Ferðin til Ungverjalands, fyrsti hluti.

Það var rosalega gott að komast aðeins í burtu, ekki frá litlu fjölskyldunni minni, heldur argaþrasinu og þeytingnum, sem búin er að vera á mér undanfarið. 

Ungverjaland2008 002

Þessar tók ég um leið og ég lagði af stað.  Til að minna mig á mitt hreiður.

Ungverjaland2008 003

Sumarið er komið líka hjá okkur hér heima.

Ungverjaland2008 018

en karlakórinn hélt tónleika í Bústaðakirkju, áður en haldið var út á flugvöll.  Kirkjan var troðfull.... mest af vestfirðingum, þetta var eins og gott héraðsmót, og maður sá marga brottflutta vestfirðinga, sem nýttu sér tækifærið til að hitta aðra vestfirðinga og hlýða á virkilega kraftmikinn og hljómfagran söng karlakórsins Ernis.

Ungverjaland2008 022

Í hléi var svo knúsað og kyssts, og rabbað um heima og geyma, skiptst á fréttum og jafnvel giskað á hver var hvað.  Virkilega skemmtileg stemning.

Ungverjaland2008 053

Svo var haldið beint út á flugvöll.  Menn voru glaðir í bragði, og flestir fengu sér smá brjóstbirtu.

Ungverjaland2008 056

Þó eru ennþá til tímalausir prakkarar, ekki að vestfirskum sið, heldur í orðanna hljóðan.  En hér notum við tímalaus um þann sem nískur er. 

Ungverjaland2008 059

Brosandi íslenskar flugfreyjur buðu okkur svo velkomin um borð til Kaupmannahafnar.

Ungverjaland2008 062

Þessi er tekinn út í Köben, aðallega fyrir Úlfinn, því hann er auðvitað spenntur fyrir Taekvon-do

En það urðu einhver mistök með okkur Ella minn, því meðan allir hinir höfðu verið bókaðir áfram til Búdapest, þá urðum við að fara á bandið sækja farangurinn og bóka okkur inn aftur.  Þetta tók allt heilmikin tíma, meðan félagar okkar höfðu það bara náðugt í Biðsalnum.  transfer.

Ungverjaland2008 064

Frá Kaupmannahöfn til Búdapest, lentum við í fangaflugi.  'Eg er ekki að skrökva.  En í vélinni var fangi, sem kallaði sífellt á ótal tungumálum; forðið ykkur, vélin ferst, og eitthvað svoleiðis, sem betur fer heyrði ég ekki í honum.  En úti fyrir sveimuðu fjöldinn allur af löggum og öryggisfulltrúum, þegar við komum út, og með honum í vélinn voru að minnsta kosti tveir lögreglumenn, félegur andskoti, svona í flugi.

Ungverjaland2008 074

En við komumst samt alla leið, og ferðin var ánægjuleg þrátt fyrir allt.

Ungverjaland2008 067

Hér er fyrsta móttökunefndin, hehehehe.... hún heilsaði mörgum kórfélaganum.  Ég tók hana svo og setti til hliðar, vona að hún hafi komist heil út úr flugstöðinni.  Hefur sennilega áætlað að það væri betra að fljúga þannig.

Ungverjaland2008 071

Eins og sjá má gerir hún sig ansi heimakomna, og ég get sagt ykkur að hún var ekkert að velja björn bónda eða jón jónsson, nei hún valdi sér yfirlæknirinn, og formann kórsins.  Maður velur nú það besta LoL

Ungverjaland2008 077

Hér er annar fararstjórinn, hann Ferenz, hann talar reiprennandi íslensku, og er bæði fyndinn og skemmtilegur.  Yndislegt að fá heimafólk til að leiðbeina sér.  Hinn fararstjórinn var Jóna Guðvarðardóttir listamaður sem hefur búið í Ungverjalandi í um 17 ár, meira og minna.  Og hefur upplifað allar breytingarnar sem orðið hafa.  Hún sagði okkur að meðan Ungverjaland var undir járnhælnum, þá var ekki hægt að kaupa sér bíl, nema panta hann með löngum fyrirvara.  Og það komu bara nokkrir bílar í hvert skipti.  Þetta hefur lagast, og hér eru allskonar bílar, og sumar verksmiðjur sem hafa flutt sig frá dýrari löndum hingað.  En það var eitt sem henni fannst ekki sniðugt, og það er að í Ungverjalandi eru allir útlendingar á sér númerum.  Þeir eru merktir þannig að augljóst er að þar er útlendingur á ferð.  En svona er lífið.

Ungverjaland2008 081

Götumynd frá Búdapest, hér eru margar fallegar byggingar, bæði nýjar og gamlar, mörg nýju húsanna, svipuðu til slíkra bygginga í Vín, svona ávalar byggingar, úr áli, stáli og gleri.  En það er líka mikið af gömlum skreyttum og fallegum húsum.  Líka hallir og fagrar kirkjubyggingar.

Ungverjaland2008 085

Hér erum við svo komin heim á hótelið.  Það var ekki alveg í miðborginni, en bara rétt handan við hornið voru neðanjarðarlestarna og það var mjög auðvelt að rata með þeim, hvert sem var í miðbæinn og út í smákjarnana kring um borgina.  Það eru þrennskonar underground, sú gula, sem er elst.  Svo er blá, sem við tókum oftast, og svo sú rauða, en hún er neðst í röðinni, þ.e. dýpst niðri.

Ungverjaland2008 090

Um kvöldið fórum við yfir Dóná, til Búda, en við gistum í Pest.  Í Búda er konungshöllin og forsetahöllinn, þar eru miklar hæðir skógi vaxnar og landslagið fallegt, þar býr fólk sem hefur það betra, og hefur flott útsýni yfir borgina.  En yfir ´Dóná eru nokkrar brýr, Margrétarbrúin til dæmis, þessi kallast ljónabrúin, og ljónin kallast skemmtilega á í kvöldhúminu. 

Ungverjaland2008 098

Elli minn í góðum félagsskap.  En hér eru margar styttur og minnisvarðar.  En bara einn frá gamla Sovét.  Eftir byltinguna, þegar Ungverjar fengu sjálfstæði, buðu þeir rússum að velja eina styttu sem mætti standa, allar hinar skyldu teknar niður, styttan af Stalin var felld á staðnum.  Þeir eru ekki hrifnir af því tímabili sem þeir voru undir járnhælnum, og það ríkir enginn kærleikur í garð rússa.  En Ungverjar hafa mjög oft verið hersetnir, af tyrkjum, rómverjum, enda margar rómverskar rústir þar, svo voru þeir undir Habsborgaraættinni Austurrísku, og síðast undir Sovétveldinu.  En einhvernveginn þá hafa þeir náð að vera jákvæðir og eiga gott samstarf við þessa fyrrverandi kúgara sína alla.  En þeir eru eins og ég sagði áður, langt að komnir, og ekki skyldir neinni þjóð í nágrenni við sig.  Tungumál þeirra er mest skylt finnsku. 

Ungverjaland2008 023

Við fórum svo í ferð í Dónárdalinn, þar er mikil náttúrufegurð, hér í stærstu dómkirkju landsins Esztergom var svo tekið lagið til að heyra hljómburðinn.

Ungverjaland2008 037

Það hljómaði rosalega vel get ég sagt ykkur.

Ungverjaland2008 086

Hér erum við upp á hæðinni, sem kirkjan stendur á, með útsýni yfir Dóná, og hér skiptir áin landamærum, því hinu meginn er Slóvenía.  Þessi brú var sprengd upp í stríðinu, og reyndar oftar, Slóvenar höfðu engan áhuga á að reisa hana, og það eru einungis örfá ár, síðan hún var endurbyggð. 

Við erum ekki alveg komin heim úr Dónárdalsferðinni, því við eigum eftir að snæða í Visegråd og heimsækja fallegt þorp sem heitir Szentendre.  En ég er eiginlega orðin dálítið syfjuð Blush

Svo Ég býð ykkur bara góðrar nætur, og knús og takk fyrir allt.  Þið hafið svo sannarlega glatt mig með orðum og hlýjum óskum.  Það yljar ótrúlega mikið.  Heart


Bloggfærslur 13. júní 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband