í allri niðurníðslunni vaxa munablóm.
Já hvað vilja menn hafa betra veður en þetta?
Menningarhúsið Edinborg og smábátar sem una sér vel í logninu.
Og hér er hún María Júlía á kafi í drasli og dóti.
En ég býð ykkur góðan og blessaðan daginn kæru bloggvinir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Bloggfærslur 17. júlí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar