Daglegt veður á Ísó og ýmislegt.

Sólin braust fram í dag, en í morgun var þokan niður undir jörðina.

IMG_9227

Samt svolíltið rómó.

IMG_9228

Og gömlu bátarnir kúrðu svo friðsælir í logninu í höfninni. IMG_9229

Þetta er svona sjokkaðvörun fyrir þá sem koma heim í sumar, og vita ekki neitt, en hér er risinn glæsibygging við hliðina á gömlu Björnsbúð, sem núna er dótabúð.

IMG_9230

Og til að glöggva sig ennbetur, þá sést hér í gamla barnaskólann, heheheh.

IMG_9231

 

En pápi minn elskulegur verður níræður í byrjun ágúst, og ég á að sjá um skemmtiatriðin, svo mér datt í hug að heimsækja nýja hafnarstjórann í Bolungarvík til að vita hvort hann væri til í smá gig, en svei mér þá, verslunarmannahelginn er eina helgin sem þessi piltur ætlar sér að vera burtu, nánar til tekið á Austfjörðum, svo það gekk ekki upp.  En þetta er sum sé nýji hafnarstjórinn í Bolungarvík.

IMG_9232

Sjáið bara hrikalega fegurð Bolungarvíkur.

IMG_9233

en þar sem ég ók inn Seljalandsveginn, þá byrjaði að rofa til, þessi mynd sýnir birtuna vel.

IMG_9234

Og loks hafði sólin betur í baráttunni við mistrið, og skein á rangláta og réttláta, eins og hún hefði aldrei gert neitt annað.

IMG_9235

Ef þið viljið blóm, sem er bæði harðgert og duglegt, getur bæði verið í bleytu og þurrki, þá er þetta plantan sem þið viljið.  Apablómið stórkostlega, sem breiðir sig út yfir heilu skurðina, en getur alveg eins staðið og blómstrað, norðanundir vegg, í þurrki,  þá hafði þið það hér minulus frábær harðgerð planta sem þolir nánast hvað sem er, og svo er hún líka svo dómdags falleg.

IMG_9237

Og ísafjarðarbörnin á kajaknámskeiði.  Það skortir ekki verkefni fyrir börnin okkar hér, það er öruggt mál.

IMG_9239

Þessi fallega sýrena, sem líklega er fagursýrena Bogarsýrena, blómstarði og brosti við mér niður í Kínahverfi, sem svo er kallað hér.

IMG_9240

Þau eru búnir að vera þvílíkir vinir í fleiri daga, Sóley Ebba og Úlfur hér í kúlu, en í kvöld fengu þau að sofa í tjaldi hjá Ólöf Dagmar.

IMG_9243

En í kvöld átum við Hrefnuket.  Ég get alveg sagt ykkur það, að réttmeöhöndlað hrefnuket er BETRA en nautakjöt.  Ég keypti marinerað hrefnuket í Samkaup, og steikti það samkvæmt ráðleggingum Magga Hauks, súperkokks, steikt í smjöri, það verður ekki gefið upp nánar hér, nema eftir sé leitað, og soðnar kartöflur, með sultu.  Algjört sælgæti. Allir tóku vel til matarins, og hrefnan var uppétin á nóinu.  Reynið sjálf, passið bara að steikja hana ekki lengur en 2-3 mín.  á velheitri pönnu, og hún bráðnar upp í ykkur..... nammi namm.

IMG_9244

Meiri háttar steik.

IMG_9245

Hér er kvöldmynd, þar sem sólin hefur unnið sigur á mistrinu.  Æ það er bara yndælt.

IMG_9246

Og börnin að fara að heiman LoL Til að sofa í tjaldi, með allar sínar græjur í kerrunni hennar Ásthildar.  Svo við erum ein í kotinu.  Það er auðvitað bara notalegt, en samtvantar eitthvað. Ég segi bara góða nótt elskurnar mínar og takk fyrir öll fallegu komentinn ykkar.  Ég nýt þeirra í botn, nota mér þau mér til sáluhjálpar, og geymi þau í hjartanu, og læt þau ylja mér endalaust gegnum daginn og kvöldið.  Ég held að þið áttið ykkur ekki einu sinni á hve gefandi þið eruð, með svörum ykkar.  Það er bara þannig.  Knús á ykkur.  Og Sigrún mín, það var rosalega gaman að hitta þig í dag, og ég vona að þú gefir þér tíma til að koma við, og þiggja kaffi eða eitthvað.  Knús á þig mín kæra. Heart


Bloggfærslur 10. júlí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband