13.7.2008 | 23:26
Sæluhelgi, og annað á döfinni hér vestra.
Já þau komu í heimsókn, Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra. Það var fjör í krökkunum, eins og gengur.
Hann var fljótur að bleyta sig, og svo endaði þetta allt með að Ólöf Dagmar datt í tjörnina hehehehe
Hér eru svo bæjarstjórahjónin að sækja plönturnar sínar, til að fara með þær inn í Djúp til gróðursetningar, og ég sé ekki betur en kajakarnir séu með í för.
Og tími fyrir smáspjall um landsins gagn og nauðsynjar.
Jamm smá systkinametingur eins og gengur, ég er með meira en þú.
Já tjörnin gerir sitt.
Það var svo skömmu síðar sem stóra stúlkan okkar datt í tjörnina
en það hafði verið ákveðið að fara á Sæluvikuna á Suðureyri í dag, og við stóðum við það.
Súgandafjörðurinn langur, hlykkjóttur og fagur.
Þar var auðvitað elskuleg bloggvinkona mín Sigrún ásamt vinkonu sinni, sem búsett er í svíþjóð.
Flottar saman.
Ég er nokkuð viss um að hér voru ekki undir þúsund manns í dag þegar mest var, rosalega vel sótt.
Og sumir klæddu sig upp á í tilefni dagsins.
Og sumir einfaldlega vildu frekar leika sér á róló heldur en í hoppiköstulum.
Sem auðvitað stóðu öllum til boða.
Hér er mitt fólk á ferð.
Ömmu í kúlustrákar í leik.
Hér voru líka ýmsir aðrir, sem ekki eru algeng sjón hér.
Það var hægt að fá góðan Tailenskan mat.
En svo reyndar líka pylsur, harðfisk og annað góðgæti.
Bikarar fyrir sigurvegara voru þarna til staðar.
Börnin máluð fagurlega.
Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega. Súgfirðingar hafa alltaf verið skemmtilegt fólk sem hefur gaman að að koma saman og skemmta sér. Ég man hér í den, þegar ég var í hljómsveitarbransanum, og eins í leiklistinni, að það var alltaf gaman að koma á Suðureyri bæði til að halda böll og svo með leikrit. En, málið var að það þýddi ekkert að byrja giggið fyrr en um miðnættið, bæði vegna þess að þeir unnu svo lengi fram eftir, og svo að þeir fóru einfaldlega ekki út á lífið fyrr en eftri miðnætti. Það voru partý í heimahúsum, og þeim var ekki rótað fyrr. Stunum voru böllin frá eitt til sex um morguninn, því þegar þeir loksins komu á böllin, vildu þeir einfaldlega ekki hætta fyrr en í fulla hnefana. Súgfirðingar eru dásamlegt fólk.
Þessi unga stúlka er að syngja sæluvikulagið í ár.
Gríðarlega margt fólk var hér samankomið, bæði súgfirðingar, fólk af fjörðunum í kring, og svo brottfluttir og aðrir gestir.
Stemningin lá í loftinu, og veðrið var dýrðlegt.
Þessi unga snót opnaði svo söngvarakeppnina, hún var dálitið feimin, enda erfitt að byrja, og frábært hve margir tóku þátt í keppninni.
Þessi ungi maður tók Stál og hnífur með stæl.
Hér er verið að keppa um bronsbarka, silfurbarka og gullbarkabikara hvorki meira né minna.
Það var ellefumanna dómnefnd og áhorfendur fylgdust spenntir með.
Mér fannst þessi góð, sviðsframkoman hennar var frábær.
ég held að við séum að horfa á framtíðar performans.
Ömmur fylgjast vel með afkvæmunum, þegar þau eru að koma fram.
Sól sól skín á mig, söng þessi litla stúlka, og svei mér þá sólin kom fram í smástund.
Glæsileg ekki satt ?
Litla Evíta hafði líka gífurlega áhuga á söngvakeppninni ætli hún verði ekki með eftir nokkur ár ?
Hann er bara þriggja ára, og hann söng Bahama öll erindin, og ég er ekki að ljúga FYndið að heyra þetta litla skott syngja um veistu hve mörgum konum hann hefur sofið hjá
ég er enn að brosa.
Þessar skottur sungu saman.
Þessi á undan voru Bronsbarkarnir frá 0 upp í tíu, svo komu silfurbarkarnir, frá 11 upp í 15 minnir mig, hér er Sóley Ebba komin, margfaldur sigurvegari, ég held að hún eigi þrjá bikara nú þegar.
Stubburinn minn tók þátt, hann söng This is my live, og gerði það bara rosalega vel.
Svo voru það gullbarkarnir,, þessi var flottur á því og tók Queen.
en þessi unga kona, var aldeilis frábær, þarna stóð hún ólétt eins og ég veit ekki hvað, og söng! Sister, svo frábærlega að ég fékk gæsahúð. Mikið rosalega var hún flott.
Það var þröngt setin bekkurin á Suðureyri í dag svomikið er víst.
Það var keppt í fótbolta, brottfluttar og heimakonur, sleggjukasti kvenna og karla, snúðabökun og ég veit ekki hvað og hvað, gefinn verðlaun fyrir flottasta garðinn og snyrtilegustu eignina.
Og stráksi sem söng stál og hníf, varð bronsbarkinn í ár.
Og Sóley Ebba fékk sinn fjórða bikar, enda flott.
Gullbarkinn Syster hampaði sínum bikar.
Þessi unga kona var kjörin bjartasta voninn, og fékk farandbikar; Rabbabikarinn í minnigu Rafns Jónssonar, það er ekkjan hans hér lengst til vinstri sem afhenti hann.
Hér er enn og aftur mitt fólk, ég á tvær tengdadætur héðan frá Suðureyri. Svo fyrir utan góðar minningar fá Suðureyir i denn, kátt er í Kongó og svoleiðis, þá hefur hún öðlast öðruvísi stað í mínu hjarta fyrir utan leikskólann og skotturnar mínar tvær sem þar eru.
Síðast á dagskránni var að vígja minnismerki súgfiskra sjómannskvenna.
Eins og hér kemur fram er það hugmynd frá Lilju Rafney. Frábært framtak, það vill oft gleymast þeir aðiljar sem ekki eru í sviðsljósinu, en taka allan þátt í ævintýrinu. Vonir ótti, sorgir og tár. Það vill svo oft gleymast, það sem þykir sjálfsagt, en er það bara alls ekki.
Hér stendur hún og horfir til hafs, bíður eftir bónda sínum og fyrirvinnu, kemur hann heim í kvöld?
Hún horfir til hafs bíður og vonar að hann komi heill heim.
Hér er verið að undirbúa vígsluna, en ég varð að fara heim, til að setja steikina í ofninn, því faðir minn elskurlegur kemur í mat á sunnudögum, og það þarf tíma til að elda læri eins og allar konur vita.
Lífið gengur sinn vanagang, og þýsku veiðimennirnir koma af hafi, glaðir með feng sinn, en alls utan við gleði og hátíð þorpsbúanna. Ég vil þakka ykkur kæru Súgfirðingar fyrir frábæran dag, og góða skemmtun. Það er nauðsynlegt hverju samélagi að eiga svona helgi þar sem allir leggjast á eitt við að gera sér dagamun. Þið eigið líka gott að eiga ykkur sterka, bæði andlega og fjárhagslega einstaklinga, sem elska samfélagið sitt og leggja sitt af mörkum til að gera þessa Sæluviku svona frábæra eins og hún er. Það myndi aldrei ganga öðruvísi. Því segi ég, ekki gleyma að klappa þeim á bakið sem svo mikið lögðu á sig til að gera þessa hátíð svo glæsilega. Það þarf ekki að nefna nein nöfn, það vita allir við hverja er átt. Hafið hjartans þökk fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
13.7.2008 | 11:37
Sunnudagsmorgun í kúlu.
Yndislegur kyrrlátur fallegur sunnudagsmorgun. Hreinn og tær eftir rigningu gærdagsins og næturinnar.
Ég en í kotinu, því afi skutlaði Úlfinum til Suðureyrar á æfingu, nú á að taka þátt í söngvarakeppninni, hann er búin að vera að æfa sig og æfa sig í allan gær og fyrradag. Vonandi gengur honum vel.
Það er auðvitað logn. Og ég er viss um að sólin brýst fram um hádegið.
Vitiði nú hvað. Mér finnst það algjör forréttindi að hafa pollinn svona dag eftir dag, eins og eitt stórt málverk. Hugsið ykkur, það er engin myndlistarsýning sem toppar þetta.
Það sést líka vel hve úthaginn hefur grænkað í úrkomunni undanfarið. Allt svo hreint og fallegt, og mikill friður.
Alveg einstakt að mínu mati. Ég er reyndar búinn að fara upp á lóð og taka upp plöntur fyrir bæjarstjórann. Hann er að fara að planta út í dag blessaður með sinni konu. Það er ekkert uppbyggilegra fyrir samlíf en einmitt það.
Hér sést vel hve allt hefur grænkað, og sennilega verður mikil berjatekja í ár.
Hehehe ég stend á sama blettinum og sný mér bara í ýmsar áttir.
Á svona morgni er svo gott að vera til. Allt hjálpast að að setja frið í sálina, fuglasöngurinn, kyrrðin og maður heyrir plönturnar stynja af vellíðan vegna rakans. Fjrðurinn glitrar af spegilmynd fjallanna.
Hélurifsið brosir við manni.
Fjólurnar hafa greinilega stundað stóðlíf hehehehe.
Vestmanneyjabaldusbráin skartar sínu fegursta. Mér þykir vænt um hana, eins og alla vini mína hér frá eyjunni grænu.
Én í þessu heyri ég að krúttmolinn minn Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra eru að koma inn úr dyrunum. Það þarf að gefa kaffi, og jafnvel einhvern morgunmat. Sé ykkur. Eigið góðan dag, og vonandi jafn fallegan og yndælan og þessi sem hér er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 13. júlí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar