Smá ferð til Bolungarvíkur og daglegt veður á Ísó.

Já hér er at sem aldrei fyrr. En svo birtir upp um síðir.  En veðrið heldur áfram að vera meiriháttar gott.  Þ.e.a.s. fyrir venjulegt fólk, mig vantar rigningu.  Það er spáð rigningu á morgun, en það er varla skýhnoðri á himni, svo það er alls ekki víst að svo verði.  Af hverju getur ekki bara ringt á nóttunni, ég veit að það er hellirigning, þrumur og eldingar í Vínarborg.

IMG_8832

Hér er í gangi róðrarnámskeið fyrir ungmenni.  Nálægð við sjóinn á sinn þátt í því, og svo öflugt kajakfélag.

IMG_88321

Þau hafa gott af að læra að umgangast Ægi Stórsjó, það gerir nálægðin við hann.

IMG_8835

Þetta er hún Elísabeta mín frá Portúgal, hún er ásamt stelpunum mínum að setja niður sumarblóm og hreinsa beðin.  Það er mikil vinna og gengur frekar hægt þess vegna. Og svo er vökvun vandamálið.

IMG_8836

í hádeginu brá ég mér til Bolungarvíkur með  mínum elskulega eiginmanni.  Þessa lóð hefur hann unnið að, og margar fleiri þar ytra.

IMG_8838

Það er ekkert skrýtið að bolvíkingar séu harðgert dugnaðarfólk, sem eru kóngar allir hreint, með öll þessi hvössu háu fjöll í kring um sig.

IMG_8839

Krafturinn bókstaflega gýs upp af alefli yfir fólkið, sem kann það vel að meta.

IMG_8840

Það eru örugglega sterkar vættir sem búa í svona fjöllum, og miðla orku sinni til þeirra sem þarna dvelja.

IMG_8841

Það hlýtur bara að vera.

IMG_8842

Þarna á gangnamunninn að vera, sem mun sameina Bolungarvík og Ísafjörð í eina sæng í fyllingu tímans.

IMG_8846

Þessi frábæra lóð varð á vegi mínum.  Þvílíkt ýmindunarafl, og ég man eftir svona suðupotti heiman að frá mér, þessi blái, bara okkar var stærri, þar var soðið slátur, og líka ullinn af kindunum, áður en hún var hengd upp til þessis.

IMG_8847

Ég ætla að bjóða þér í hádegismat, sagði minn elskulegi.  Og viti menn hér er líka þessi frábæra krá og veitingastaður alveg niður við höfnina í Bolungarvík.

IMG_8849

Notalegur staður, ég mæli með því að þið kíkið út í Bolunvarvík og farið þarna inn, þar er margt að sjá.

IMG_8850

Greinilega er hér umhyggja og alúð lögð í innréttingar og þá muni sem hér eru.  Minjar frá liðinni tíð, og minningar um gengið fólk.

IMG_8851

Maður sér ekki mikið af svona dýrgripum um landið í dag, svei mér þá.  En er þetta ekki notalegt og kósý?

IMG_8852

Ég er viss um að Bolvíkingar kunna vel að meta þennan stað, svo og þeir sem þangað fara og svo auðvitað kostgangararnir, sem borða hér í hádeginu.  Hér var fullt hús af iðnaðarmönnum.  Ég náði þessum myndum áður en þeir komu.

IMG_8853

Og hér er svo höfnin, Pálmi Gestsson verður hér hafnarvörður í sumar.  Hann heldur auðvitað uppi fjörinu ásamt öðrum eðalbolvíkingum.  En hann er nýráðin hafnarvörður á Bolungarvíkur höfn.

IMG_8855

Hér er svo krúttlegi vitinn sem er síðasta mannvirki áður en haldið er á Óshlíðina, þar á undan er Ósvörin, safnið frábæra, þar sem Arngrímur og Finnbogi Bernódusson skiptast á að klæðast skinnklæðum og sýna gestum og gangandi hvernig sjósókn var hér fyrr á öldum.

IMG_8856

Hér verður svo gangnamunninn Hnífsdalsmeginn, það má segja að öll hlíðin hafi verið tekin niður, því líkt og annað eins.

IMG_8858

Hér erum við svo komin heim á kunnuglegar slóðir.

IMG_8862

Þessi mynd er ekki eins hættuleg og hún sýnist.  Nafna mín í þröngri stöðuLoL

IMG_8861

Jamm nefnilega... eða þannig. Heart

 


Gamla bókabúðin á Flateyri. Miklu meira en orð fá lýst.

Ég fór til Flateyrar í dag, sem ekki er í frásögur færandi, nema hvað ég þurfti að tala þar við ágæta kunningjakonu mína, og hún var ekki heima, þar sem ég var að vandræðast kom til mín kona, og spurði mig hvort ég ætlaði að hitta Jóhönnu.  Já sagði ég, hún er niðri bókabúð sagði konan.  Ég fór svo niður í "bókabúð" og þvílík dýrð sem þar er á ferðinni.  Þetta er verslun í sinni gömlu mynd.  var stofnuð 1914, og rekinn til 1999.  Fyrst af bræðrum, en síðar tók einn þeirra við versluninni og rak hana til dauðadags, síðan tók kona hans við og var með verslunina til 1950, en þá tóku börnin við, þegar þau svo hættu, gáfu þau minningarsjóði Flateyrar allt saman, húsið verslunina og allt.  Minningarsjóðurinn "vona að ég fari rétt með nafnið" tók við rekstrinum og frá árinu 2006 hefur bókabúðin verið opin almenningi, þar er fornbókasala og skiptimarkaður.  Og heimilið er til sýnis. 

Að vísu er þetta ekki rekstur sem borgar sig, og allt starf þarna er unnið í sjálfboðavinnu.  En ég segi nú bara ef þið eigið leið til Flateyrar, látið þetta ekki fram hjá ykkur fara.  Eg var gjörsamlega heilluð, og tók nokkrar myndir til að sýna ykkur.  Þvílíkar perlur sem leynast víða, segi nú ekki margt.

IMG_8743

Svo þið ratið nú inn, þetta hús lætur ekki mikið yfir sér.

IMG_8745

en þarna eru innréttingar frá 1914 svei mér þá.  Þetta er æði, hreint og beint eins og að stökkva inn í fortíðina í fullum herklæðum. 

IMG_8746

Hér kennir sko ýmissa grasa, og hér er allt til sölu.  Þetta er ekki bara eitthvað dautt safn, heldur lifandi með sál.

IMG_8747

Segi og skrifa.

IMG_8748

Einhversstaðar las ég að bækurnar væru seldar eftir vikt, þarna er ein algjört listaverk.

IMG_8749

Skrifstofan, og ritvélin samkvæmt nýjustu tísku ekki satt ?

IMG_8751  

Aha einhver áhuga á líni ?IMG_8752

Hreint út sagt frábært að upplifa.

IMG_8753

eitt er búðin, annað er íbúðin, sem er öll eins og hún var, það er eins og að fara aftur inn í fortíðina, ég segi það satt, þið verðið að gera ykkur ferð þarna til að upplifa þessa dásamlegu stemningu.

IMG_8754

Hvar annars staðar í veröldinni getur maður gengið beint í í svona upprunalegt heimili frá annari öld?

IMG_8755

Það fylgdi bókstaflega allt með, hnífapörin diskarnir og allt heila klabbið.

IMG_8756

Það var eins og fólki hefði labbað sig út í gær, eða jafnvel hefði bara skroppið í bæinn.

IMG_8757

Alveg einstök upplifun. 

IMG_8758

Eldhúsið, alveg eins og það var.

IMG_8759

Hér er ketilinn, brauðristin og hrærivélin.

IMG_8761

Leirtauið ennþá á sínum upprunalega stað, eins og húsmóðirin hefði verið þarna í gær.

IMG_8762

Hver man eftir svona rafmagnsinntaki ?

IMG_8766

Ætli þetta sé ekki minnsta klósett í heimi ?

IMG_8767

Innrammaður reikningur frá Guðmundi Mosdal, smíðakennaranum góða.

IMG_8771

Hér hefur verið hlustað á veðrufregnir og leikið af plötum.

IMG_8772

Auðvitað klukkan á sínum stað, og veggteppið, örugglega saumað út af húsmóðurinni.

IMG_8773

Já þetta er sko eitthvað til að upplifa og skoða, ég segi nú ekki margt.

IMG_8774

Meira að segja gítarinn á sínum stað.

IMG_8775

Meiriháttar.

Mér skilst að reksturinn standi í járnum, hér er allt unnið í sjálfboðavinnu, við að halda búðinni og heimilinu opnu.  Að vísu ætla kaupmannasamtök Íslands að styrkja þetta frábæra verkefni núna, en það þarf meira að koma til.  Það þarf gesti sem hafa áhuga á að vippa sér inn í fortíðina og upplifa gömlu dagana frá A til Ö.  ´Sjá hvernig fólk lifði og hrærðist, og hér er engu bætt við, eða tekið út, hér er bara allt eins og það var.  Og hugsið ykkur framsýni Flateyringa að hafa svona minningarsjóð, sem  hlúir að svona dásemd, þeir eiga líka fallegt dúkkusafn, sem ég á örugglega eftir að skoða og taka myndir af. 

En ég bara er djúpt hrærð yfir að hafa fengið að sjá þetta og skoða.  það er ólýsanleg upplifun.  Og ef þið eigið leið  hér um, ekki láta Flateyri og gömlu bókabúðina fram hjá ykkur fara.  Takið með ykkur gömlu bækurnar sem þið eruð búin að lesa og skiptið þeim fyrir aðrar sem þið hafið ekki lesið, bregðið ykkur svo nokkra tugi ára aftur í tíman og fáið árin beint í æð.  Þið munuð ekki verða fyrir vonbrigðum. 


Bloggfærslur 26. júní 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband