Ungverjaland þriði hluti, kvöldsigling á Dóná, og ferðalag til Szeget.

Áður en við leggjum að stað til Szeget ætlum við aðeins að skemmta okkur, í mat og drykk um borð í fljótabát á Dóná.  Fara í kvöldsiglingu um Dóná og hlusta á sígauna spila og horfa á þjóðdansa.

Ungverjaland20083 007

Tilhlökkun, hér erum við á hótelinu að bíða eftir rútunum, sem aka okku um borð.

Ungverjaland20083 008

Jamm fólk er uppáklædd og tilbúið í skemmtunina.

Ungverjaland20083 010

Kórstjórinn elskulegi hún Beata Jó, með öðrum syni sínum.

Ungverjaland20083 011

Já hér erum við komin niður að Dóná.  Ruslið sem sést hérna, flýtur niður með ánni, þar ægir saman allskonar drasli, flöskum og rusli, sem áin ber með sér og er bara heilmikið mál að hreinsa og þrífa.

Ungverjaland20083 012

Hér er báturinn sem við ætlum að sigla með um Dóná.  Þó áin virðist kolmórauð, þá er allt í lagi að borða fiskinn sem veiddur er í henni.  Þetta er mest leirburður sem litar hana. Hún hefur verið hreinsuð vel af mengun, svo það er allt í lagi að borða fiskinn.

Ungverjaland20083 015

Ef maður spáir í það, þá er engin tilviljun þessi hái veggur sem hlaðinn er upp, því flóð eru tíð, og þá hækkar vatnið ansi mikið.  Þetta er því varnarveggur gegn flóðum.

Ungverjaland20083 020

Svona erum við bara, konurnar, yndislegar og kammó hver við aðra, þess vegna ganga ferðirnar alltaf svo vel, af því að stemningin er frábær, og aldrei ber neinn skugga þar á.  Og svo eru karlarnir í forsvari, og þeir bera ábyrgðina, við bara höngum með og höfum það gott Heart P.S: ég á þessi bros Tounge

Ungverjaland20083 030

Um borð var bæði heitt og kalt hlaðborð, og það svignuðu borðin undan veitingunum. 

Ungverjaland20083 034

Svo voru náttúrulega ungverskir þjóðdansar í hávegum hafðir, undisspilarar voru sígaunarnir um borð.

Ungverjaland20083 039

Fallegir búningar, og örugglega allt handsaumað.

Ungverjaland20083 043

Eins og sá íslenski, nú er Matta Helga og Gréta búnar að smita mig svoleiðis að sennilega fer ég á næsta námskeið í þjóðbúningasaumi, gott ef ég læri ekki líka að gera allt skrautið, þá er bara að finna sér einhversstaðar tíma.... á einhver tímakvóta á lausu Blush

Ungverjaland20083 046

Reffileg, hér dansar hún með flösku á hausnum.

Ungverjaland20083 054

ég hef svona rökstuddan grun um að þetta sé mamman og sonurinn.  Að hún hafi kennt syninum að dansa, svona fjölskyldusammeneitthvað.  En það er bara hið besta mál ekki satt?

Ungverjaland20083 068

Það var líka skipt um búningar og svoleiðis.  en það var gaman að fylgjast með þessu, og þjóðdansar standa alltaf fyrir sínu, hvort sem þeir eru íslenskir eða útlenskir.

Ungverjaland20083 077

Dóná upplýst í rökkrinu.

Ungverjaland20083 082

Þetta er svona frábærasti og lífrænasti klósett odour sem ég hef kynnst.  Allir sem hafa fengið liljur í blómkransa kannast við sterkan ilminn sem þær gefa frá sér.  Tilvalið á klóið, og örugglega ódýrara en eitthvað tilbúið lyktareyðingarpjakk, sem er ekkert betri en ekta skítalykt, ef við værum ekki svona miklar pempíur. LoL

Ungverjaland20083 083

Sérfræðingar að störfum.  Mummi Þór vélarsérfræðingur og Jón Sigurpáls forstjóri fyrir sjóminjasafnið á Ísafirði, ég er viss um að þeir höfðu sterkan áhuga að fá þessa rússnesku vél heim og í safnið, og ég er líka viss um að Mummi hefði ekkert á móti því að fá aðeins að grufla í systeminu á henni LoL Allavega leynir áhuginn sér ekki.  vonandi verða þeir ekki teknir fyrir njósnir.

Ungverjaland20083 086

En eins og allir vita, þurfa karlmenn alltaf að fá verðlaun, þeir þurfa að vita að það sé metið það sem þeir eru að gera vel.  Við konurnar skiljum það svo vel.  Þó við þurfum ekkert svoleiðis.  Enda er saga okkar ekki þykk í Íslandssögunni.

Ungverjaland20083 089

Þeir voru því kallaðir upp nokkrir til að fá viðurkenningu fyrir vel unninn störf, og voru örugglega allir vel að því komnir.

Ungverjaland20083 091

Hér fær Kristján tíundi kóngur sína viðurkenningu.

Ungverjaland20083 098

Jamm bara gott mál að fá viðurkenningu.

Ungverjaland20083 104

Hér eru svo raddstjórarnir eða hvað það nú kallast, hver með sína viðurkenningu, fyrsti tenór annar tenór, bassi og annar bassi.  Takið eftir verðlaununum, svona pútur sem gogga i matinn sinn hehehehe

Ungverjaland20083 115

Aftur heim á hóteli.  Ef þið haldið að þessi lengst til hægri frá mér séð sé mister Bean, þá er það misskilningur.  Að vísu dálítið líkur honum, en þessi er frá Bolungarvík, og er ekki vitund líkur Bean í sér.  LoL Nema bara í útliti.

Ungverjaland20083 120

Ókey þá erum við lögð af stað til Szeget, nema að það kom fljótlega í ljós að rútan okkar, þær voru tvær, var eitthvað biluð.  Hitaði sig og gekk ekki vel.  Við fengum svona hægfara siteseeing tour LoL

Og stoppuðum á flestum stoppistöðum á leiðinni.

Ungverjaland20083 121

Já já við stoppuðum og stoppuðum, ókum á 80 km á hraðbrautum Ungverjalands, og gátum virt fyrir okkur landslagið og dýrin og hvað eina sem á vegi okkar varð.

Ungverjaland20083 124

Svo kom að því að forvitnir íslendingar vildu kíkja oní vélina, því við erum jú klárust og best ekki satt. ?

Ungverjaland20083 125

Smá skýjamynd, himnagalleríið var opið hér eins og svo oft heima.

Ungverjaland20083 128

Já já það var stoppað, bíllinn og farþegar þurftu að kæla sig, því auðvitað var loftræstingin líka biluð, svo við sátum í heitri rútunni sveitt, en samt glöð og kát, og gerðum bara gott úr öllu saman.

Ungverjaland20083 130

Það var hér í miðju Ungverjalandi á sléttunum, sem fólk kom frá Mesópótamíu, og settist hér að, um það leyti sem Víkingarnir gerðu sig heimakomna á Íslandi, eða um 990 eitthvað. Þeir hröktu fólkið í burtu sem var þar fyrir, rétt eins og landsnámsmennirnir heima gerðu við Papana. 

Ungverjaland20083 135

Einhver var að segja að íslenskar kýr hefðu sérstöðu vegna litarins, en mér sýnist nú að ungversku kýrnar séu bara allavega á litinn.   En svo eru líka sérstakar kýr sem eru hér landsnámskýr, gráar með stór horn.  Að mínu mati líkar kúnum sem ég sá í Guatemala og þar um kring.

Ungverjaland20083 144

Svona sveitabær sennilega týpiskur, en samt heilmikið kot.

Ungverjaland20083 145

Og enn var stoppað, en það gerði reyndar ekkert til, eftir að við fréttum að þeir í hinni rútunni væru komnir á áfanga stað, en yrðu að bíða eftir sínum herbergjum, þau myndu verða klár um það leyti sem við kæmum til Szeget.  Verst með ands.... hitann í rútunni.

Ungverjaland20083 150

Loksins komin upp á herbergi, loftkælt og hreint.  Notalegt, þó voru sumir ennþá að bíða eftir sínum herbergjum.  En við komumst strax inn í okkar.

Ungverjaland20083 151

Útsýnið fallegt yfir Tisza fljótið.

Ungverjaland20083 152

Flottur bær, svona um það bil jafnstór að höfðatölu og Ísland LoL

Ungverjaland20083 154

Hér er svo kóngurinn enn að bíða eftir sínu herbergi, hér er ekki farið eftir stöðu eða merkilegheitum hehehehehehe...

Ungverjaland20083 156

Og ef þið haldið að trabbi sé útdauður, þá verðið þið að fara til baka með það, hér lifir hann góðu lífi.  En nú erum við komin til Szeget, merkileg borg, með mikla sögu.  En meira um það síðar. 

Knús á ykkur öll inn í nóttina.  Ég er á kafi í mold og gróðursetningu sumarblóma, eiginlega á kafi. HeartÍ vatni, á einhver rigningu til að lána mér ?

 


Bloggfærslur 24. júní 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband