16.6.2008 | 19:31
Ungverjaland - annar hluti.
Jæja ég var búin að setja inn heilmikla færslu hér í gærkveldi, með myndum úr Ungverjalandsferðinni, en færslan sú vildi bara fljúga um loftin blá og hvarf bara. Ég bara hafði ekki orku til að endurtaka leikinn í gærkveldi. Nú er að sjá hvort ég kemst fram úr þessu á ný mín kæru.
Ungverjar kalla sig sjálfir Magyar, og landið Magyarország.
Hér erum við aftur komin á Budahæðina. Þeir eiga mikið af minnismerkjum Ungverjar.
Það eru líka mikið af rómverskum rústum í landinu, en þeir ríktu yfir Ungvarjalandi í nokkur hundruð ár.
Hér horfa menn ofan af Búdahæðinni niður á Dóná, sem skrýðist ljósum, eftir því sem myrkrið færist yfir.
Hér sjást nokkur ljósanna.
En við vorum stödd í Dónárdalnum, nú erum við komin upp í hæstu hæðir, og snæðum hádegismat í veiðikofa, Visegrád, það var reyndar brandari hjá fararstjóranum að kalla húsið kofa, því þetta var stórglæsilegt hús, með yndislegu útsýni yfir Dónárdalinn.
Hér er hluti af útsýninu, og þarna má líka sjá gamla höll, fremst á brúninni á næstu hæð, þær voru yfirleitt byggðar með góðu útsýni yfir svæðið, svo hægt væri að spotta óvinina tímanlega.
Eftir matinn var haldið áleiðis til Szentendre ferðamanna þorp, þar sem hægt var að kaupa ýmsar handunnar vörur, fallega dúka, og útskorin leynibox, og slíkt. Það eru þónokkrar hannyrðakonur í hópnum, og þær voru himinlifandi. Sá sem situr í hásætinu er auðvitað konungurinn í hópnum, Kristján tíundi. Hann er einn af þeim mönnum sem láta ekki deigan síga við mótbárur. Ótrúlegur maður.
Hér erum við stödd á aðaltorfi þorpsins, og auðvitað fékk maður sér bjór hvað annars. Þessi Ungverski er aldeilis prýðilegur.
Þessi ágæti vagnstjóri vildi svo ólmur aka okkur niður að rútustæðinu.
Þessi dagur endað svo á sameiginlegri kvöldmáltíð í öðru glæsihýsi, villibráð á boðstólum og fasanasúpa í forrétt.
Allir voru glaðir eftir velheppnaða ferð um Dónárdalinn og hér syngja menn Mansöngva til þjónustunnar, og líkar henni bara vel.
Okkar einu og sönnu Olli og Steini tóku svo tvíundarsöngva, eins og þeim einum er lagið. Ó mín flaskan fríða, hljóta þeir að vera að syngja hér.
Tónleikar númer tvö voru í Konungshöllinni í Gödöllö - borgarstjórinn flutti ræðu og þarna voru heimamenn, blandaður kór sem tók lagið með okkar mönnum.
Meðan strákarnir gerðu sig klára og héldu æfingu, læddumst við nokkrar kvinnurnar og fengum okkur bjór og grillaðan kamenbert með sultu.
Tónleikarnir tókust mjög vel, og voru allir hrifnir. Sérstaklega tók ég eftir því þegar þeir tóku lög á dagskránni sem voru Ungversk, og þar af eitt á ungversku. Þá dilluðu menn sér, brostu og tóku jafnvel undir.
Svona sælusvipur var á mörgum gestanna, og það var gaman að sjá hér er örugglega verið að syngja Stabat Mater.
Hér syngja kórarnir báðir saman, og enduðu á lagi sem allir sungu með á ungversku Víva tutte, það er magnað hvað söngur sameinar fólk.
Eftir tónleikana fórum við út í hallargarðinn og heimamenn buðu upp á veitingar, léttvín og brauð. Og svo var haldið áfram að syngja saman.
Hér erum við aftur komin til Buda, þessi örn er merkisberi, en hann bar sverð til Kóngafólksins, man ekki nákvæmlega þá sögu. En þetta er enn ein glæsistyttan í Ungverjalandi.
Við erum stödd í Konungsgarðinum. Þetta er Matthíasarbrunnur. Það er saga í kring um hann. Matthías var einn af konungunum, hann var vinsæll og vitur konungur. Hann var maður fólksins. Það bjuggu ung stúlka og afi hennar í skóginum nærri höllinni. Oft og iðulega kom þangað í heimsókn veiðimaður, þau felldu hugi saman stúlkan og veiðimaðurinn. Einu sinni fóru þau í borgarferð, var þá verið að hylla konunginn, og stúlkan sá að veiðimaðurinn hennar var konungurinn sjálfur. Þegar hún kom heim, framdi hún sjálfsmorð, vegna þess að það hafði runnið upp fyrir henni að þetta var vonlaus ást. Nokkru seinna kom svo konungurinn í heimsókn, hann spurði eftir stúlkunni, gamli maðurinn sagði þá hvers kyns var, og sagði þetta hefðir þú ekki átt að gera okkur.
Hér erum við stödd á freslsistorginu, þar eru höggmyndir af öllum konungum og aðalráðamönnum landsins.
Og okkur varð auðvitað ekki skotaskuld úr því að finna hverfispubbinn, þar sem bjórinn kostaði 250 forynjur, eins og við kölluðum myntina, foryntur held ég að hún hafi heitið. En bjórinn gat kostað upp í 1000 foryntur eða meira. 850 kr. gat lítil flaska af bjór kostað á hótelinu.
Við fórum að skoða þinghúsið í Búdapest, það er með glæsilegri byggingum, og er víst svipað gamalt og hjá okkur, það er margt líkt með sögu þessara tveggja þjóða.
Þarna voru konungsdjásnin upphaflegu, myndin er hreyfð vegna þess að það mátti ekki nota flass.
Hér er svo þingsalurinn, og það er hægt að greiða atkvæði með hnapp þarna líka eins og heima. En þessi gamli salur er reyndar ekki í notkun í dag, heldur annar nýrri, svo við gátum ekki truflað þingmennina við störf sín.
Þessi maður var borgarstjóri hér, hann neitaði að gefast upp og stíga til hliðar, hann galt því með lífi sínu og er þjóðhetja í dag.
Hér er minnismeskið rússneska um fallna hermanninn, það eina sem rússar fengu að halda eftir þeir fengu að velja hvaða verk ætti að standa, og þetta varð fyrir valinu, og stendur beint á móti bandaríska sendiráðinu. Litháenunum fannst þetta skrýtið, þau sögðu að í Litháen hefði öllum svona minnismerkjum verið eytt eftir sjálfstæðið.
Í Budapest er mikil uppbygging, og greinilegt að efnahagur þeirra er að lagast. Enda hefur allt hækkað síðan þeir gengu í Evrópusambandið. Og hækkar ennþá meira þegar þeir taka upp evruna, segir fólk hér.
Hér erum við í neðanjarðarlestinni, þær eru þrjár, gul sem er efst, blá sem kemur næst og svo rauð sem liggur neðst. Það er afar auðvelt að nota lestirnar, og góður ferðamáti. Stoppistöðin var alveg við hlið hótelsins.
Hér taka menn lagið í Bastillukirkjunni, þar er hljómburður afar góður.
Á eftir var alveg upplagt að fá sér ungverska gúllassúpu, á horninu við hlið kirkjunnar, við ákváðum svo að fara á tónleika sem haldnir voru kvöldið eftir. Það var glæsilegt að hlusta á Bach í pípuorgelinu, Það voru reyndar líka aðrir meistarar sem við fengum að heyra Handel, Liszt, Schubert, Mozart, og fleiri.
Hér eru byggingar af ýmsum gerðum sumar glæsilegar hallir fyrri tíma.
Aðrar nýtískulegar, eins og sjá má.
Ekki trúi ég að margir íslendingar vildu búa svona. En þetta er algengt hér.
En svona endar nú þessi kafli. Næst verður farið í ferðalag til Szeged, fæðingarstaðar kórstjórans okkar Beötu Jo.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Bloggfærslur 16. júní 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar