6.5.2008 | 22:25
Kúlan og allt sem henni fylgir.
Jamm hér er allt að vorast og verða yndislegra og betra, sumarið við næsta horn.
Snjórinn fer fljótt og vel, skíðasvæðið að verða snjólaust, og allursnjór farin úr byggð.
Þessi litla stubba er ótrúlega skapstór, og lætur ekki sinn hlut. Vill til að Jorga er þolinmóð.
Fallegur morgun ekki satt.
Hanna Sól komin á leikskólann, annars má ég víst ekki birta svona myndir að ungunum á leikskólanum, nema með leyfi foreldra. Þau eru bara svo flott þessar elskur.
Bak vil luktar dyr... eru skólasystkin Ásthildar.
Þessi er tileinkuð Sigrúnu bloggvinkonu, aðalgatan á Suðureyri með elskaðan Göltinn i baksýn. Suðureyri böðuð sól.
Þar sem við höfðum skilað af okkur börnunum á leikskólan heyrðum við lögreglusýrenur í þorpinu, þar kom löggubíll á rosalegri ferð og sjúkrabíll á eftir, ég mundaði náttúrulega myndavélina.
Út stökk löggumann með tækið góða, hjartahnoðtækið, sem bjargað hefur nokkrum mannslífum núna bara á stuttum tíma.
en allt fór vel, það var bara gamall sjómaður sem hafði dottið í sjóinn. Hann var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar og ég frétti svo að hann væri komin heim, annars hefðu þessar myndir ekki birst hér. Ég myndi aldrei setja inn myndir af slystað þar sem dauðaslys hefði átt sér stað, nógur er sársaukin samt hjá aðstandendum, þó ekki bætist við fréttaþyrstir blaðamenn og ljósmyndarar.
Börn að leik á skólalóðinni. Halló amma glumdi þar líka, ég er vel þekkt hehehehehe.
Ég fór að láta skipta um dekk á bílnum mínum, nú eru engir naglar lengur.
Við fórum í sund á Suðureyri stelpurnar og Jorga, þegar hún áttaði sig á því að þetta var útilaug, varð hún angistarfull, það er allof kallt sagði hún, ætlarðu virkilega í útisundlaut ?
Já hún er heit, sagði ég. Hún horfði á mig í forundran, ókey, sagði hún svo, ég ætla að prófa.
Svo varð hún aldeilis hissa á hve heitt vatnið var.
Og; mikið er sjórinn hreinn við ströndina, sagði hún. Já glöggt er gests augað.
Þetta eru vorboðar.
Og grasið farið að grænka.
Svo var náttúrulega grillað.
Hún er eins og amma sín, sagði afi, vill endilega naga beinin. hehehe
Jóhanni bloggvini fannst haninn flottur, Úlfu datt í hug að setja upp prik fyrir hann, við kjallaradyrnar. Skepnan byrjar að gala kl. 4 á morgnana, og svo galast þeir á, hanarnir þessi stóri upp á lóð, og þessi litli í garðskálanum. Ég keypti eyrnatappa í dag fyrir alla fjölskylduna
Það kom í ljós að Jorga okkar er hárgreiðsludama, hún fléttaði Hönnu Sól í dag.
Sæt saman.
Líka sætar saman.
Kvöldfegurð, fjallið himininn skýin mynda orku sem maður tekur inn og nýtir sér endalaust.
Afi og Sólin gantast.
Hér sést fléttan hennar Jorgu.
En ég segi bara knús á ykkur öll inn í nóttina. Það fer að verða meira að gera hjá mér í vorverkum, en ég vil ekki missa af ykkur, og ætla mér því að reyna að vera dugleg að heimsækja ykkur og senda inn myndirnar mínar. Þið eruð öll svo yndæl. Knús á ykkur inn í nóttina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
6.5.2008 | 13:13
Tíminn og ég framhald. (smá mömmó)
Tíminn og ég er svo sannarlega réttnefni. Hafði bókstaflega engann í gær, hvað þá orku. Þetta stendur samt allt til bóta, því Peran mín er heillasending, ljúf og hlý og dugleg, hún kemur stelpunum vel að sér, og kann tökinn, enda móðir sjálf.
'Eg ætla að svara ykkur í kvöld, og fara blogghringinn. En núna langar mig að setja inn myndirnar frá því í gær, sem ég hafði ekki orku til að setja inn þá. Knús á ykkur öll inn í daginn, og svörin ykkar gleðja mig mikið, þó ég hafi ekki haft tíma til að svara þeim.
Veðrið var fallegt í gær, og er ennþá fallegra í dag, með sól og hlýju.
Speglunin segir bara eitt LOGN.
Stúlkurnar tilbúnar í leikskólann.
Prinsessan opnar sínar dyr sjálf.
Sú stutta fær ókeypis burð.
Mér finnst öll störf jafn þýðingarmikill, og auðvitað á að kynna börnunum sem flest störf, hér er starfskynning í ruslasöfnun.
Og auðvitað glumdi við Halló amma!, því allstaðar á ég hauka í horni.
Já veðrið er hið fegursta hér á hjara veraldar.
Það má segja að þetta sé alþjóðlegur vinnustaður, Pólland, Ísland og Litháen. Svo bætist við kona frá Portúgal í vikunni. Þessi þrjú eru harðdugleg í prikluninni.
Afi minn er múrari, þess vegna tékka ég á hvort hellurnar eru fastar fyrir.
Maður þarf að fá sér fisk í matinn.
en við borðum samt úti í garðskála.
Svo þarf maður aðeins að sulla, það tilheyrir þessum aldursflokki.
Og spjalla við afa, djúbbi djúbbi, dí.
Leikræn tjáning, þessar eru fyrir Lilju bloggvinkonu mína og Elvar Loga, hefurðu séð dramatískara leikrit ? Act alone? Elvar Logi, hún er örugglega liðtæk á Act alone vikuna hjá þér ekki satt ?
Hærra til þín !
Með hádramatískum endi Sem betur fer var myndavélin við hliðina á mér. Því þetta var alveg dásamlega flott móment.
Jorga nær henni mjög vel að sér, sem er þýðinarmikið, því yfirleitt tekur það viku að ná henni á sitt band.
Prinsessurnar mínar vilja klifra upp á allt, hvar sem er. Jafnvel upp á matarborð.
Hér er rómantísk tjarnamynd, hér er verið að skoða fiskana. Prakkarann og fleiri. Þeir eru vaknaðir til lífsins, eftir svefn vetursins.
Og enn ein falleg kvöldmynd. ég hugsa til ykkar, og bæði fer blogghring og les svörin ykkar í kvöld. Knús á ykur öll.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Bloggfærslur 6. maí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar